Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.03.2014, Page 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.03.2014, Page 17
Heiðar Örn Kristjánsson, söngv- ari Pollapönks, er mikill fjöl- skyldumaður. Hann segir fjöl- skylduna geta spilað saman tölvuleiki og njóta þess að fara saman í bíó eða hafa kósíkvöld heima. Þátturinn sem allir geta horft á? Það eina sem mér dettur í hug sem allir horfa sáttir saman á er America’s Funniest Home Videos! Maturinn sem er í uppáhaldi hjá öllum? Taco tuesday klikkar aldr- ei. Skemmtilegast að gera sam- an? Bíóferðir og kósí fjöl- skyldukvöld heima með snakk og nammi. Borðið þið morgunmat sam- an? Fjölskyldumeðlimir fara fram úr á misjöfnum tímum og borðum við morgunmat eftir því. Yfirleitt borða börnin yfir barnatím- anum um helgar. Hvað gerið þið saman heima ykkur til dægrastyttingar? Við keppum í keilu í Xbox Kinect leikjatölvunni þar sem ég vinn alltaf.....djók. EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR Mexíkóskt taco er í uppáhaldi hjá öllum Heiðar Örn Kristjánsson. 23.3. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17 Hvar og hvenær? Salnum í Kópavogi, sunnudag kl. 11 og kl. 13.30. Nánar: Óp-hópurinn setur upp söguna um Hans og Grétu eftir Humperdinck. Leikstjórinn Maja Janter hefur sérhæft sig í óperusýn- ingum fyrir börn. Hægt er að nálgast miða á midi.is og verð er 3.000 kr. Barnaópera um Hans og Grétu* Þegar lífið leikur þig grátt er þaðeina í stöðunni að halda áframað synda. Dóra í Leitin að Nemo. Hvatningarverðlaun skóla- ogfrístundaráðs verða afhent íannað sinn nú í maí. „Hvatningarverðlaun eru veitt fyrir verkefni sem þykja skara fram úr og vera til eftirbreytni,“ segir Sigrún Einarsdóttir, leikskólaráðgjafi og verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg. Hún segir þessar viðurkenningar hafa skilað sér vel og séu hvetjandi fyrir frekari sniðug og skemmtileg verkefni á leik- og grunnskólastigi. „Það er óhætt að segja að þessar viðurkenn- ingar hafa haft hvetjandi áhrif á ýmis verkefni og gæðastarf með börnum og unglingum og starfsfólk er afar stolt af viðurkenningunum.“ Vilja skapa gott flæði Mörg mjög skemmtileg verkefni eru í gangi hjá leikskólum, grunnskólum og í frístundastarfi og með hvatning- arverðlaunum er lögð rík áhersla á að skapa flæði milli skólastiganna og frístundastarfsins. Í fyrra, til að mynda, fékk Hóla- brekkuskóli verðlaun fyrir verkefnið: Skólaverkefni SpecialOlympicsInter- national – Get into it. Þar var reynt að ná til sem flestra með boðskapnum „Eitt samfélag fyrir alla“. Verkefni var unnið af nemendum í 7. bekk skólans. Að undanskildum níu verðlaunum voru auk þess veittar viðurkenningar fyrir samstarfsverkefni. Annað verk- efnið sem fékk viðurkenningu var Vesturbæjarfléttan en árið 2011 sameinuðust allir leikskólar, grunn- skólar og frístundamiðstöðvar í starfi undir þeirri yfirskrift. Verk- efnið hefur vakið mikla lukku. Vekja athygli á gróskumiklu skóla- og frístundastarfi Verðlaunin eru veitt til níu verkefna, til þriggja leikskóla, þriggja grunn- skóla og þriggja aðila í frístunda- starfi. Markmið verðlaunanna eru þríþætt. Í fyrsta lagi að veita leik- skóla-, grunnskóla-, og frístunda- starfi í Reykjavík jákvæða hvatn- ingu, í öðru lagi að vekja athygli á gróskumiklu skóla- og frístunda- starfi sem fer fram á vegum starfs- staða skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og í þriðja lagi að stuðla að auknu nýbreytni- og þróunarstarfi í skóla- og frístunda- starfi Reykjavíkurborgar. Hvatning- arverðlaunin eiga sér lengri sögu en þá var ekki ein sameiginleg athöfn heldur var hver starfstöð með sína athöfn út af fyrir sig fyrir samein- ingu. Enn er hægt að tilnefna til hvatn- ingarverðlauna og geta allir gert það, foreldrar, aðrir ættingjar, börn, starfsmenn og fleiri. Umsóknar- frestur rennur út 28. mars. gunnthorunn@mbl.is HVATNINGARVERÐLAUN HAFA MJÖG GÓÐ ÁHRIF Stuðla að jákvæðri hvatningu Tekið við viðurkenningu sem Fellaskóli, frístundamiðstöðin Vinafell og leik- skólarnir Holt og Ösp fengu fyrir verkefnið „Okkar mál“ í fyrra. MEÐ HVATNINGARVERÐLAUNUM ER VAKIN ATHYGLI Á VERKEFNUM Í LEIK-, GRUNN-, OG FRÍSTUNDASTARFI SEM ÞYKJA SKARA FRAM ÚR. NÍU VERÐLAUN ERU VEITT OG ENN ER HÆGT AÐ TILNEFNA Á HEIMASÍÐU REYKJAVÍKURBORGAR. Leikskólinn Sæborg hlaut verðlaun fyrir verkefnið „Okkar Sæborg“ sem börnin unnu samhliða listamanninum Daða Guðbjörnssyni. Hólavallakirkjugarður við Suðurgötu, er einn leyndar- dómsfyllsti staður Reykjavík- urborgar. Ungir sem aldnir geta gengið þar eftir stígum er liggja í allar áttir, farið í feluleik og skoðað virðuleg leiði skálda, ráðherra og al- þýðufólks, allt frá 1838. Um leið er þetta frábært tækifæri til að kynna ungviðinu sögu lands og þjóðar, segja því frá farsóttum sem endurspeglast í ártali spænsku veikinnar og hvernig stórar fjölskyldur liggja í friði í fjölskyldu- reitum. Það er áskorun að lesa á sum leiðin og ævintýralegt því grafskrift sums staðar er að mást út. GAGN OG GAMAN Óvenjulegur felustaður Kirkjugarðurinn við Suðurgötu er sniðugur staður fyrir feluleik þótt óvenjulegur sé. Morgunblaðið/Ómar V i r k a d a g a 1 0 - 1 8 , l a u g a r d a g 1 1 - 1 7 o g s u n n u d a g 1 3 - 1 7 E I T T S Í M ANÚME R 5 5 8 1 1 0 0 LOKADAGUR SUNNUDAG – KOMDU NÚNA TAXFREE DAGAR 20,32%AFSLÁTTURAFÖLLUMVÖRUM – EKKI MISSA AF ÞESSU – TAXFREE VERÐ! 17.521 KRÓNURINTERIOR JÁRNKLUKKA ÞVERMÁL 100CM O P I Ð GOHST hægindastóll Margir litir í áklæði. Einnig fáanlegur í leðri. TAXFREE VERÐ! 111.544 KRÓNUR

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.