Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.03.2014, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.03.2014, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.3. 2014 Heilsa og hreyfing Niðurstöður nýrrar svefnrannsóknar benda til þess að svefnleysi geti haft alvar- legri afleiðingar fyrir heilann en áður hef- ur verið talið. Rannsóknin, sem birt var í vísindatímaritinu The Journal of Neuro- science, var gerð á músum og því benda rannsakendur á að stíga þurfi varlega til jarðar í ályktunum og yfirfærslu niður- staðna yfir á mannkynið á þessu stigi. En niðurstöður rannsóknanna sýndu að lang- varandi svefnleysi músa leiddi til þess að 25% af heilafrumum í tilteknum hluta heilastofnsins dóu. Þykir vísindamönn- unum þessar niðurstöður geta bent til þess að langvarandi missir svefns, til dæm- is hjá þeim vinna langa vinnudaga og sofa lítið á milli, geti haft óafturkræfar afleið- ingar. Líkt eftir vaktavinnu Í rannsókninni var reynt að líkja eftir al- gengu mynstri svefns, eða skorts á hon- um, hjá fólki sem vinnur vaktavinnu, þ.á m. næturvaktir. Rannsóknin var gerð við læknadeild háskólans í Pennsylvaníu. Í frétt BBC um rannsóknina segir einn rannsakenda, Sigrid Veasey, að niðurstöð- urnar færi sannanir fyrir því að skortur á svefni geti leitt til skaða sem ekki er aftur- kræfur. Þrátt fyrir að rannsóknin sé ein- föld dýratilraun sé full ástæða til að skoða nánar hvort það sama geti átt við um menn. Telja vísindamennirnir að með tím- anum verði hægt að þróa lyf sem vinnur gegn skaðlegum áhrifum svefnleysisins. Viðamiklar rannsóknir til viðbótar þurfi þó til. NÝ RANNSÓKN Á ÁHRIFUM SVEFNLEYSIS Mýsnar máttu ekki við því að missa svefn Svefn hefur áhrif á líðan en niðurstöður nýrrar rannsóknar við Pennsylvaníuháskóla benda til þess að af- leiðingar svefnleysis séu alvarlegri en hingað til hefur verið talið. AFP Greipaldin er fyrirtaks efniviður í morgunverð. Greipaldin er frekar súrt og hefur löngum verið þekkt fyrir að draga úr löngun í sætu og óhollustu. Greip er einnig uppspretta vítamína og kalks. Fyrir þá sem geta ekki hugsað sér að borða greip eitt og sér þá er góð hugmynd að kreista það í glas og blanda smávatni við. Greipsafi er troðfullur af C-vítamíni. Gripið í greip á morgnana Viðar Garðarsson, kvikmynda-framleiðandi og markaðs-ráðgjafi, hefur í aldarfjórð- ung unnið að kvikmyndagerð. „Allan þann tíma hef ég reynt að fá fólk til að segja sögur og margir hafa treyst mér til þess. Ég gat því með engu móti sleppt þessu tæki- færi,“ segir Viðar sem nú vinnur að gerð heimildarmyndar um eigin hjartaaðgerð. „Ég vil ekki líta út eins og fórnarlamb heldur á myndin að vera skemmtileg en um leið fræð- andi og ýta við fólki. Ég hef haldið frá unglingsaldri að ég sé ódrep- andi en sat svo allt í einu í súp- unni.“ Viðar, sem er rétt skriðinn yfir fimmtugt, fann aldrei nein einkenni „sem neinu nemur. Ég tók reyndar eftir því að þolið var að minnka og grunaði að eitthvað væri að gerast. Hafði farið í tékk hjá Hjartavernd árið áður og fékk fína skoðun og hélt frekar að eitthvað væri í lung- unum. Ég eyddi 20 árum í að reykja og hélt ég væri að fá það í bakið“. Viðar er formaður Íshokkí- sambands Íslands, hefur lengi verið dómari í þeirri grein og talið sig í góðri æfingu. Þegar hann lét athuga hvort eitt- hvað væri athugavert við lungun ákvað læknirinn að senda Viðar til hjartalæknis og sá kom honum í segulómun. „Ég fór í myndatöku á föstudegi og fljótlega eftir helgi fór ég í brjáða hjartaþræðingu. Það var 12. júní í fyrra.“ Báðar aðalkrans- æðar til hjartans reyndust algjör- lega stíflaðar og tvær aðrar nánast alveg. Ekki var hægt að laga það í þræðingunni svo Viðar var settur á biðlista eftir hjartaaðgerð og fór á skurðarborðið 30. september, í fjórfalda hjáveituaðgerð. Á meðan Viðar beið eftir aðgerð- inni fékk hann hugmynd að heim- ildarmyndinni. Eftir að Bjarni Torfason skurðlæknir og aðrir við- komandi gáfu leyfi fékk Viðar kvik- myndatökumanninn Ólaf Rögn- valdsson til verksins. „Ég er að gæla við að tvinna saman eigin upplifun og læknisins en á reyndar eftir að ræða það við Bjarna. Hug- myndin er sem sagt sú að segja annars vegar frá lækninum sem mætir á vakt og framkvæmir þessa flóknu aðgerð, sem er nánast eins og daglegt brauð fyrir hann; hins vegar frá sjúklingnum sem veit í sjálfu sér ekkert hvað hann er að fara út í; veit að þetta er risastór aðgerð en í raun ekki hvort hann lifir af. Það gæti verið skemmtileg andstæða að tefla fram þessum tveimur mönnum.“ KENNDI SÉR EINSKIS MEINS EN LENTI Í FJÓRFALDRI HJÁVEITUAÐGERÐ Vinnur að heimildarmynd um eigin hjartaaðgerð KVIKMYNDAFRAMLEIÐANDI STÓÐST EKKI MÁTIÐ ÞEGAR HANN FÉKK ÓVÆNT MJÖG ÁHUGAVERT EFNI Á SILFUR- FATI UPP Í HENDURNAR. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Viðar Garðarsson og tíkin Birta „Viðarsdóttir“ heima í Grafarvogi. Morgunblaðið/Árni Sæberg Viðar á sjúkrabeðinum. Úr upptöku Ólafs Rögnvaldssonar myndatökumanns. Báðar aðalkransæðar til hjartans voru alveg stíflaðar og tvær aðrar nærri því. „Ótrúlega margir deyja úr hjarta- og æðasjúkdómum hér á landi og ég hef ekki komist hjá því að hugsa um það hvers vegna ég fékk að draga langa stráið,“ segir Viðar. „Í lok maí í fyrra fór ég til Lúx- emborgar, að beiðni Ólafs Rafnssonar, vinar míns, forseta Íþrótta- og ólympíusambands Ís- lands, til að fara yfir ýmis mál vegna undirbúnings Smáþjóða- leikanna á Íslandi 2015. Þar ræddum mikið um framtíð íþróttahreyfingarinnar eins og við gerðum oft, báðir kolstíflaðir en vissum hvorugur af því. Tveimur vikum seinna er ég kominn í bráðaaðgerð á spítala og viku eftir það er Ólafur látinn í Sviss. Þetta er dæmi um hvernig svona lagað getur læðst aftan að manni. Það hafði gríðarleg áhrif á mig þegar Óli féll frá. Ég geri mér grein fyrir því að ég var líka á síðustu metrunum en var hepp- inn og fékk framlengingu, hugs- anlega um mörg ár. Það er eins og að hafa unnið í happdrætti,“ segir Viðar. HVERS VEGNA DRÓ ÉG LANGA STRÁIÐ? Bjarni Torfason hjartaskurðlæknir. Skot úr upptöku Viðars.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.