Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.03.2014, Page 30
D
óra Welding lyfjatæknir hefur
einstaklega gaman af því að
halda matarboð og segist hafa
unun af því að gera vel við vini
sína og fjölskyldu. „Þetta er eitt af því ynd-
islegasta sem ég geri. Það er mikið áhuga-
mál að búa til kósý stemningu heima og er
ég gjarnan marga daga að undirbúa í hug-
anum hvernig hlutirnir eigi að vera og hvað
ég ætli að bjóða upp á,“ segir Dóra. „Ég er
meira fyrir stemninguna í kringum matinn,
blómin, vínið, músíkina, skreytingarnar og
auðvitað fallegan mat líka. Flæðið á heim-
ilinu hefur heilmikið að segja þegar boðið er
í mat. Mér finnst huggulegheit og rétt lýsing
einnig mikið atriði, tala nú ekki um fyrir þá
sem eru á lausu.“
Dóra segir að fimmtudagar verði oft fyrir
valinu þegar halda á matarboð. „Það er með
ólíkindum hvað ég elska að setja blóm í vasa,
hlusta á Ettu James og pússa mublurnar. Á
fimmtudögum býð ég gjarnan í boð og þá
passa að hafa R. Kelly í botni,“ segir tónlist-
arunnandinn. „Brátt færist kætin á pallinn
með vorinu og þá býð ég hestavinkonum
mínum í mat, það er nefnilega ár hestsins
svo það verður mikið gaman út árið. Annars
er alltaf gaman hjá mér,“ segir Dóra kát.
Með Jamaica-blóð í æðum
Dóra er fædd og uppalin í Reykjavík og er
þekkt fyrir að vera með húmorinn í lagi. Það
verður að segjast að blaðamaður skellti upp
úr nokkrum sinnum í viðtali. „Ég á ættir að
rekja austur á Reyðarfjörð en þar fléttast
Jamaica-blóðið hressilega inn. Í fyrsta skipti
sem ég fór til Jamaica að dansa helltist yfir
mig sú tilfinning að mig langaði ekkert heim.
Spes hvað ræturnar geta gabbað mann,“
segir hún.
Dóra segist hafa staðið í þeirri meiningu
að kunna ekki að baka en komið hefur á
daginn að það er hinn mesti misskilningur.
„Annars er ég sturluð í ítalskan mat, lyktin
tekur mann til himna. Samsetningin, bragð
og fagurfræðin er guðdómleg, þ.e.a.s. basil,
parmesan, tómatar, hvítlaukur, pasta og góð
olía. Skolað niður með bragðmiklu rauðvíni
fær hjartað til að taka aukaslag. En ég verð
jafnframt að viðurkenna að ég elska allt am-
erískt, svo lengi sem það eru ekki dónalegir
tröllaskammtar. Samsetningin er sniðug hjá
þeim og smart útlit á réttunum. Mér finnst
það gefa lífinu lit að moka smáfrönskum á
diskinn. Allt er gott í hófi svo lengi sem hug-
urinn er fullur af sólskini,“ segir Dóra sem
lætur hér fylgja væna ameríska sprengju
sem er ágætis spariuppskrift.
Lítill demantur í fjölskyldunni
Dóra og eiginmaður hennar Hinrik Þráins-
son eiga tvær dætur, Rebekku og Viktoríu.
Rebekka á litla stúlku, Díönu Marín, sem er
mikill gleðigjafi á heimilinu. „Ég er svo ljón-
heppin að eiga yndislega, sæta, góða,
skemmtilega og fyndna ömmustelpu sem er
oft að skemmta okkur kornunum, dásamlegt
að hafa aðgang að svona demanti,“ segir hún
sæl að lokum.
Morgunblaðið/Ómar
DÓRA ER MIKIÐ FYRIR STÚSSIÐ Í KRINGUM ÞAÐ AÐ HALDA MATARBOÐ
Mikið fjör á ári hestsins
STEMNINGIN, MÚSÍKIN, BLÓMIN OG SKREYTINGARNAR SKIPTA MIKLU MÁLI ÞEGAR BOÐIÐ ER TIL VEISLU AÐ MATI DÓRU WELDING. HÚN ER
EINSTAKLEGA HUGMYNDARÍK HVAÐ ÞETTA VARÐAR OG ÞYKIR FÁTT NOTALEGRA EN AÐ DEKRA VIÐ FJÖLSKYLDUNA, HEIMILIÐ OG GESTI ÞESS.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
„En ég verð jafnframt að viðurkenna að ég elska
allt amerískt, svo lengi sem það eru ekki dóna-
legir tröllaskammtar,“ segir Dóra.
Vöfflur:
5 dl hveiti
4 tsk lyftiduft
4 msk sykur
6 msk brætt íslenskt smjör
3½ dl mjólk
½ tsk salt
vanilludropar
Vöfflurnar eiga að vera stökkar, meira
steiktar en minna.
Meðlæti:
3-4 kjúklingabringur
salt og pipar
kjúklingakrydd
rósmarín
1 msk barbeque-sósa
1 bréf af beikoni
Bringurnar eru steiktar með olíu á pönnu.
Þær eru kryddaðar með kjúklingakryddi,
rósmarín, salti og pipar eftir smekk og
barbeque-sósu. Eitt bréf af beikoni steikt,
best er að raða beikoninu á bökunarpappír
á ofnskúffu, kemur minnsta fitan á vöffl-
urnar.
Vöffludressing kúrekans:
½ bolli parmesan
1 bolli majones
½ bolli agavesíróp
sítrónusafi
Öllu hrært vel saman
Vöfflusamsetningin er þá svona:
Vafflan
rauðlaukur
vorlaukur
rauð paprika
þunnar kjúklingasneiðar eftir smekk
3 beikonflísar
nokkrar örþunnar sneiðar af jalapenó-osti
1 msk sætt sinnep
3 msk vöffludressing
Kjúklingavöfflur
með beikoni
Matur
og drykkir
Sniðugt snarl á milli mála
*Rósakál er einstaklega ljúft og gott á bragðið og ekki skemmirfyrir hversu hollt það er. Hér er einföld og góð uppskrift aðrósakálsrétti sem snjallt er að taka með sér í nesti í vinnuna:1 kg rósakál, snyrt og skorið til helminga1 bolli pekanhnetur, hakkaðar2 msk ólífuolía2 hvítlauksgeirar, fínt saxaðir
salt og pipar eftir smekk
Allt steikt á pönnu og kælt.