Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.03.2014, Síða 31

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.03.2014, Síða 31
23.3. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31 Grænkál hefur farið vaxandi í vinsældum sem ein- staklega hollt hráefni. Grænkál er meðal annars stútfullt af C-vítamíni, A-vítamíni, kalki og hollum fitusýrum svo eitthvað sé nefnt. Til að mynda inni- heldur grænkál um tvöfalt meira magn af C- vítamíni en appelsína. Grænkál er ef til vill ekki allra en snjallt er að búa til hollt og gott snarl úr grænkáli, parmesan osti og sí- trónu. Þá er grænkálið þvegið og þerrað vel og sett í skál. Góðri ólífuolíu er skellt út á kálið og nuddað vel við blöðin. Blöðunum er síðan raðað á ofnskúffu og bakað í ofni á lágum hita í um 25 mínútur eða þar til kálið er stökkt, ekki brúnt. Blöðin skreppa örlítið saman. Á meðan þau eru heit er salti, ferskum parmesan og sítrónusafa hellt yfir blöðin þar til þau kólna. Ljúffengt! Hollustubomba Langflestar salatdressingar eru í grunninn olía og edik. Þegar olíu og ediki er blandað saman skilja hráefnin sig að en með því að blanda vissum tegundum saman við helst samsetningin saman. Í ekta franskri dressingu er olíu blandað saman við edik, þrír á móti einum. Gott er að nota annaðhvort hvít- vínsedik eða eplaedik. Þá er dijon sinnepi blandað saman við eftir smekk, til að bragðbæta en sinnepið hefur einnig þann eiginleika að sameina olíuna og edikið. Örlitlu af salti og pipar er bætt við og síðan hrært vel saman eða hrist. Hægt er að nota majónes eða sýrðan rjóma í staðinn fyrir sinnepið, auk þess er gaman að brjóta upp og krydda með ferskri steinselju, myntu, graslauk, basil eða örlitlum ferskum hvítlauk. Smekklegt er að setja dressinguna í litla glæra krukku. Ekta frönsk salatdressing Það er fallegt að hafa frönsku salat- dressinguna í settlegri krukku. Það vekur ekki mikla lukku að fá skordýr í matinn sinn. Tilhugsunin um að éta óvart flugu, kónguló eða önnur skordýr er ansi fráhrind- andi. Skordýr eru hins vegar ríkur próteingjafi og í heimi þar sem fólksfjölgun er mikil og fjármagn til búfjárræktar fer minnkandi geta skordýr verið vistfræðilega skynsamlegur kostur til mann- eldis. Að vísu er mjög ólíklegt að skordýr verði einhverntíma fastur liður í fæðukeðju mannsins en það er ágætt að hafa þetta í huga næst þegar flugan lendir í súpunni. Í skordýrum er góð uppspretta pró- teins og í raun ekki svo slæm fæða. Þjónn! Það er fluga í súpunni Brátt færumst við nær barnæsku okkar þegar munurinn á því sem má borða og því sem má ekki borða verður óljós á ný. Sérfræð- ingar í Harvard-háskóla hafa fund- ið upp nýtt form af umbúðum og ílátum sem hægt er að leggja sér til munns. Einstaklega umhverfis- vænt. Fyrirbærið nefnist Wiki- frumur og búist er við að þetta verði nýjasta æðið á þessu ári. Í París er búið að opna svokallaðan Wiki-frumu bar og stendur til að opna einnig slíkan í Massachusetts í Bandaríkjunum. Wiki-frumurnar sjá til þess að ís bráðni ekki þegar hann er snertur og að ekki þarf að nota skeið við að borða jógúrt. Hægt að borða umbúðirnar Ísinn bráðnar ekki við snertingu, þökk sé nýjasta æðinu, wiki-frumum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.