Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.03.2014, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.03.2014, Blaðsíða 43
23.3. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43 O rðið staka þýðir stök vísa, ferskeytla. Ferskeytlur eru bragarháttur sem hef- ur lifað með þjóðinni í aldir og varð- veist munnlega milli kynslóða. Staka þýðir líka skinn af dýri, en það er lifandi efni sem mýkist og mótast við notkun,“ segir María Kristín Jónsdóttir vöruhönnuður. María vinnur með leður í fylgihlutalínunni Stöku sem er ætluð báðum kynjum, María útilokar þó ekki að nýta fleiri efni eða aðrar áttir í hönnun sinni. Hugmyndin er sú að Staka veðrist og mótist með eigendum sínum og fylgi kynslóð fram af kynslóð. María Kristín segir hugmyndina að Stöku hafa kviknað út frá Íslend- ingasögunum. „Staka er unnin út frá þeirri hug- mynd að á hálendi Íslands búi hinn íslenski ættbálkur sem hefur farið leynt og á ættir sínar að rekja til landnámsmanna. Þessi ættbálkur býr við mikið harðbýli í stórbrotnu landslagi hálendisins og þarf sífellt að aðlagast náttúrunni og er því alltaf á ferðinni. Þess vegna hefur hann ekki uppgötvast fyrr. Ég er því í rauninni að hanna hluti sem ég ímynda mér að fólkið í ættbálknum myndi nota. Í þessari nýju línu leita ég innblásturs með því að horfa á umhverfi þeirra með þeirra augum og hugsa út frá þörfum þeirra, t.d. með því að gera hluti sem fer lítið fyrir og er auðvelt að pakka saman,“ segir María sem hóf þróun fyrirtækisins haustið 2011. „Ég vildi hanna fylgihluti og fannst leðrið spennandi hráefni því það á sér svo langa sögu og hefur nýst í skjólfatnað, skó og fylgihluti öldum saman. Hug- myndin var svo að taka nýjan snúning á það hráefn.“ Geur þú útskýrt hönnunar- ferlið? „Ég er alltaf að með augun op- in, skoða og safna sjónrænum hugmyndum, ljósmyndum, orðum, formum, áferðum og þess háttar. Svo byrja ég að skissa og þegar þær eru komnar áleiðis vel ég þær sem ég vil vinna áfram og þaðan fer ég yfir í pappamódel sem ég vinn á gínu. Þá vel ég og hafna, út- færi og leita að lausnum, sem getur oft verið ágætisáskorun en er jafn- framt það sem gerir þetta ferli svo skemmtilegt. Að lokum teikna ég munina upp í teikniforriti og geri „prótótýpur“ í leðrið áður en loka- vinnsla hefst,“ segir María Kristín að lokum. Staka verður á Hönn- unarMars sem hefst 27. mars og mun vera til sýnis í versluninni 38 þrep á Laugavegi 49. Ljósmyndir/Móa Hjartardóttir Morgunblaðið/Þórður María Kristín vöruhönnuður hannar fylgihluti fyrir bæði kyn úr nautshúð. TAKA NÝJAN SNÚNING Á HRÁEFNIÐ Mótast með eigendum sínum MARÍA KRISTÍN JÓNSDÓTTIR VÖRUHÖNNUÐUR HANNAR FYLGIHLUTI UNDIR HEITINU STAKA. MARÍA SEGIR HUGMYNDINA AÐ VÖRUNUM HAFA SPROTTIÐ ÚT FRÁ ÍSLENDINGASÖGUNUM. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is * „Mér fannstleðrið spenn-andi hráefni því það hefur svo langa sögu.“ v Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911 www.facebook.com/spennandi - www.spennandi.com Opið: Mán. - fim: 12 - 18 og fös. 12-16 Ný sending - vor 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.