Morgunblaðið - 03.04.2014, Blaðsíða 1
„Það hefur verið gott fiskirí, frá 10. mars þegar ég
lagði netin. Ég var áður búinn að prófa en þá gekk ekki
neitt,“ segir Jóhannes Jóhannesson, trillukarl á Litla
Tindi SU 508. Hann rær með þorskanet frá Fáskrúðs-
firði. Aflinn hefur verið frá 1,5 og upp í 3 tonn á dag. Í
gær landaði hann 2,9 tonnum.
Með Jóhannesi er frændi hans, Brynjar Ölversson,
nemi í rafvirkjun við Tækniskólann. „Það er alltaf
hægt að fá menn en strákurinn var með mér í sumar og
ég sagði við hann að hann kæmi aftur þegar verkfall
skylli á,“ segir Jóhannes.
„Það er hundleiðinlegt þetta verkfall, ég verð að við-
urkenna það, en það er líka gott að komast á sjóinn,“
segir Brynjar. Hann vonast þó til að verkfallið trufli
hann ekki of mikið í náminu. „Ég er greinilega engin
fiskifæla,“ segir hann um aflabrögðin frá því hann fór
að róa með Jóhannesi.
Stutt er fyrir þá að sækja því netin eru lögð í firð-
inum. Þá hefur veður verið gott. „Það er alltaf blíða
hérna inni á firðinum, sléttur sjór. Það getur þó verið
leiðinlegt í norðanáttum,“ segir Jóhannes. helgi@mbl.is
Er greinilega engin fiskifæla
Morgunblaðið/Albert Kemp
Löndun Jóhannes Jóhannesson landar öllum aflanum á fiskmarkað. Verðið hefur dalað verulega að undanförnu.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Vinna Brynjar Ölversson er ánægður með að geta kom-
ist á sjóinn í verkfalli framhaldsskólakennara.
Nemandi í verkfalli rær á trillu með frænda sínum á Fáskrúðsfirði
F I M M T U D A G U R 3. A P R Í L 2 0 1 4
Stofnað 1913 79. tölublað 102. árgangur
INNBLÁSIN
AF NÁTTÚRU
FÆREYJA
HÆGT AÐ VAKTA
NETNOTKUN
STARFSFÓLKS
BJARNEY HILMA
ER STÓRT
KRAFTAVERK
VIÐSKIPTABLAÐ VÓ 680 GRÖMM 16LAILA AV REYNI 10
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Gangi áætlanir eftir mun skulda-
byrði sveitarfélaganna léttast veru-
lega á næstu árum og samanlagðar
langtíma- og skammtímaskuldir
minnka um rúma 180 milljarða að
raungildi frá því sem mest var eftir
hrunið.
Þetta kemur fram í samantekt
Sambands íslenskra sveitarfélaga á
fjárhagsáætlun sveitarfélaga og í út-
reikningum sem sambandið gerði að
beiðni Morgunblaðsins. Langtíma-
skuldir urðu mestar á núvirði 529
milljarðar árið 2010 en skammtíma-
skuldirnar urðu mestar 92 milljarðar
króna árið 2012 á núvirði.
Halldór Halldórsson, formaður
sambandsins, telur að skuldasöfnun-
in eftir hrunið hafi slegið met. Hann
hefur þar síðustu áratugi til saman-
burðar. Erlend lán Orkuveitunnar
hafi vegið þungt í skuldasöfnuninni,
enda gengisfall hækkað slík lán í
krónum. Samanlagðar langtíma- og
skammtímaskuldir sveitarfélaganna
ríflega tvöfölduðust á árunum 2005-
2010, fóru á núvirði úr 293 milljörð-
um í 616 milljarða. Er áætlað að þær
verði 436 milljarðar árið 2017.
Jóhannes Á. Jóhannesson, sér-
fræðingur hjá sambandinu, segir að
gangi þetta eftir verði það mikil um-
skipti í fjárhagsstöðu sveitar-
félaganna.
Skuldafjallið lækkar
Skuldir sveitarfélaganna eru á niðurleið Áætlað er að samanlagðar langtíma-
og skammtímaskuldir samstæðu sveitarfélaga minnki um 180 milljarða 2010-2017
MSkuldir sveitarfélaga »18
Nemur tugum prósenta
» Áætlað er að samanlagt
skuldahlutfall samstæðu sveit-
arfélaga muni lækka úr um
190% í ár í 152% árið 2017.
» Verður hlutfallið þá tvö pró-
sentustig yfir lögbundnu
skuldahlutfalli þeirra.
Samninganefndir ASÍ og Samtaka
atvinnulífsins hafa sett í gang undir-
búning kjaraviðræðna vegna endur-
nýjunar kjarasamninga næsta haust
eða vetur og koma saman til fundar
á mánudaginn til að fara yfir þá
vinnu sem framundan er, skv. upp-
lýsingum Þorsteins Víglundssonar,
framkvæmdastjóra SA.
Haldinn var fundur í samninga-
nefnd ASÍ í gær vegna undirbún-
ingsins en til stendur að breyta
tímasetningum í viðræðuáætlun og
færa þær aftur um u.þ.b. einn mán-
uð þar sem samningar á almenna
markaðinum renna út tveimur mán-
uðum seinna en upphaflega var ráð-
gert. Reiknað er með að öll félög og
aðildarsambönd ASÍ leggi fram sér-
kröfur fyrir lok þessa mánaðar. Þá
verður lokadagsetning fyrir fram-
lengingu launakrafna væntanlega
færð aftur um einn mánuð.
Þorsteinn segir ótvírætt að stefnt
verði að gerð atvinnugreinasamn-
inga. ,,Markmiðið er að forma helst
tvo slíka samninga að lágmarki í
komandi kjaraviðræðum,“ segir
hann. Ekki hefur verið leitt til lykta
innan AsÍ hvernig að þeim verður
staðið, skv. upplýsingum innan ASÍ.
omfr@mbl.is »4
SA og ASÍ
ræða næstu
samninga
Morgunblaðið/Þórður
Framkvæmdir Unnið við nýja
slökkvistöð í Mosfellsbæ.
Sérkröfur ASÍ-
félaga liggi fyrir í apríl
Undirmenn á
Herjólfi til-
kynntu sig veika
í gærkvöldi og
verða því ekki í
áhöfn skipsins í
dag, annan dag-
inn í röð. Herj-
ólfur siglir sam-
kvæmt áætlun í
dag og segir
Ólafur William
Hand, upplýs-
ingafulltrúi Eimskips, að aðrir
starfsmenn félagsins, úr Eyjum og
Reykjavík, hlaupi í skarðið.
Herjólfur fór þrjár ferðir í Land-
eyjahöfn í gær, þar á meðal kvöld-
ferð, sem var fyrsta kvöldferðin frá
því yfirvinnubann Sjómannafélags
Íslands hófst 5. mars. Lög sem
fresta verkfallinu voru samþykkt í
fyrrinótt og tóku gildi í gær. »14
Undirmenn tilkynna
sig áfram veika
Herjólfur siglir í
dag þrátt fyrir veik-
indi í áhöfn.
Rekstur Hvalfjarðarsveitar skilaði
nærri 58 milljóna króna rekstrar-
afgangi á síðasta ári, sem eru um 9%
af rekstrartekjum sveitarfélagsins.
Námu tekjurnar 636 milljónum
króna og reyndust 23 milljónum
hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Eignir Hvalfjarðarsveitar í lok árs
2013 námu 2,1 milljarði króna og
eigið fé var rúmir tveir milljarðar.
Sveitarfélagið er nánast skuld-
laust, með heildarskuldir upp á 99
milljónir um síðustu áramót. Hval-
fjarðarsveit nýtur góðs af starfsemi
fyrirtækja á Grundartanga en þau
áttu um 77% af fasteignagjöldum á
síðasta ári. Sveitarstjóri Hvalfjarð-
arsveitar, Laufey Jóhannsdóttir,
segir Grundartanga hafa gríðarlega
þýðingu fyrir sveitarfélagið. »12
Hvalfjarðarsveit
nær skuldlaus og á
rúma tvo milljarða
Seðlabanki Ís-
lands ætlar ekki
að samþykkja til-
lögur slita-
stjórnar Spari-
sjóðabankans
(SPB), áður Ice-
bank, að nauða-
samningi sem
gera m.a. ráð
fyrir útgreiðslu í
erlendum gjald-
eyri til kröfuhafa.
Samkvæmt heimildum hefur ESÍ
komið þeim skilaboðum á framfæri
til SPB með óformlegum hætti að
Seðlabankinn ætli hvorki að styðja
né eiga hlut að fyrirliggjandi
nauðasamningstillögum. Þær
myndu ljúka ágreiningi um 225
milljarða kröfur ESÍ á hendur SPB.
hordur@mbl.is »Viðskipti
Vill ekki styðja
nauðasamning SPB
SÍ Stærsti kröfu-
hafi SPB.