Morgunblaðið - 03.04.2014, Blaðsíða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2014
Menningarhúsið Mengi býður til
tónleika í kvöld, annað kvöld og
laugardagskvöld og hefjast þeir kl.
21 öll kvöldin. Bergur Thomas And-
erson kemur fram í kvöld og verður
boðið upp á bita af bitum nýrra
hugmynda hans í tónlist, að því er
segir í tilkynningu. Bergur leikur á
rafbassa með hljómsveitunum
Oyama og Grísalappalísu og er einn
hugmyndasmiða spunahópsins Sa-
gitaria Raga, auk þess að semja
tónlist en í hana sækir hann efnivið
í minningar, draumóra og frjálsan
spuna og einkennist flutningurinn
af samtali sem stöðugt er í þróun.
Annað kvöld kemur fram franski
sellóleikarinn Soizic Lebrat en
hann hefur leikið verk sitt „Bleu
Solo“ á fjölda listahátíða frá því
hún frumflutti það á Nexmap - Bin-
ary City hátíðinni í San Francisco
árið 2010.
Á laugardaginn er svo komið að
DÓH tríói sem skipað er ungum
mönnum og nýútskrifuðum úr Tón-
listarskóla FÍH. Liðsmenn DÓH
hafa leikið saman í hinum og þess-
um verkefnum og leggur tríóið
mikið upp úr dínamík, allt frá hvísl-
andi tónum upp í orkumikla
spennu, skv. tilkynningu. DÓH
leikur lög úr ýmsum áttum og þá
m.a. frumsamið efni þar sem spila-
gleði og spuni fær að njóta sín. Í
tríóinu eru Helgi Rúnar Heiðarsson
á saxófón, Daníel Helgason á gítar
og Óskar Kjartansson á trommur.
DÓH Tríóið leikur í menningarhúsinu Mengi á laugardaginn.
Fjölbreytt tónlist í Mengi
Er ástæða til að
vera hræddur
við það þegar
maður týnir sér
í skáldsagna-
lestri? Um það
fjallar Suzanne
Keen, prófessor
við Washington-
og Lee-háskóla, í
fyrirlestri sem
hefst kl. 12 í
dag, fimmtudag, í stofu 301 í
Árnagarði Háskóla Íslands. Fyr-
irlesturinn, sem fjallar um sam-
líðan og bókmenntir, er á vegum
Hugvísindastofnunar/Bókmennta-
og listfræðastofnunar og í sam-
starfi við Reykjavík − Bókmennta-
borg. Keen hefur árum saman
kannað samlíðan við lestur og árið
2007 kom út bók hennar Empathy
and the Novel (Samlíðan og skáld-
sagan). Fyrirlesturinn ber yf-
irskriftina „Lost in a Book: Emp-
athy and Immersion in Fiction“
(Niðursokkinn í bók: Samlíðan og
að hverfa inn í heim skáldskapar).
Hann verður fluttur á ensku og
eru allir velkomnir.
Óttinn við að
týnast í sögu
Suzanne
Keen
Gunnar Harð-
arson prófessor
flytur í dag,
fimmtudag
klukkan 16.30,
fyrirlestur um
áhrif Viktors-
klausturins í
París á Íslandi og
Norðurlöndum á
miðöldum. Fyrir-
lesturinn er hluti
af fyrirlestraröð Miðaldastofu Há-
skóla Íslands um klaustur og verð-
ur í stofu 301 í Árnagarði í HÍ.
Klaustur heilags Viktors var rétt
utan múra Parísar og mikið lær-
dómssetur á 12. öld. Íslendingar og
Norðmenn höfðu nokkur tengsl við
klaustrið. Hugsanlegt er að Þorlák-
ur helgi hafi dvalist þar, auk þess
sem Helgafellsklaustur var sagt
lúta Viktorsreglu á síðmiðöldum.
Um áhrif
klausturs
Gunnar
Harðarson
sturtusett
Hitastýrt
Verð frá kr. 66.900
Gæði fara aldrei úr tísku
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is SPAMALOT–„alveg konunglega skemmtilegt bull“ Morgunblaðið
SPAMALOT (Stóra sviðið)
Lau 5/4 kl. 19:30 18.sýn Lau 12/4 kl. 19:30 25. sýn Fös 2/5 kl. 19:30 28.sýn
Fim 10/4 kl. 19:30 23. sýn Sun 13/4 kl. 19:30 26. sýn Lau 3/5 kl. 19:30 29.sýn
Fös 11/4 kl. 19:30 24. sýn Lau 26/4 kl. 19:30 27.sýn
Salurinn veltist um af hlátri. Fáránlega skemmtilegt!
Svanir skilja ekki (Kassinn)
Lau 5/4 kl. 19:30 16.sýn Fös 2/5 kl. 19:30 21. sýn Fös 9/5 kl. 19:30 24. sýn
Lau 12/4 kl. 19:30 aukas. Lau 3/5 kl. 19:30 22. sýn Lau 10/5 kl. 19:30 25. sýn
Sun 13/4 kl. 19:30 17.sýn Mið 7/5 kl. 19:30 23. sýn
Nýtt verk eftir Auði Övu Ólafsdóttur um undarlegt eðli hjónabandsins.
Áfram Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 5/4 kl. 20:00 49.sýn Fim 10/4 kl. 20:00 51.sýn Fös 11/4 kl. 22:30 53.sýn
Lau 5/4 kl. 22:30 50.sýn Fös 11/4 kl. 20:00 52.sýn
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Litli prinsinn (Kúlan)
Lau 5/4 kl. 14:00 Frums. Sun 13/4 kl. 14:00 Sun 4/5 kl. 14:00
Lau 5/4 kl. 16:00 2.sýn Sun 13/4 kl. 16:00 Sun 4/5 kl. 16:00
Sun 6/4 kl. 14:00 3.sýn Sun 27/4 kl. 14:00
Sun 6/4 kl. 16:00 4.sýn Sun 27/4 kl. 16:00
Falleg sýning um vináttuna og það sem skiptir máli í lífinu.
Aladdín (Brúðuloftið)
Lau 5/4 kl. 13:00 20.sýn Lau 12/4 kl. 13:00 22.sýn
Lau 5/4 kl. 16:00 21.sýn Lau 12/4 kl. 16:00 23.sýn
1001 galdur. Brúðusýning fyrir 5 - 95 ára.
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Furðulegt háttalag –★★★★★ – BL, pressan.is
Furðulegt háttalag hunds um nótt (Stóra sviðið)
Lau 5/4 kl. 20:00 aukas Lau 3/5 kl. 20:00 Lau 24/5 kl. 20:00
Sun 6/4 kl. 20:00 11.k Sun 4/5 kl. 20:00 Lau 31/5 kl. 20:00
Fös 11/4 kl. 20:00 12.k Fim 8/5 kl. 20:00 Sun 1/6 kl. 20:00
Lau 12/4 kl. 20:00 13.k Fös 9/5 kl. 20:00 Fös 6/6 kl. 20:00
Sun 13/4 kl. 20:00 14.k Sun 11/5 kl. 20:00 Lau 7/6 kl. 20:00 lokas
Sun 27/4 kl. 20:00 15.k Fim 22/5 kl. 20:00
Mið 30/4 kl. 20:00 Fös 23/5 kl. 20:00
Ótvíræður sigurvegari Olivier Awards 2013. Umræður eftir sýningu lau 5. apríl
Skálmöld: Baldur (Stóra sviðið)
Mið 9/4 kl. 20:00 2.k Mið 23/4 kl. 20:00 4.k
Fim 10/4 kl. 20:00 3.k Fim 24/4 kl. 20:00 lokas
Epískir tónleikar með leikhúsívafi. Aðeins þessar sýningar!
BLAM (Stóra sviðið)
Þri 13/5 kl. 20:00 1.k Fös 16/5 kl. 20:00 4.k Sun 18/5 kl. 20:00 7.k
Mið 14/5 kl. 20:00 2.k Lau 17/5 kl. 20:00 5.k
Fim 15/5 kl. 20:00 3.k Sun 18/5 kl. 14:00 6.k
Margverðlaunað háskaverk Kristjáns Ingimarssonar. Aðeins þessar sýningar!
Dagbók Jazzsöngvarans (Nýja sviðið)
Mið 9/4 kl. 18:00 fors Fös 25/4 kl. 20:00 3.k Sun 4/5 kl. 20:00
Fim 10/4 kl. 18:00 gen Sun 27/4 kl. 20:00 4.k Fim 8/5 kl. 20:00
Fös 11/4 kl. 20:00 frums Fös 2/5 kl. 20:00 5.k Fös 9/5 kl. 20:00
Sun 13/4 kl. 20:00 2.k Lau 3/5 kl. 20:00 6.k
Nýtt verk frá CommonNonsense sem færðu okkur Tengdó, Grímusýningu ársins 2012
Ferjan (Litla sviðið)
Lau 5/4 kl. 20:00 5.k Fim 8/5 kl. 20:00 aukas Mið 28/5 kl. 20:00 30.k
Sun 6/4 kl. 20:00 6.k Fös 9/5 kl. 20:00 18.k Fim 29/5 kl. 20:00 31.k
Fös 11/4 kl. 20:00 7.k Sun 11/5 kl. 20:00 19.k Fös 30/5 kl. 20:00 aukas
Lau 12/4 kl. 20:00 8.k Mið 14/5 kl. 20:00 20.k Lau 31/5 kl. 20:00 32.k
Sun 13/4 kl. 20:00 aukas Fim 15/5 kl. 20:00 21.k Sun 1/6 kl. 20:00 33.k
Fös 25/4 kl. 20:00 9.k Fös 16/5 kl. 20:00 22.k Þri 3/6 kl. 20:00 34.k
Lau 26/4 kl. 20:00 10.k Lau 17/5 kl. 20:00 23.k Mið 4/6 kl. 20:00 35.k
Sun 27/4 kl. 20:00 11.k Sun 18/5 kl. 20:00 24.k Fim 5/6 kl. 20:00 aukas
Þri 29/4 kl. 20:00 12.k Þri 20/5 kl. 20:00 25.k Fös 6/6 kl. 20:00 36.k
Mið 30/4 kl. 20:00 aukas Mið 21/5 kl. 20:00 aukas Lau 7/6 kl. 20:00 37.k
Fös 2/5 kl. 20:00 13.k Fim 22/5 kl. 20:00 26.k Mið 11/6 kl. 20:00 38.k
Lau 3/5 kl. 20:00 14.k Fös 23/5 kl. 20:00 27.k Fim 12/6 kl. 20:00
Sun 4/5 kl. 20:00 15.k Lau 24/5 kl. 20:00 aukas Fös 13/6 kl. 20:00
Þri 6/5 kl. 20:00 16.k Sun 25/5 kl. 20:00 28.k
Mið 7/5 kl. 20:00 17.k Þri 27/5 kl. 20:00 29.k
Fyrsta leikrit Kristínar Marju eins ástsælasta rithöfundar þjóðarinnar
Hamlet litli (Litla sviðið)
Lau 12/4 kl. 14:00 frums Sun 27/4 kl. 14:30 3.k Sun 4/5 kl. 14:30 5.k
Sun 27/4 kl. 13:00 2.k Sun 4/5 kl. 13:00 4.k
Shakespeare fyrir alla fjölskylduna
★★★★ – SGV, Mblamlet
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Útundan (Aðalsalur)
Fim 10/4 kl. 20:00 Mán 14/4 kl. 20:00
Sun 13/4 kl. 20:00 Þri 15/4 kl. 20:00
Athugið! Takmarkaður sýningafjöldi og knappt sýningatímabil
Fyrirgefðu ehf. (Aðalsalur)
Fös 11/4 kl. 20:00
Spegilbrot (Hin ólíklegustu rými Tjarnarbíós)
Mið 16/4 kl. 20:00 Fös 25/4 kl. 20:00
Lau 19/4 kl. 20:00 Sun 27/4 kl. 17:30
Dagblaðið Los Angeles Times fjallar
um tökur á erlendum stórmyndum
hér á landi í grein á vef sínum undir
fyrirsögninni „Hollywood is hot for
Iceland“, þ.e. „Hollywood spennt
fyrir Íslandi“. Í greininni er fjallað
um þá grósku sem verið hefur hér á
landi sl. tvö ár í tökum á erlendum
kvikmyndum og sjónvarpsþáttum,
m.a. kvikmyndinni Noah og sjón-
varpsþáttunum Game of Thrones.
Blaðamaður ræddi við Einar Tóm-
asson, verkefnisstjóra Film in Ice-
land, sem staddur var í Los Angeles
í því skyni að vekja áhuga stjórn-
enda kvikmyndavera á Íslandi sem
tökustað, og hefur eftir honum að Ís-
lendingar segi stundum að Guð hafi
æft sig á Íslandi áður en hann skap-
aði aðra hluta jarðarinnar.
Morgunblaðið/Kristinn
Guðdómlegt Ísland heillaði leikstjóra Noah, Darren Aronofsky.
Guð æfði sig á Íslandi