Morgunblaðið - 03.04.2014, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 03.04.2014, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2014 -VOTTUÐ FRAMLEIÐSLA Smiðjuvegi 7 - 200 Kópavogi - Sími: 54 54 300 www.ispan.is - ispan@ispan.is Allt í gleri, bæði úti og inni SPEGLAR • SANDBLÁSTUR • SLÍPUN Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Annað árið í röð bjóðum við hér til kvikmyndaveislu og sýnum brot af því besta í norrænni kvikmynda- gerð,“ segir Þuríður Helga Krist- jánsdóttir, verkefnastjóri Norrænu kvikmyndahátíð- arinnar, en há- tíðin hefst í dag og stendur til 15. apríl. Að sögn Þur- íðar stendur Norræna húsið fyrir hátíðinni í samstarfi við norrænu sendi- ráðin á Íslandi og því er aðgangur ókeypis, en mynd- irnar eru allar sýndar með enskum texta. Fjórtan kvikmyndir Alls verða sýndar fjórtán myndir á hátíðinni sem allar eru nýjar eða nýlegar og hafa því ekki verið sýndar hérlendis áður nema ein þeirra. „Hátíðardagskráin er fjöl- breytt og boðið er upp á spennu, dramatík, gamanmyndir og fjöl- skyldumyndir,“ segir Þuríður og tekur fram að allir eigi því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. „Opnunarmynd hátíðarinnar er sænska kvikmyndin Monica Z í leik- stjórn Per Fly þar sem hin íslensk- ættaða Edda Magnason leikur aðal- hlutverkið auk þess sem Sverrir Guðnason leikur stórt hlutverk í myndinni,“ segir Þuríður, en þess má geta að þau hlutu á dögunum sænsku kvikmyndaverðlaunin, Gullbjölluna, fyrir leik sinn. Þrjár aðrar sænskar myndir verða sýndar og eru þær allar í dramatíska kantinum. Þar er um að ræða ævisöguna Dom över död man (Dómur dauðs manns) með Jesper Christensen og Pernilla August í aðalhlutverki, Himlen är oskyldigt blå (Himinninn er saklaus og blár) og spennumyndina Call Girl. Frá Noregi koma spennumyndin Pionér (Frumkvöðull) sem að hluta var tekin upp í Silfru á Þingvöllum, dramatíska myndin Jeg er din (Ég er þín) en meðal leikari í henni er Ola Rapace, rómantíska gaman- myndin Kyss meg, for faen i hel- vete (Kysstu mig, helvítis fíflið þitt) og fjölskyldumyndin Mormor og de åtte ungene (Amma og börnin átta). Sverrir í mynd August Frá Danmörku koma ævisagan Marie Krøyer í leikstjórn Bille Aug- ust með Birgitte Hjort Sørensen, Sören Sætter-Lassen og Sverri Guðnasyni í aðalhlutverkum, spennumyndin Skytten (Skyttan) með Kim Bodnia og Trine Dyrholm í aðalhlutverkum og fjölskyldu- myndin Fuglejagten (Fuglakeppnin mikla. Frá Finnlandi koma spennu- myndin Lärjungen (Lærisveinn- inn), gamandramað Miss Farkku- Suomi (Fröken bláar gallabuxur) og barnateiknimyndin Seitsemän veljestä (Sjö bræður). Allar nánari upplýsingar um myndirnar sem og dagskrá hátíð- arinnar má nálgast í heild sinni á vef Norræna hússins, nordice.is. Þess má að lokum geta að Monica Z verður að hátíð lokinni tekin til almennra sýninga í Laugarásbíói og er það eina hátíðarmyndin sem sýnd verður áfram. Verðlaunamynd Edda Magnason fer með aðalhlutverk Monicu Z. „Brot af því besta“  Norræn kvikmyndahátíð hefst í dag  Hin sænska Monica Z opnunarmynd Þuríður Helga Kristjánsdóttir Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Hátt í 500 listamenn frá um 20 löndum taka þátt í eða eiga verk á þessari viðamiklu og fjölbreyttu há- tíð, á yfir 60 tónleikum, leiksýn- ingum, kvikmyndasýningum, gjörn- ingum og myndlistarsýningum. Mörg verkanna eru samin sérstak- lega fyrir eða frumflutt á hátíðinni,“ sagði Hanna Styrmisdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík, á blaðamannafundi í Nýlistasafninu í gær þar sem dagskrá hátíðarinnar í ár var kynnt. Kynningin fór fram í miðri uppsetningu á myndlistarsýn- ingu Hreins Friðfinnssonar, æ ofan í æ, sem opnuð verður nk. laugardag, en hluti hennar verður á dagskrá hátíðarinnar. Listahátíð í Reykjavík, sem í ár ber titilinn Ekki lokið, verður sett 22. maí og lýkur 5. júní. „Mörg verk- efni teygja sig langt út fyrir tíma- ramma hátíðarinnar og Listahátíð fikrar sig einnig út fyrir borgar- mörkin, með viðburðum og sýn- ingum á Stykkishólmi, í Árborg og í Landsveit,“ sagði Hanna. Á fund- inum kom fram að lokaverk Listahá- tíðar, sem er eftir Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur, krefjist sérstakra veð- urskilyrða og verði því flutt undir beru lofti á tímabilinu 2.-5. júní. Á meðal þátttakenda í ár eru Michel Butor, Jamie Burton, Ólöf Nordal, Margrét Bjarnadóttir, Ragnar Kjartansson, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, Arto Lindsay, Sidsel Endresen, Nordic Affect, Tinna Þorsteinsdóttir og Margrét Vil- hjálmsdóttir. „Opnunartónleikar Listahátíðar í Hörpu hverfast um sögu og endur- sköpun. Kammersveit Reykjavíkur leitar aftur á bak og áfram í nýrri tónleikainnsetningu í kringum flutn- ing Pierrot lunaire Schönbergs og frumflutning á nýju verki Atla Heimis Sveinssonar. Þá tekur við mikil tónlistarveisla í Hörpu með tónleikum stórsöngvarans Bryns Terfels, píanóundursins Khötiu Buniatishvili, flutningi Kammerkórs Suðurlands á Sonnettum Taveners sem fékk afar lofsverða dóma eftir frumflutning í London í haust, tón- listargjörningi Sonic Youth- mannsins Lees Ranaldos með Leuh Singer, heimsfrumflutningi á nýju verki Önnu Þorvaldsdóttur, sérpönt- uðu af bandaríska tónlistarhópnum International Contemporary En- semble og síðast en ekki síst flutn- ingi Sinfóníuhljómsveitar Íslands undir stjórn Osmos Vänskäs á stór- virkinu Þriðju sinfóníu Mahlers.“ Ný kvikmynd Barney Í máli Hönnu kom fram að sam- starf listamanna að umfangsmiklum verkefnum er áberandi á hátíðinni. Þannig verður River of Fundament, kvikmynd eftir myndlistarmanninn Matthew Barney og tónskáldið Jon- athan Bepler, sem tók sjö ár í vinnslu, sýnd í Laugarásbíói aðeins einu sinni. Í samtali við Morgun- blaðið sagði Hanna að samningarnir við Barney hefðu verið þeir um- fangsmestu þetta árið og tók fram að mikill fengur væri að þátttöku hans í Listahátíð. Aðspurð sagði Hanna rekstrar- kostnað Listahátíðar í ár nema 101 milljón króna. „Listahátíð í Reykja- vík er umfangsmesta listahátíð á landinu. Hún er rekin með fram- lögum frá stofnaðilum sem eru ríki og borg, en byggir að lágmarki 37% tekna sinna á þessu ári á miðasölu- tekjum og framlögum bakhjarla og annarra styrktaraðila,“ sagði Hanna og benti á að sjálfboðaliðastarf lista- manna og aðstoðarmanna þeirra vægi þungt í undirbúningi og fram- kvæmd viðburða. Á fimmta tug hátíða eru haldnar hérlendis á þessu ári og því lá beint við að spyrja Hönnu með hvaða hætti Listahátíð í Reykjavík marki sér sérstöðu. „Listahátíð í Reykja- vík hefur meira bolmagn en aðrar hátíðir og á að skera sig úr. Hún nær t.d. yfir lengri tíma en aðrar há- tíðir og við getum lagt meira í fram- leiðslu verkefna. Eitt hlutverk hátíð- arinnar er að færa hingað það besta af hinu alþjóðlega sviði, sem ég held að við séum að gera myndarlega þetta árið, og líka að leiða saman ís- lenska og erlenda listamenn og hvetja til nýsköpunar,“ sagði Hanna. 500 listamenn frá um 20 löndum taka þátt  Ekki lokið er yfirskrift Listahátíðar í Reykjavík árið 2014 Morgunblaðið/Þórður Listrænn stjórnandi Hanna Styrmisdóttir kynnti dagskrá Listahátíðar í Reykjavík í Nýlistasafninu, en yfir 60 viðburðir eru á dagskrá þetta árið. Fyrsta fimmtudag í mánuði kynnir Listasafn Íslands í samstarfi við 700IS Hreindýraland vídeólista- mann mánaðarins. „Að þessu sinni mun franski lista- maðurinn Renaud Perrin sýna myndina Lettres à la mer í kaffi- stofu safnsins við Fríkirkjuveg 7. Í kvikmyndinni eru línur og lögun dregin ramma fyrir ramma með „stop-motion animation“ tækni. Myndbandið fjallar um örlög spænsks flóttamanns í Marseille, undir lok 4. áratugar síðustu aldar. Vatnið gufar upp sem tákn um firr- ingu og gleymsku, sem endurspegl- ast í sendibréfunum; bréf sem aldrei komust á leiðarenda,“ segir í til- kynningu frá skipuleggjendum. Aðr- ir sem komu að gerð kvikmyndar- innar eru Julien Telle sem er meðleikstjóri og John Deneuve sem sá um tónlistina. Aðrar myndir eftir Perrin sem sýndar verða eru: De- voiko og Des Rides, eða Hrukkur. Sýningin hefst kl. 17 og er að- gangur ókeypis. Samkvæmt upplýsingum frá skipuleggjendum eru vídeósýning- arnar á kaffistofunni samstarfsverk- efni Listasafns Íslands og 700IS Hreindýralands sem standa munu til 27. nóvember. „Sýningunum er ætl- að að efla vídeólist í landinu og skapa vettvang fyrir umræður.“ Allar nánari upplýsingar um Perr- in eru á vef listamannsins: lettre- salamer.blogspot.fr/. Vídeólist Úr mynd franska listamannsins Renaud Perrin, Lettres à la mer. Lettres à la mer í Listasafni Íslands

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.