Morgunblaðið - 03.04.2014, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 03.04.2014, Blaðsíða 35
entsprófi frá FNV 1994, útskrifaðist þá sem svæðisleiðsögumaður á Norð- urlandi vestra, var í öðrum árgangi kennaranema sem útskrifuðust frá HA 1997 og stundar nú MA-nám þar. Kristín vann mörg sumur á Ketil- ási, hóf kennaraferilinn í Heiðarskóla í Leirársveit og vann um tíma hjá Skessuhorni. Nóg að gera á Hólmavík Um aldamótin flutti fjölskyldan til Hólmavíkur þar sem Kristín hélt áfram kennslu, var jafnframt bóka- vörður hjá Strandabyggð, verk- efnastjóri hjá Fræðslumiðstöð Vest- fjarða, fréttaritari Morgunblaðsins og Bændablaðsins, gaf út Gagnveg, héraðsfréttablað, um tveggja ára skeið, bætti við sig námi í svæðis- leiðsögn um Vestfirði og Dali, sinnti aukastörfum á Sauðfjársetrinu, upp- lýsingamiðstöðinni og tók tvisvar að sér framkvæmdastjórn Ham- ingjudaga. Þá hefur þessi fjölhæfa og starfsama kona tekið að sér veislu- stjórn þegar mikið liggur við. Fjölskyldan flutti á Sauðárkrók fyrir réttu ári. Þar er Kristín blaða- maður hjá Feyki og stundar MA- námið af kappi sem hún sér nú loks fyrir endann á: „Eitt af því sem mig langar að gera í framtíðinni er að vinna meira við ferðaleiðsögn og geta lóðsað ferðamenn um allt Norður- landskjördæmi vestra.“ Kristín var forseti nemendafélags FNV seinni veturinn þar. Hún sat í hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps eitt kjörtímabil og jafnframt í fjölmörg- um stjórnum, nefndum og ráðum. „Blaðamennskan og námið gefa ekki mikinn tíma fyrir áhugamál þessa dagana. En ég hef gaman af hannyrðum, einkum prjónaskap, bók- menntum, ferðalögum og útivist. Fyrir fáeinum árum fór ég að ganga á fjöll og er óendanlega þakk- lát Fjalla-Steina, vini mínum, sem kynnti mig fyrir uppheimum fjalla og tinda. Stefnan er tekin á fleiri tinda í nánustu framtíð. Þó er fátt sem topp- ar það að eyða gæðastundum með fjölskyldu og vinum.“ Fjölskylda Eiginmaður Kristínar er Alfreð Gestur Símonarson, f. 12.8. 1965, vaktmaður hjá Steinull og í auka- starfi hjá Steypustöð Skagafjarðar. Foreldrar hans eru Símon Ingi Gestsson, ráðsmaður á Bæ á Höfða- strönd, og Heiðrún Guðbjörg Al- freðsdóttir, húsfreyja þar. Þau bjuggu lengst af á Barði í Fljótum. Synir Kristínar og Alfreðs eru Jó- hannes Helgi Alfreðsson (stjúpsonur Kristínar) f. 7.6. 1988, fiskvinnslu- maður á Stykkishólmi og eru dætur hans Louisa Lind, f. 2006, og Íris Lilja, f. 2012; Einar Friðfinnur, f. 26.1. 1996, nemi við FNV og starfs- maður á N1; Símon Ingi, f. 14.7. 1998, nemi í Árskóla. Systkini Kristínar eru Anna Guðný Sigurgeirsdóttir (sammæðra) f. 3.10. 1962, kennari á Akureyri; Gísli Ein- arsson, f. 26.1. 1967, fréttamaður í Borgarnesi; Sigríður Einarsdóttir, f. 17.2. 1969, hjúkrunarfræðingur í Noregi; Brynjólfur Óskar Einarsson, f. 10.7. 1970, málari í Noregi; Ástríður Einarsdóttir, f. 29.1. 1976, kennari í Noregi. Foreldrar Kristínar eru Auður Sig- urrós Óskarsdóttir, f. 10.10. 1941, sjúkraliði á Lundi og Akranesi, og Einar Gíslason, f. 7.11. 1944, vélvirki á Lundi og Akranesi. Úr frændgarði Kristínar Sigurrósar Einarsdóttur Kristín Sigurrós Einarsdóttir Steinunn Bjarnadóttir húsfr. á Geitabergi Sigríður Jónsdóttir húsfr. á Lundi Gísli Brynjólfsson b. á Lundi Einar Gíslason vélv. á Lundi og Akranesi Brynjólfur Einarsson b. á Hrafnabjörgum Ástríður Þorláksdóttir húsfr. á Hrafnabjörgum Gísli Einarsson fréttamaður á RÚV Sigfinnur Árnason sjóm. í Vestmannaeyjum Júlía Sigurðardóttir húsfr. í Vestmannaeyjum Óskar Sigfinnsson skipstj. og starfsm. Skeljungs í Nesk.st. og í Rvík Guðný Þóra Þórðardóttir húsfr. í Nesk.st. og í Rvík Auður Sigurrós Óskarsdóttir húsfr. og sjúkral. á Lundi og Akranesi Bergþóra Óskarsdóttir húsfr. í Rvík Edda Garðarsdóttir landliðsmaður í knattspyrnu Þórður Benediktsson sjóm. í Nesk.st. Kristín Björg Jóhannesd. verkak. í Nesk.st. Jón Pétursson b. á Geitabergi Helga Pétursdóttir húsfreyja á Draghálsi Sveinbjörn Beinteinsson allsherjargoði Afmælisbarnið Kristín Sigurrós. ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2014 Nína Sveinsdóttir leikkonafæddist að Fitjum í Miðnes-hreppi 3.4. 1899. Foreldrar hennar voru Sveinn Gunnlaugsson, útvegsbóndi í Hamarskoti, Fálka- húsum, að Fitjum og á Flankastöð- um, og k.h., Hlaðgerður Gísladóttir húsfreyja. Nína var listamannsnafn en hún hét fullu nafni Jónína Þorbjörg Sveinsdóttir. Nína giftist 1920 Einari Jónssyni, yfirprentara og einum af stofn- endum Steindórsprents. Hann var líka mikill áhugamaður um tónlist, var einn af stofnendum Lúðrasveitar Reykjavíkur 1922 og lék á píanó. Synir Nínu og Einars, Bragi og Guðjón, voru báðir lærðir prentarar eins og faðir þeirra, og urðu báðir tónlistarmenn eins og foreldrarnir. Bragi, sem lést 1994, lék á klarinett um árabil, m.a. með Bjarna Böðv- arssyni, en Guðjón, sem lést 2004, lék á píanó og lengi á básúnu. Þeir bræðurnir léku m.a. saman í Sveiflu- sextettinum, sem lék djass og Dixie- land-tónlist. Guðjón lék knattspyrnu með Val, var knattspyrnudómari og radíóamatör en var ekki síst þekktur sem fréttaljósmyndari á Tímanum. Nína var prýðileg söngkona, söng ung í kirkjukór Fríkirkjunnar og í kórum hjá Páli Ísólfssyni. Nína hóf sinn leikferil í Meyjar- skemmunni hjá Leikfélagi Reykja- víkur 1934. Eftir það lék hún mjög mikið hjá Leikfélagi Reykjavíkur, varð feikilega vinsæll revíuleikari og tók þátt í revíusýningum í Iðnó og Sjálfstæðishúsinu. Þar munaði ekki minnst um óborganlegan gaman- söng hennar. Aðrar þekktar gaman- og revíuleikkonur frá þessum árum voru þær Emelía Jónasdóttir og Áróra Halldórsdóttir en þessar þrjár leikkonur fóru oft á kostum saman. Nína lék í fjölda útvarpsleikrita, í sjónvarpsleikritum og þremur kvik- myndum, frá árdögum íslenskrar kvikmyndagerðar. Það voru kvik- myndirnar Milli fjalls og fjöru, 1949; Síðasti bærinn í dalnum, 1950, og 79 af stöðinni, 1962. Nína lést 29.10. 1979. Merkir Íslendingar Nína Sveinsdóttir 95 ára Ólöf Jónsdóttir 85 ára Gunnar Guttormsson Gyða Ebba Salómonsdóttir Hólmfríður Gestsdóttir Hrefna L. Kvaran Jóna Snæbjörnsdóttir Ragna Þorleifsdóttir 80 ára Sigurdís Erla Eiríksdóttir Sigurlaug Helgadóttir Þorgerður Hermannsdóttir 75 ára Erna Sveinbjörnsdóttir Guðbjörg Ásgeirsdóttir Ragnheiður B. Stefánsdóttir 70 ára Eiríkur Jón Ingólfsson Óli Knöttur Ásgeirsson Viðar Bjarnason Þórunn Huld Nielsen 60 ára Brandur Steinar Guðmundsson Kjartan Jónsson Ólafía Arinbjörnsdóttir Svala Guðjónsdóttir Sverrir Sverrisson 50 ára Agnes Vilhelmsdóttir Ásta Sigríður Guðmundsdóttir Bára Denny Ívarsdóttir Gréta Rögnvaldsdóttir Gunnlaug Guðmundsdóttir Hrafnhildur Eiríksdóttir Lórenz Þorgeirsson Magnea Þóra Rögnvaldsdóttir María Harðardóttir Ómar Gunnarsson Selim Poroshtica Unnur María Rafnsdóttir 40 ára Hallgrímur Friðrik Sigurðsson Hallur Egilsson Margrét Halldórsdóttir Mihaela Daniela Boitan Sigmar Bech Randýjarson Smári Rafn Teitsson 30 ára Ásdís Ósk Valsdóttir Bára Dröfn Kristinsdóttir Eyrún Valþórsdóttir Jarinya Seelanak Jónas Snæbjörnsson Jón Ragnar Vilhjálmsson Júlía Katrín Björke Stella Rögn Sigurðardóttir Til hamingju með daginn 30 ára Jóhann ólst upp í Reykjavík, hefur starfað við smíðar og önnur til- fallandi störf við bygg- ingar á undanförnum ár- um og starfar nú í múrverki hjá Fagmúr ehf. Foreldrar: Guðlaug Jó- hannsdóttir, f. 1961, var lengi smurbrauðsdama og starfar við veitinga- húsarekstur, og Kristinn Sigurjón Jónsson, f. 1958, d. 2012, lengst af starfs- maður við ljósritunarstof- una Samskipti. Jóhann Helgi Kristinsson 30 ára Gústaf ólst upp í Reykjavík, er þar búsettur og er sölustjóri hjá Mó- bergi. Maki: Rósa Jónsdóttir, f. 1983, sjúkraþjálfari. Börn: Ásgeir Karl Gúst- afsson, f. 2008, og Björn Jón Gústafsson, f. 2012. Foreldrar: Björn Gúst- afsson, f. 1950, verkfræð- ingur, og Herborg Ívars- dóttir, f. 1948, hjúkrunar- fræðingur. Þau eru búsett í Reykjavík. Gústaf Smári Björnsson 30 ára Íris lauk kennara- prófi frá KHÍ, burtfarar- prófi í söng frá Söngskól- anum í Reykjavík og stundar hárgreiðslunám. Maki: Atli Jóhannsson, f. 1982, í MA-námi í íslensku og meistaraflm. í knatt- spyrnu hjá Stjörnunni. Dætur: Sara, f. 2008, og óskírð, f. 2014. Foreldrar: Hjördís Guð- bjartsdóttir, f. 1957, og Elías Weihe Stefánsson, f. 1953. Íris Elíasdóttir Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón HJARTASTUÐTÆKI Veit á vandaða lausn Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00 Fastus ehf. • Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is F A S TU S _H _1 0. 02 .1 4 Powerheart er alsjálfvirkt hjartastuðtæki sem gefur leiðbeinandi fyrirmæli á íslensku til notandans ásamt því að birta leiðbeinandi texta á skjá. Fjögurra ára ábyrgð á rafhlöðu. Veggfesting fylgir með. Verð kr. 229.000,- m.vsk. • Nauðsynlegt tæki þegar sekúndur skipta máli • Alsjálfvirkt hjartastuðtæki með fyrirmæli á íslensku

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.