Morgunblaðið - 03.04.2014, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.04.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2014 Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 |www.eirvik.is Elica háfar Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Mikil spenna er fyrir afhjúpun kappakstursbíls íslenska keppnis- liðsins í Formula Student- háskólakeppninni. Keppnin er haldin einu sinni á ári og fer fram á hinni frægu Silverstone- keppnisbraut í Bretlandi í sumar. Í íslenska liðinu eru nemendur í verkfræðideildum Háskóla Ís- lands og þeir hanna og smíða bíl- inn, sem verður afhjúpaður á Há- skólatorgi klukkan 17 í dag. Ragnheiður Björk Halldórs- dóttir, liðsstjóri, segist fyrst og fremst vera stolt af öllum sínum liðsfélögum á þessum tímamótum enda hafi gífurleg vinna farið í hönnun og smíði bílsins. „Nú taka við prófanir og fínstillingar í samstarfi við ökumennina.“ Bíll- inn gengur fyrir rafmagni og gætt var að því að nota umhverf- isvænar aðferðir og efni við smíði hans. Unnið dag og nótt að smíði kappakstursbíls Morgunblaðið/Ómar Til stendur að lengja Arnarnesveg- inn verulega þannig að hann liggi frá Garðabæ í Breiðholt í Reykjavík og hefjast framkvæmdir í ár. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri samgönguáætlun til ársins 2016 sem Hanna Birna Kristjáns- dóttir innanríkisráðherra lagði fram sem þingsályktunartillögu á mánu- daginn. Vegarkaflinn liggur um land Kópavogs, Garðabæjar og Reykja- víkur, vegagerðin hefur staðið til um hríð, en ekki orðið af framkvæmdum fyrr en nú, t.d. voru umhverfisáhrif vegarkaflans metin árið 2006. Til stendur að gera kafla frá Reykjanesbraut að Fífuhvammsvegi í ár og næsta ár. Nýi vegarkaflinn verður hluti af Arnarnesvegi og mun liggja frá stóra hringtorginu á Reykjanesbraut, til móts við Hlíða- smára og þaðan til austurs, þar sem áður var hesthúsahverfið við Reykjanesbraut, norðan við golfvöll- inn í Vetrarmýri í Garðabæ og niður í Salahverfi meðfram kirkjugarðin- um í Kópavogi og tengjast þar vegi sem þegar ber heitið Arnarnesveg- ur. Kostnaður við framkvæmdirnar er áætlaður 100 milljónir í ár og 500 milljónir á næsta ári. Eftir nokkur ár er síðan áformað að halda áfram með framkvæmdir, þá mun vegurinn halda áfram í átt að Breiðholtsbraut, liggja á milli Vatnsendahvarfs og efsta hluta Seljahverfis og tengjast þar Breið- holtsbrautinni. Kostnaður við þær framkvæmdir er áætlaður 600 millj- ónir. Spennandi vegur Jónas Snæbjörnsson, fram- kvæmdastjóri þróunarsviðs hjá Vegagerðinni, segir að ekki sé búist við mikilli umferð við veginn næstu árin. Hann verði einbreiður í báðar áttir. „En síðan þegar hann verður tengdur áfram yfir á Breiðholts- braut, sem er áætlað að gerist eftir sex ár, þá er komin býsna góð teng- ing frá suðurhluta höfuðborgar- svæðisins og austur á land, upp á Suðurlandsveg við Rauðavatn,“ seg- ir Jónas. „Þetta verður mjög spenn- andi vegur.“ annalilja@mbl.is Breiðholtsbraut Lengri Arnarnesvegur Garðabær Kópavogur Hnoðraholt Vífilsstaðavatn Golfvöllur Elliðavatn Vatnsendahvarf Vat nse nda veg ur Skíðasvæði Jað ars el Vífilsstaðavegur Re yk ja ne sb ra ut Kirkjugarður Salavegur Rjúpnavegur Rjúpnahæð Fífuhvam m svegur Garðabær Kópavogur Grunnkort/Loftmyndir ehf. Ný leið úr Garðabæ í Breiðholt Framkvæmdastjóri Keilis leggur til að kennsla í unglingadeildum grunnskólanna á Reykjanesi og Fjölbrautaskóla Suðurnesja hefjist klukkan níu á morgnana í staðinn fyrir rúmlega átta. Tillöguna setur hann fram á málþingi sem Keilir og Hið íslenska svefnrannsóknafélag standa fyrir í dag. Hjálmar Árnason vekur athygli á því að rannsóknir sýni að unglingar þurfi átta til níu tíma svefn á sólar- hring. Það sé hættulegt fyrir heilsu þeirra ef það náist ekki í langan tíma. „Öllum ber saman um að þau ná ekki nauðsynlegum svefni. Hvað er til ráða? Koma þeim fyrr í rúmið á kvöldin? Það er fullreynt, allir foreldrar þekkja það. Þá verður að huga að því hvenær þau fara á fæt- ur,“ segir Hjálmar og bætir því við að hálft gagn sé að kenna illa sofn- um unglingum. Hann segir að Framhaldsskólinn á Laugum hefji kennslu klukkan níu og það hafi reynst vel. Þá getur hann um rannsókn í bandarískum skóla sem sýni að meira en tvöfalt fleiri nemendur hafi náð lágmarks svefni eftir að upphafi skóladags var frestað um 25 mínútur. „Tilgangur minn er að vekja um- ræðu. Ég fæ viðbrögð á málþinginu og úr því geta fræðsluyfirvöld og skólastjórnendur unnið,“ segir Hjálmar. helgi@mbl.is Unglingar fái að lúra lengur  Tillaga um seinkun kennslu að morgni Morgunblaðið/Ernir Hvíld Unglingar þurfa fullan svefn. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Lélegur vatnsbúskapur á hálendinu kostar hita- veitu HS veitna í Vestmannaeyjum rúmar 100 milljónir króna, ef skrúfað verður fyrir rafmagn til veitunnar í tvo mánuði eins og nú er útlit fyrir. Það mun að lokum bitna á notendum, að sögn forsvars- manns hitaveitunnar. Fjarvarmaveitan sem HS veitur reka í Vest- mannaeyjum er að stofni til hraunvarmaveita sem sett var á laggirnar eftir gos. Hún hefur verið rek- ið með ótryggðri orku frá Landsvirkjun frá 1988. Ívar Atlason, tæknifræðingur hjá HS veitum, seg- ir að það hafi gengið vel. Aðeins einu sinni hafi komið til skerðingar og þá í stuttan tíma. Olían margfalt dýrari Vegna þess hversu hratt gengur á vatnsforða virkjana Landsvirkjunar hefur verið gripið til skerðingar á ótryggðri orku til stórnotenda og dreifiveitna. Þannig var skrúfað fyrir rafmagnið til fjarvarmaveitunnar í Vestmannaeyjum 1. mars og nú er útlit fyrir að skerðingin standi út apríl, að minnsta kosti. Fjarvarmaveitan er því kynt með olíu og það er fimm til sex sinnum dýrara en ótryggða raforkan, að sögn Ívars. Hann segir að ef skerðingin standi út apríl kosti það veituna rúmar 100 milljónir kr. aukalega. Ívar segir óumflýjanlegt að þessi kostnaður muni hafa einhver áhrif á notendur með breyt- ingum á gjaldskrá fyrirtækisins en ekkert hafi verið ákveðið um hver þau verði eða hvenær þau komi fram. „Það er grátlegt að þurfa að keyra hitaveituna á olíu, það eyðir gjaldeyri þjóðarinnar og mengar,“ segir Ívar en bætir því við að vonandi breytist að- stæður á hálendinu svo hægt verði að hefja sem fyrst notkun innlendra orkugjafa. Yfir 100 milljóna kr. högg  Fjarvarmaveita HS veitna í Vestmannaeyjum kynt með olíu vegna skerðingar á raforku þar sem vatnsbúskapur Landsvirkjunar er lakari en verið hefur í mörg ár Skrúfað fyrir » Vegna veðurfars í vetur hef- ur innrennsli í Þórisvatn og Blöndulón verið lítið og miðl- unarforði Landsvirkjunar á Suður- og Norðurlandi er minni en verið hefur um árabil. » Stórnotendum var tilkynnt um skerðingu á umframorku en hún er almennt um 10% hjá álverunum. » Þá var skrúfað fyrir raf- orkusölu til fjögurra kaupenda sem reka kyndistöðvar á nokkrum þéttbýlisstöðum á landsbyggðinni og þeim gert að nota varaafl. Á næstu dögum mun Orkuveita Reykjavíkur hefja niðurdælingu brennisteinsvetnis, sem hreinsað hefur verið úr útblæstri Hellisheið- arvirkjunar, en tilraunarekstur hreinsistöðvar er hafinn við virkj- unina. Í tilkynningu frá Orkuveit- unni kemur fram að vegna dæling- arinnar telji vísindamenn að auknar líkur verði tímabundið á að jarð- skjálftar verði á niðurdælingarsvæð- inu. Slíkir jarðskjálftar gætu náð þeirri stærð að fyndist vel í byggð. Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, segir að bæjarstjórnin fagni því að Orkuveitan sé að reyna að losna við brennisteinsmengunina sem fylgi virkjuninni, en að það sé ekki hægt að vera annað en ósátt ef því fylgi jarðskjálftar. „Það er þó já- kvætt að þeir séu með upplýs- ingagjöf, þannig að íbúar viti hvað sé í vændum, því að oftast nær er það óvissan sem er verst í svona löguðu.“ sgs@mbl.is Skjálfta- hætta eykst tímabundið  OR dælir niður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.