Morgunblaðið - 03.04.2014, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2014
Sigmundur Davíð Gunnlaugssonforsætisráðherra leyfði sér að
bregðast við nýrri skýrslu um lofts-
lagsmál með því að benda á að þrátt
fyrir að í skýrslunni kæmu fram
dekkri spár en fyrr og að á heildina
litið væru horfur
neikvæðar, þá fæl-
ust ákveðin tæki-
færi í þessari þróun
fyrir Ísland.
Sigmundur Davíðer langt því frá
sá fyrsti sem bendir
á að áhrif loftslagsbreytinga yrðu
ekki hin sömu um allan heim. Og
hann er ekki heldur fyrstur til að
benda á að á norðurslóðum kunni
að skapast tækifæri.
En af því að þetta var Sigmund-ur Davíð þá stukku ýmsir til
og hófu vanstilltar og vanhugsaðar
árásir. Látið var sem það væri mik-
ið hneyksli að forsætisráðherra
skyldi leyfa sér að sjá nokkurt tæki-
færi í þessari stöðu.
Og ekki er annað að skilja á sum-um hinna vanstilltu en að það
að nýta tækifæri sem skapist mögu-
lega sé beinlínis rangt eða í það
minnsta að um það megi ekki tala.
Sem er kannski mergurinn máls-ins. Að mati tiltekins hóps fólks
er það að verða svo að ákveðnir
menn mega helst ekki tjá sig og
ákveðnar skoðanir mega helst ekki
heyrast.
Og ef þær heyrast, þá fara þess-ar skoðanalöggur af stað og
reyna að ráðast af nægilegri heift á
viðkomandi til að hann láti sér það
að kenningu verða og lúti eftirleiðis
vilja hópsins.
Er ekki orðið tímabært fyrirunnendur málfrelsis að
spyrna við fæti?
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Skoðanalöggurnar
STAKSTEINAR
Aðalfundur Samtaka ferðaþjónust-
unnar, SAF, fer fram fimmtudaginn
10. apríl nk. og þá verður í fyrsta
sinn sérstök kosning um nýjan for-
mann samtakanna, sem stofnuð voru
árið 1998. Tveir hafa lýst yfir fram-
boði, þeir Grímur Sæmundsen, for-
stjóri Bláa lónsins, og Þórir Garð-
arsson, starfandi stjórnarformaður
og framkvæmdastjóri sölu- og mark-
aðssviðs Iceland Excursions - Allra-
handa ehf.
Kjörnefnd bar að skila inn til-
lögum að nýrri stjórn minnst tveim-
ur vikum fyrir aðalfund en þar sem
tveir lýstu yfir framboði til formanns
stjórnar ákvað kjörnefnd að taka
ekki afstöðu til þeirra heldur láta
fara fram kosningu meðal fé-
lagsmanna, að því er segir á vef
SAF. Framboðsfrestur rennur út
tveimur dögum fyrir aðalfund.
Bæði Grímur og Þórir hafa að
baki langa reynslu í ferðaþjónustu
hér á landi, sem orðin er stærsta út-
flutningsgrein þjóðarinnar. For-
menn SAF hingað til hafa á einn eða
annan hátt tengst stærsta fyrirtæki
ferðaþjónustunnar, Icelandair og áð-
ur Flugleiðum en frá 1998 hafa
Steinn Logi Björnsson, Jón Karl
Ólafsson og Árni Gunnarsson gegnt
embættinu.
Grímur og Þórir hafa gegnt ýms-
um trúnaðarstörfum í þágu ferða-
þjónustunnar, bæði innan SAF og
Samtaka atvinnulífsins. Áherslur
þeirra í formannskjörinu eru birtar
á vef SAF. bjb@mbl.is
Grímur
Sæmundsen
Þórir
Garðarsson
Kosið um
formann í
fyrsta sinn
Aðalfundur hjá
SAF 10. apríl
Veður víða um heim 2.4., kl. 18.00
Reykjavík 8 skýjað
Bolungarvík 4 skýjað
Akureyri 4 skýjað
Nuuk -10 skýjað
Þórshöfn 6 skýjað
Ósló 7 heiðskírt
Kaupmannahöfn 6 skýjað
Stokkhólmur 6 heiðskírt
Helsinki 2 skýjað
Lúxemborg 17 heiðskírt
Brussel 20 heiðskírt
Dublin 10 alskýjað
Glasgow 7 alskýjað
London 16 heiðskírt
París 18 heiðskírt
Amsterdam 17 heiðskírt
Hamborg 18 heiðskírt
Berlín 17 heiðskírt
Vín 18 léttskýjað
Moskva 0 heiðskírt
Algarve 16 léttskýjað
Madríd 12 skýjað
Barcelona 16 léttskýjað
Mallorca 21 léttskýjað
Róm 17 léttskýjað
Aþena 17 heiðskírt
Winnipeg -11 heiðskírt
Montreal 3 alskýjað
New York 8 alskýjað
Chicago 5 skýjað
Orlando 24 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
3. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:38 20:25
ÍSAFJÖRÐUR 6:38 20:35
SIGLUFJÖRÐUR 6:21 20:18
DJÚPIVOGUR 6:07 19:55