Morgunblaðið - 03.04.2014, Síða 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2014
Hollar vörur úr náttúrunni
Íslensk framleiðsla
H-Berg efh | S. 565-6500
hberg@hberg.is | hberg.is
NÝTT!
...sem þola álagið!
TRAUSTAR VÖRUR...
VIFTUR
Í MIKLU ÚRVALI
Það borgar sig að nota það besta!
• Bor›viftur
• Gluggaviftur
• I›na›arviftur
• Loftviftur
• Rörablásarar
• Ba›viftur
• Veggviftur
Sími: 540 7000 • www.falkinn.is
FRÉTTASKÝRING
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Hvalaskoðun yfir vetrartímann
hefur færst í vöxt síðustu ár en
framboðið er mjög háð veðri og
fjölda ferðamanna. „Við fórum
einar 6-7 ferðir í desember og
eitthvað svipað í janúar en ekki
margar ferðir í febrúar, þá var
leiðindaveður hvern einasta dag,“
segir Freyr Antonsson, fram-
kvæmdastjóri Arctic Sea Tours á
Dalvík, en fyrirtækið ákvað síðast-
liðið vor að bjóða upp á ferðir all-
an ársins hring.
Freyr segir vertíðina hafa verið
að lengjast en yfir vetrartímann
sé fátt um ferðamenn. Hann segir
það synd, því nóg sé að sjá. „Frá
byrjun mars og fram í miðjan
mars voru tvö- til þrjúhundruð
höfrungar hérna og einn til tveir
hnúfubakar að elta loðnu; mjög
mikið líf og mikið show,“ segir
hann.
Hann segir nánast hægt að
ganga að hnúfubaknum vísum all-
an ársins hring en í fyrra sást til
hans í 94% ferða. „Það spyrst út,“
segir hann. „Það eru fleiri aðilar
farnir að kveikja á því að það er
hægt að fara í Eyjafjörðinn alveg
eins og Skjálfanda. Þessi svæði
eru álíka góð og mjög góð á
heimsvísu.“
Freyr segir vorið fara vel af
stað og útlitið fyrir sumarið sé
gott en fyrirtækið fór með alls
6.400 ferðamenn í hvalaskoðun
2013. „Ég held að um 14.000
manns hafi farið í hvalaskoðun í
Eyjafirði í fyrra. Þá voru fjögur
fyrirtæki að bjóða upp á hvala-
skoðun. Árið áður voru þetta 7-8
þúsund, þannig að þetta er hell-
ings aukning,“ segir hann.
80-200 ferðamenn á dag
Elding í Reykjavík hefur boðið
upp á hvalaskoðun yfir vetrartím-
ann frá 2008. Rannveig Grétars-
dóttir, framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins, segir vetrarútgerðina
talsvert meira fyrirtæki en sumar-
siglingarnar og á veðrið ekki síst-
an þátt í því. Bátarnir eru færðir
frá Reykjavík og milli hafna eftir
þörfum, ýmist til Grindavíkur,
Keflavíkur eða Sandgerðis, sem
kallar á að farþegar séu fluttir á
milli með rútum. Þá gerist það að
hvalirnir láta hvergi á sér kræla.
„Veturinn byrjaði frekar erfið-
lega og ég held að það hafi aldrei
verið eins lítið að sjá og í nóv-
ember. En þetta er búið að vera
alveg stórkostlegt síðustu vik-
urnar, mikið af hvölum,“ segir hún
en ástæðan fyrir aukningunni í
dýralífinu er einföld. „Það bara
kom loðna inn á flóann og henni
fylgja alltaf hnúfubakar og meira
líf. Og hrefnan er komin, þannig
að við erum farin að sjá í hana.“
Rannveig segir hnúfubakinn það
skemmtilegasta sem ferðamenn-
irnir sjá en höfrungarnir koma
einnig sterkir inn, sérstaklega
þegar þeir eru tugir eða jafnvel
hundruð. Hún segir aðsókn í ferð-
ir hafa aukist um 35% milli ára frá
áramótum en nóvember og desem-
ber hafi verið lélegir. Að jafnaði
hafi Elding siglt með 80-200 ferða-
menn á dag í vetur, þegar veður
leyfði.
Ánægðari á veturna
Rannveig segir athyglisvert að
ferðamenn virðast almennt
ánægðari með ferðirnar á veturna
en á sumrin.
„Það er kannski af því að vænt-
ingarnar eru minni; þú ert að
koma til Íslands að vetri til og það
er snjór og þú ert kannski ekki að
búast við því að sjá hval. Vænting-
arnar eru kannski ekki eins og á
sumrin, þegar það er sól og fullt
af fólki,“ segir hún. Hún segir fólk
þolinmóðara og alltaf jafn hissa.
„Við finnum muninn á sumrin
og veturna, kúnnarnir eru þakk-
látari. Það er oft þannig að ef við
sjáum ekki hvali þá bjóðum við
fólki að koma aftur frítt og fólk
nýtir sér þetta finnst mér meira á
veturna. Því þá hefur það tíma,
það er ekki eins mikið bókað. Það
er ekki þetta prógram alla daga,
það hefur séns á því að koma ann-
an dag.“
Hvalaskoðun líka vin-
sæl yfir vetrartímann
Magnað Hnúfubakurinn er mikilfengleg skepna og stórkostleg upplifun að
komast í návígi við dýrið. Höfrungavöður eru ekki síður tilkomumikil sjón.
Ljósmynd/Arctic Sea Tours
Návígi Vinsældir hvalaskoðunar við Eyjafjörð fara vaxandi og Arctic Sea
Tours hyggst framvegis sigla árið um kring. Freyr segir sumarið líta vel út.
Nóg að sjá í Eyjafirði Þakklátir og ánægðir ferðamenn