Morgunblaðið - 03.04.2014, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2014
Þann 13. mars síðast-
liðinn var birt opið bréf
frá undirrituðum til Rík-
isskattstjóra varðandi
skattalega meðferð
gjafagjörnings sem
Seðlabankastjóri þáði af
almannafé með ákvörð-
un þáverandi banka-
ráðsformanns. Bréfi
þessu svaraði Rík-
isskattstjóri með út-
úrsnúningum daginn eftir og má skilja
á svari hans að hann átti sig hreinlega
ekki á því að æðsti dómstóll landsins er
Hæstiréttur og dómum hans verður
ekki áfrýjað til æðri dómstóla hér á
landi. Staðreyndir málsins eru þær að
Seðlabankastjóri höfðaði einkamál
gegn vinnuveitanda sínum, Seðlabanka
Íslands, og tapaði hann málinu hvoru
tveggja fyrir Héraðsdómi og í Hæsta-
rétti. Dómurinn kvað á um að máls-
kostnaður félli niður en það þýðir í
raun að hvor aðili ber sinn kostnað af
málarekstrinum. Það þarf þá vart að
orðlengja það að dómstólar hafa þá
kveðið upp ótvíræðan úrskurð um það
með hvaða hætti kostnaður í heild sinni
við málareksturinn skiptist á þá aðila
sem deildu. En nú vill Elítan leggjast í
einhverjar túlkanir um að þrátt fyrir
úrskurð dómstóla um hver skuli bera
hvaða hluta málskostnaðarins þá þurfi
að líta til þess hvor aðilinn hefði haft
ríkari hagsmuni af því að fá niðurstöðu
í málinu. Með þessari arfavitlausu rök-
leysu sé þannig hægt að bjarga þeim
aðilanum sem stofnaði til málaferlanna
og tapaði algjörlega frá því tjóni sem
hann olli sjálfum sér. Við skulum hafa í
huga að hann olli vinnuveitanda sínum
líka kostnaði sem dómstólar úr-
skurðuðu að félli á mótaðilann þrátt
fyrir tap málshefjanda.
Ríkisskattstjóri telur
greinilega sig og aðra
Elítumeðlimi þess um-
komna að efast um nið-
urstöðu dómstóla og
ganga í raun gegn dóms-
orðum. Fyrir tæpum
tveimur áratugum tók
undirritaður að sér störf
fyrir íslenskt fyrirtæki
ásamt tugum annarra
samlanda sinna í verkefni
vegna umsjónar með
rekstri útgerðar, vinnslu
og markaðssetningar í fjarlægu landi.
Auk hefðbundinna launa fengu starfs-
menn þessir greidda dagpeninga ná-
kvæmlega í samræmi við skattmat Rík-
isskattstjóra á þeim tíma.
Skattyfirvöldum hugnaðist hins vegar
ekki að veita þessum aðilum skattfrá-
drátt sem var þó nákvæmlega sam-
kvæmt reglum Ríkisskattstjóra. Svo
fór að mál þetta endaði fyrir dómstólum
og fóru leikar þannig að Hæstiréttur
úrskurðaði í raun að ekki hefði borið að
skilja reglur Ríkisskattstjóra eins og
þær voru útgefnar af embættinu heldur
eingöngu að uppfylltum nokkrum öðr-
um skilyrðum sem þó hvergi var að
finna á prenti í nokkrum doðröntum
embættisins. Í þessum málum var
málskostnaður ákveðinn af dómstól-
unum með sama hætti og í því máli sem
hér um ræðir. Í þessu máli voru það
augljóslega mun ríkari hagsmunir emb-
ættis Ríkisskattstjóra að fá niðurstöðu
varðandi þennan ágreining en okkar
sem stofnuðu til málarekstursins. Rétt
er að geta þess að þrátt fyrir hagfellda
niðurstöðu dómstóla fyrir Ríkisskatt-
stjóra í þessu máli sá embættið ekki
ástæðu til að skattleggja Elítuna í sam-
ræmi við þá niðurstöðu. Þrátt fyrir
þessa ríku hagsmuni sem Ríkisskatt-
stjóri hafði af því að fá niðurstöðu í
þessum ágreiningi rekur mig ekki
minni til þess að hafa borist endur-
greiðsla Ríkisskattstjóra fyrir þeim
kostnaði sem ég ásamt félögum mínum
varð fyrir af völdum málarekstursins.
Eftir því sem árin hafa færst yfir hef ég
tamið mér sífellt fínlegra orðfæri og
kallaði því af hógværð minni í fyrra
bréfi umræddan gjörning sem Seðla-
bankastjóri naut góðs af gjafagjörning.
Eftir lestur svars Ríkisskattstjóra er
mér hins vegar ljóst hve óskaplega sið-
blindur hann og hans líkar eru og sé því
ekki ástæðu til að tala lengur um þetta
undir rós. Auðvitað er hér um að ræða
hreinan og kláran þjófnað. Tæknilega
séð var hann ekki framinn beint af
Seðlabankastjóra heldur bankaráðs-
formanni á þessum tíma. Það breytir
því hins vegar ekki að þeim sem veitti
umræddu þýfi viðtöku hlýtur að hafa
verið ljóst að ekki var eðlilegt að veita
umræddum fjármunum móttöku, þó
ekki sé litið til annars en þess hvaða
stöðu hann gegnir. Almenningi svíður
nóg að horfa upp á að þeir sem gæta
eiga fjármuna ríkisins skuli stinga þeim
í eigin vasa þó ekki þurfi þeir líka að
horfa upp á að viðkomandi fái að halda
þýfinu að öllum sjáandi án þess að
þurfa einu sinni að greiða skerf af feng
sínum til samfélagsins á sama hátt og
þeir sem hafa framfærslu sína af því að
vinna heiðarlega fyrir sér.
Ríkisskattstjóri og Hæstiréttur
Eftir Örn
Gunnlaugsson »Ríkisskattstjóri telur
greinilega sig og
aðra Elítumeðlimi þess
umkomna að efast um
niðurstöðu dómstóla og
ganga í raun gegn
dómsorðum.
Örn Gunnlaugsson
Höfundur er atvinnurekandi.
Borgartúni 27
Hæð til leigu í
BYGG býður til leigu glæsilegt skrifstofuhúsnæði á 4. hæð á
einum besta stað í bænum, Borgartúni 27.
Hæðin sem er 853 fermetra leigist í einu lagi eða hlutum, allt
eftir þörfum.
Upplýsingar hjá Fjárfestingu fasteignasölu í síma 562 4250
og hjá Gylfa í sími 693 7300.