Morgunblaðið - 03.04.2014, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2014
SVO ÞÆGILEGIR
AÐ ÞÚ GETUR
GENGIÐ
ENDALAUST.
HVER ÆTLI SÉ
SÁTTUR VIÐ
ÞAÐ.
Þú færð GO walk skó í
Skór.is, Kringlunni og Smáralind | Steinar Waage, Kringlunni og
Smáralind | Intersport, Reykjavík | Dion, Glæsibæ | Skóhöllinni Firði,
Hafnarfirði | Versl. Nína, Akranesi | Blómsturvellir, Hellisandi |
Heimahornið, Stykkishólmi | Hafnarbúðin, Ísafirði | Skóhúsið, Akureyri
| Skóbúð Húsavíkur, Húsavík | Sentrum, Egilstöðum | Lónið, Höfn í
Hornafirði | Skóbúð Selfoss, Selfossi | Axel Ó, Vestmanneyjum | Palóma,
Grindavík | Skóbúðin, Keflavík
Það ætti að vera
stjórnendum slíks
stórfyrirtækis ærið
umhugsunarefni þegar
mikill meirihluti
starfsmanna þess er
reiðubúinn að fara í
átök við vinnuveitanda
sinn svo unnt verði að
semja um sanngjarnar
tillögur til kjarabóta.
Umræddir starfs-
menn eru nú með lausa samninga og
hafa stéttarfélög þeirra, Félag flug-
málastarfsmanna ríkisins (FFR),
SFR, Stéttarfélag í almannaþjón-
ustu og Landssamband slökkviliðs-
og sjúkraflutningamanna (LSS) lagt
fram kröfugerð eins og venjan er
við slíkar aðstæður. Viðræður hóf-
ust í desember en var vísað til ríkis-
sáttasemjara í lok febrúar.
Stjórnendur Isavia ohf. hafa kosið
að fara þá leið að fela sig í pilsfaldi
Samtaka atvinnulífsins sem ákveða
kúrsinn fyrir sína
fylgihnetti og allir
fylgja þeir mögl-
unarlaust.
Þar er ekki verið að
líta til baka og spyrja
sig hvernig viðkomandi
fylgihnöttur hefur hag-
að málum síðustu miss-
erin. Enginn tími fyrir
slíkt. Mikilvægara er
að fylgja stefnunni. Í
þeim viðræðum sem
FFR, SFR og LSS
hafa átt við SA sem
koma fram fyrir Isavia ohf. hefur
þessi afstaða oftsinnis komið fram.
Það er ekkert svigrúm til að bæta,
leiðrétta eða taka tillit til sérkrafna
starfsmanna. Slíkum kröfum ætíð
svarað á sama hátt. Svigrúmið er
ekkert!
Þessum kúrs eru félagsmenn okk-
ar ósammála og hafa því ákveðið að
leggja áherslur á kröfur sínar með
því að boða vinnustöðvanir í apríl,
þá fyrstu að morgni 8. apríl nk. Að-
gerðirnar munu ná til alls landsins
og hafa mikil áhrif. Mest verða þau
á Keflavíkurflugvelli. Þar starfa
flestir starfsmenn Isavia ohf. Vinna
verður stöðvuð í fimm klukkustund-
ir að morgni. Ljóst er að tafir og
seinkanir verða á millilandaflugi
þennan dag.
Stjórnendur Isavia hafa rekið
harða starfsmannastefnu síðustu ár.
Gríðarlegar skipulagsbreytingar
hafa verið framkvæmdar og hafa
starfsmenn farið í þessar breytingar
með fyrirtækinu. Oft með semingi,
enda hefur ekki alltaf verið auðvelt
að umbylta öllu og aðlagast nýjum
vinnubrögðum og vinnuumhverfi.
Mjög oft hafa stéttarfélögin bent
á að sígandi lukka sé best, hafa ósk-
að eftir því að hægara verði farið í
stærstu umbyltingarnar, en þau
varnaðarorð hafa verið hundsuð.
Stjórnendum hefur ítrekað verið
bent á það álag sem starfsmenn
verða fyrir við hina gríðarlegu fjölg-
un ferðamanna til landsins. Þeim
ábendingum hafa stjórnendur ekki
haft tíma til þess að sinna, enda
uppteknir við að stækka Leifsstöð
vegna sömu farþegafjölgunar. Alltaf
verða sömu stjórnendur svo undr-
andi þegar þeir sjá niðurstöður við-
horfskannanna sem gerðar eru
reglulega meðal starfsmanna. Þó
ættu þeir að vera orðnir vanir út-
komunni enda er niðurstaðan ætíð
sú sama. Óánægja með stjórnendur
og stefnu. Mesta óánægjan er iðu-
lega á sama vinnustaðnum (þeim
fjölmennasta), Keflavíkurflugvelli,
þar sem álagið er hvað mest. Í stað
þess að leitast við að finna úrlausnir,
eru frekar gerðar fleiri kannanir
sem vonandi færa ábyrgðina á hend-
ur millistjórnendum.
Aðalfundur Isavia ohf. er í dag.
Ný stjórn tekur við. Vonandi leið-
réttir sú stjórn kúrsinn sem fyr-
irtækið hefur fylgt undanfarin ár. Í
þeim kúrs hefur hvorki verið tekið
tillit til skerja eða boða heldur böðl-
ast yfir alla fyrirstöður.
Ný stjórn Isavia ohf. hefur um
tvo möguleika að velja þegar kemur
að því að marka þá starfsmanna-
stefnu sem fylgja skal. Stjórnin get-
ur ákveðið að fylgja áfram átaka-
leiðinni, sem stjórnendur Isavia
hafa hingað til fylgt. Ákvarðanir eru
teknar og lítið tillit er tekið til skoð-
ana starfsmanna og stéttarfélaga
þeirra. Í þeirri stefnu kristallast
andúð stjórnenda á stéttarfélögum
starfsmanna. Þau eru að þeirra mati
hindrun á veginum og tímaskekkja.
Best væri, að þeirra mati, að enginn
væri í stéttarfélagi. Enda hafa þeir
unnið markvisst að því að koma
fólki úr verkalýðsfélögunum.
Hin leiðin er sáttaleiðin. Þar er
hlustað á sjónarmið starfsmanna,
þeirra sömu og á hátíðlegum stund-
um eru kallaðir „auður fyrirtæk-
isins“. Sú leið virkar þegar hlustað
er á tillögur stéttarfélaganna enda
eru þær byggðar á samtölum þeirra
sem leggja fram kröfurnar og þeirra
sem vinna verkin.Við óskum eftir
þessari umræðu. Fari þessi umræða
fram og báðir aðilar viðurkenna að
þeir eru ekkert hvor án annars á
Isavia ohf. von um bjarta framtíð.
Nýrri stjórn Isavia ohf. óska ég
velfarnaðar og vænti góðs sam-
starfs.
Nýrrar stjórnar ríkishlutafélags-
ins Isavia bíður ærið verkefni
Eftir Kristján
Jóhannsson » Stjórnendur Isavia
ohf. hafa kosið að
fara þá leið að fela sig í
pilsfaldi Samtaka at-
vinnulífsins sem ákveða
kúrsinn fyrir sína fylgi-
hnetti og allir fylgja þeir
möglunarlaust.
Kristján Jóhannsson
Höfundur er formaður Félags flug-
málastarfsmanna ríkisins.
Samningur Samein-
uðu þjóðanna um rétt-
indi fatlaðs fólks
(SRFF) var undirrit-
aður fyrir Íslands hönd
í marsmánuði 2007.
Markmið hans er að
tryggja fötluðu fólki
mannréttindi til jafns
við ófatlað fólk á öllum
sviðum samfélagsins.
Til að samningurinn
hafi áhrif þarf að inn-
leiða efni hans í íslensk
lög. Því miður geta íslensk stjórn-
völd ekki státað af því að hafa náð
því takmarki og stefna raunar í að
verða meðal síðustu valdhafa aðild-
arríkja samningsins til að innleiða
efni hans í lagabálka sína.
SRFF er mikilsvert framfara-
skref að því takmarki að tryggja
réttindi fatlaðs fólks. 19. grein samn-
ingsins fjallar um sjálfstæða búsetu,
félagslega þjónustu og rétt til þátt-
töku í samfélaginu.
Fyrri liður greinarinnar segir að
fatlaðir einstaklingar skuli hafa val
um hvar, hvernig og með hverjum
þeir búa. Að þeim verði ekki gert að
eiga heima þar sem tiltekið búsetu-
form ríkir. Fæstir gera sér grein fyr-
ir því hvað ný byggingarreglugerð
er mikilsvert framlag til réttindabar-
áttu fatlaðs fólks. Reglugerðin gerir
fötluðu fólki á Íslandi kleift að eiga
val um búsetu.
Engu að síður er
víða pottur brotinn
varðandi aðgengi. Auð-
vitað á aðgengi að vera
í lagi alls staðar. Fatl-
aðir einstaklingar eiga
að geta farið í versl-
anir, í heimsókn til
ömmu, vina eða
barnanna sinna án
vandkvæða. Við byggj-
um öll þetta land og
eigum öll að hafa tæki-
færi til að taka þátt í
og hafa áhrif á sam-
félagið. Forsendan fyr-
ir því er að gera þjóð-
félagið aðgengilegt, þannig að fatlað
fólk geti t.d. tekið þátt í viðburðum
tengdum börnum sínum eða komist
inn á vinnustað eins og annað fólk.
Í seinni hluta greinarinnar segir
að fatlað fólk skuli hafa aðgang að
margskonar félagsþjónustu s.s. að-
stoð inni á heimili og í búsetuúrræð-
um og öðrum stuðningi til sam-
félagsþátttöku. Í því felst
persónulegur stuðningur til að geta
lifað og tekið þátt í samfélaginu án
aðgreiningar. Ég er ekki ein um að
telja að notendastýrð, persónuleg
aðstoð (NPA) gagnist fötluðu fólki
best til að uppfylla þetta. Reynslan
af NPA sem tilraunaverkefni sveit-
arfélaganna lofar góðu, úrræðið hef-
ur reynst manneskjulegt og veru-
lega valdeflandi í víðum skilningi
þess orðs.
NPA byggist á hugmyndafræð-
inni um sjálfstætt líf (Independent
living) sem á rætur sínar að rekja til
mannréttindabaráttu fatlaðs fólks á
8. áratug 20. aldarinnar. Hugmynda-
fræðin er að allar manneskjur, óháð,
eðli og alvarleika skerðingar, geti
tekið eigin ákvarðanir, stjórnað eigin
aðstoð og mótað eigin lífsstíl. Að fatl-
að fólk eigi rétt á að ákveða og velja
sjálft sína þjónustu, stjórna eigin lífi
og taka virkan þátt í samfélaginu. Í
raun færist valdið frá þjónustukerf-
inu yfir til fatlaðs fólks með NPA.
Von mín er sú að NPA verði lögfest
sem meginform þjónustu við fatlað
fólk í árslok 2014 eins og stefnt hefur
verið að.
Áðurnefnd 19. grein veitir fötl-
uðum einstaklingi vald til að taka
einföldustu ákvarðanir sem ófatl-
aður einstaklingur teldi algjörlega
sjálfsagða s.s. að fara út í búð, fara í
bað, fara í skóla, baka heima hjá sér,
halda matarboð o.s.frv. Fötluðu fólki
yrði gert auðveldara og í sumum til-
fellum kleift að sækja nám að eigin
vali og stunda vinnu. Því yrði gert
kleift að þroskast í sama umhverfi og
ófatlaðir einstaklingar, þar sem fötl-
unin er ekki lengur hindrun og and-
legt framlag/geta einstaklingsins
yrði skýrara. Fatlaðir einstaklingar
myndu öðlast nýja sýn á lífið. NPA
stuðlar að innihaldsríkara lífi fatl-
aðrar manneskju og hvetur hana til
dáða með þeim afleiðingum að fram-
lag persónunnar og hún sjálf verður
skýrari en fötlunin.
Fatlað fólk vonar að innleiðing
SRFF lyfti grettistaki í réttindabar-
áttu þess. Með 19. greininni er fötl-
uðu fólki rétt mikið réttlætistól. Þeir
sem hafa neistann í sér til að verða
gerendur í eigin lífi koma raunveru-
lega til með að geta það. „Kerfið“
mun eiga erfiðara með að gleypa
fatlaða einstaklinga og fötlunarvæða
þá enn frekar. Þeir munu rísa upp og
skila sér öflugri út í lífið.
Að ráða eigin lífi,
búsetu og búðarferðum
Eftir Þuríði Hörpu
Sigurðardóttur
Þuríður Harpa
Sigurðardóttir
» Sorglegt að taka af
fötluðu fólki ákvörð-
unarréttinn um sjálf-
sagða þætti daglegs lífs,
eins og að fara í bað, í
skóla, í búð eða halda
matarboð.
Höfundur er framkvæmdastjóri Ný-
prents ehf. og fulltrúi í nefnd ÖBÍ um
kynningu á SRFF.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar
greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að
nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í
samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið
birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni for-
síðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn
"Senda inn grein" er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá
sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferl-
inu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að
slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að
senda greinar allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í
síma 569-1100 frá kl. 8-18.