Morgunblaðið - 03.04.2014, Page 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2014
Raðauglýsingar
Tilkynningar
Norðurþing
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Ketilsbraut 7–9 – 640 Húsavík
Tillögur að breytingu
deiliskipulags athafnasvæðis á Höfða í
Norðurþingi
Bæjarstjórn Norðurþings auglýsir hér með
til almennrar kynningar tillögu að breytingu
deiliskipulags athafnasvæðis á Höfða á
Húsavík.
Gildandi deiliskipulag svæðisins var sam-
þykkt í bæjarstjórn Húsavíkur 21.12. 1999 og
taldist þá svæðið iðnaðarsvæði. Svæðið telst
nú athafnasvæði A2 í Aðalskipulagi Norður-
þings 2010–2030. Breyting skipulagsins felst
í samræmingu við nýlega samþykkta breyt-
ingu aðalskipulags Norðurþings vegna veg-
tengingar frá Húsavíkurhöfn að iðnaðar-
svæði á Bakka. Athafnasvæði A2 skerðist
vegna fyrirhugaðrar jarðgangagerðar um
Húsavíkurhöfða. Breytingin kemur fram í
skerðingu tveggja lóða, Höfða 8 og Höfða 10,
auk skerðingar grænna svæða. Óbyggðu
lóðirnar að Höfða 6 og 8 eru sameinaðar í
eina, Höfða 6-8, og jafnframt gert ráð fyrir að
sú lóð verði tímabundið nýtt undir vinnu-
búðir vegna framkvæmda.
Tillaga að deiliskipulagsbreytingunni verður
til sýnis á bæjarskrifstofu Norðurþings að
Ketilsbraut 7–9 á Húsavík frá 3. apríl til 9. maí
2014. Ennfremur verður hægt að skoða
breytingartillöguna á heimasíðu Norðurþings
(nordurthing.is). Þeim sem eiga hagsmuna
að gæta er gefinn kostur á að gera athuga-
semdir við tillöguna til og með föstudeginum
9. maí 2014. Skila skal skriflegum athuga-
semdum til bæjarskrifstofu Norðurþings að
Ketilsbraut 7-9 á Húsavík. Þeir sem gera ekki
athugasemdir við tillöguna teljast henni
samþykkir.
Húsavík, 28. mars 2014,
Gaukur Hjartarson,
skipulags- og byggingarfulltrúi.
Smáauglýsingar 569 1100
Gisting
Svefnpokagisting
á Stokkseyri
Svefnpokagisting fyrir
litla og stóra hópa.
Frábær staðsetning og stutt
í fjölbreytta afþreyingu.
Eldunaraðstaða og stór
verönd með grillaðstöðu.
arthostel@arthostel.is
854 4510
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Teg. 23001 Vandaðir og þægilegir
herraskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 39–48. Verð: 17.985.
Teg. 204203 Vandaðir og þægilegir
herraskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 39–48. Verð: 16.985.
Teg. 455201 Vandaðir og þægilegir
herraskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 39–48. Verð: 17.975.
Teg. 505602 Vandaðir og þægilegir
herra-inniskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 40–47. Verð: 12.885.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán.– föst. 10–18,
laugardaga 10–14.
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bílar
Til sölu Toyota Corolla, árg. 1998
1600cc, sjálfskipt., 5 dyra hatchback
Verð: Tilboð. Uppl.í síma: 776 4950.
2009 Peugeot Expert sendibíll.
1,6 L Diesel. Ekinn aðeins 26 þús. km.
Plata í botni. Klæddur að innan. Sem
nýr. Til sýnis á staðnum.
Verð án vsk. 2.290 þús.
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
Hópbílar
Bjóðum hópferðabíla frá 8-67 farþega.
Guðmundur Tyrfingsson ehf
gt@gtbus.is www.gtbus.is
S. 568-1410 / 482-1210
Hópferðabílar til leigu
með eða án bílstjóra
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
NICOLAI
BIFREIÐASTILLINGAR
Faxafeni 12 Sími 588-2455
Véla- og hjólastillingar
Tímareimar - Viðgerðir
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD - árg. 2012.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Einkamál
ICELAND HELP!
Please help me gain political
asylum in your country. I am an
American who is like Bobby Fis-
cher. I would never be a burden
on the social system.
ayslum-please@hushmail.com
Thanks Dave
Í dag kveðjum
við Jón Snorra, tré-
smið og forystu-
mann bygginga-
manna til langs tíma, bæði í
Trésmiðafélagi Reykjavíkur og
úti á landi með störfum sínum í
Sambandi byggingamanna. Með
Jóni Snorra er að hverfa kyn-
slóðin sem leiddi íslenska verka-
lýðshreyfingu á sjötta, áttunda
og níunda ártugnum og lagði
grunn að svo mörgu sem við bú-
um að í dag.
Það var öflug sveit manna
sem skipaði forystusveit tré-
smiða í Reykjavík á sjöunda ára-
tugnum, Jón Snorri, Benedikt
Davíðsson, Sigurjón Pétursson
og Helgi Guðmundsson sem síð-
ar varð forystumaður trésmiða á
Akureyri. Það er stór spurning
hvort slík forystusveit hafi verið
uppi í öðru stéttarfélagi á Ís-
landi á sama tíma, eins og var í
Trésmiðafélagi Reykjavíkur á
þessum tíma. Það höfðu verið
mikil pólitísk átök í félaginu um
nokkurt skeið áður en Jón
Snorri var kjörinn formaður fé-
lagsins og það hefur ekki verið
árennilegt að leggja til atlögu
við þessa samhentu sveit þrátt
fyrir ólíka einstaklinga.
Jón Snorri leiddi hópinn enda
formaður Trésmiðafélagsins og
hvar sem hann fór fundu menn
fyrir kraftinum í honum, hann
var einhvern veginn sjálfskipað-
ur að leiða hópinn hvort sem það
var í baráttunni, í söng eða
skemmtiferð til fjalla.
Á þessum tíma voru fundir í
Trésmiðafélagi Reykjavíkur fjöl-
mennir, töluvert um skemmtanir
á vegum félagsins og ferðalög
sem félagsmenn tóku virkan þátt
í. Þar sem menn komu saman
naut Jón Snorri sín, smitaði út
frá sér með framkomu sinni,
frískleika og góðri framkomu
bæði í samtali manna á milli og
ekki síst í ræðustól.
Seinustu árin sem Jón Snorri
starfaði fyrir stéttarfélög bygg-
ingamanna var hann fram-
kvæmdastjóri Sambands bygg-
ingamanna sem síðar varð
Samiðn, sem voru landssamtök
byggingamanna og náðu til alls
landsins.
Á þessum árum var Jón
Snorri virkur í norrænu sam-
starfi fyrir byggingamenn og
sótti fjölmörg þing , ráðstefnur
og sat í stjórn NBTF, sem eru
samtök byggingamanna á Norð-
urlöndunum. Á þeim vettvangi
naut Jón sín, enda sjálfsöruggur
og óragur að beita sér ef með
þurfti og átti auðvelt með að
kynnast fólki.
Það er merkilegt hvað margir
góðir leiðtogar hafa þurft að
berjast við brennivínið og það lét
Jón Snorra ekki í friði og kom í
veg fyrir að hann tæki skrefið að
fullu inn í íslenska pólitík en
hann hafði allt til þess að bera
að láta að sér kveða á þeim vett-
vangi. En í glímunni við þennan
fjanda sýndi Jón Snorri mikinn
styrk og reisn þegar hann setti
tappann í flöskuna og byggði
upp nýtt lífsmynstur. Það er á
slíkum stundum sem styrkur
manna kemur hvað skýrast
fram, hvort viljinn eða fíknin eigi
að ráða. Jóni Snorri sigraði í
þessari baráttu og átti gott líf
síðustu áratugina, ætíð hress,
kátur og hafði frá mörgu að
segja og hvar sem hann kom var
hann miðdepill umræðunnar.
Við í Samiðn sendum fjöl-
skyldu Jóns Snorra okkar bestu
Jón Snorri
Þorleifsson
✝ Jón Snorri Þor-leifsson fædd-
ist 3. júní 1929.
Hann andaðist 21.
mars. 2014. Jón
Snorri var jarð-
sunginn 28. mars
2014.
kveðjur og vitum að
hans er saknað en á
slíkum stundum er
gott að hafa í huga
að hann mun lengi
lifa í minningunni.
Þorbjörn
Guðmundsson.
Á unglingsárum
veitti ég athygli
myndum í dagblöð-
unum af ungum, sviphreinum og
snarlegum manni með þéttan og
óstýrilátan hármakka. Hann
leiddi stórt og öflugt verkalýðs-
félag sem bróðir minn var í og
launabaráttan virtist aldrei taka
enda. Verkalýðshreyfinguna
þurfti að endurskipuleggja og
laga að nýjum tímum; nýtt Ís-
land var í deiglunni. Efla þurfti
faglega þekkingu og félagslega
vitund innan hreyfingarinnar,
auka samskipti við fagbræður og
-systur, opna glugga til annarra
landa; verkefnin voru ærin og
ungi maðurinn virtist alltaf vera
þar sem grettistökum var lyft.
Og pólitíkin lét ekki slíkan mann
ósnortinn og hann bar fyrir vikið
oftar fyrir augu mér í blöðunum.
En það þurfti að huga að fleiru,
fjölskyldur stækkuðu og það
þurfti að byggja yfir þær hús og
íbúðir. Óvænt skerast leiðir okk-
ar á kosningaskrifstofu Krist-
jáns Eldjárns í Árbæjarhverf-
inu, ungi maðurinn grúfir sig
yfir spjaldskrárkassa, gefandi
fyrirmæli á báðar hendur; við
erum sem sagt orðnir nágrann-
ar, landnemar í nýju úthverfi.
Þetta var í fyrsta sinn sem ég sá
hann sjálfan.
Síðan liðu þrír áratugir, ver-
öld okkar hvors um sig, sem var,
tók kollsteypu og margt breytt-
ist. Ný veröld reis og Ragnheið-
ur mín leiðir mig til fundar við
föður sinn sem er kominn yfir
Sundið frá Svíþjóð til þess að
hitta okkur í Kaupmannahöfn.
Ég stend frammi fyrir hvíthærð-
um, svipsterkum eldri manni, ei-
lítið lotnum, og leita unga
mannsins í djúpum andlitsdrátt-
unum. Á þeirri stundu hófust
raunveruleg kynni okkar sem
hafa staðið í tæpa tvo áratugi.
Jón Snorri var jarðbundinn
og ódeigur baráttumaður; hvort-
tveggja í senn, harður af sér og
hjartahlýtt góðmenni. Harðastur
var hann sjálfum sér. Líf hans
var lengstum helgað umhyggju
fyrir öðrum og þau ár sem við
áttum samleið var hann vakandi
yfir velferð fjölskyldu sinnar
heima og erlendis, ræktaði
tengslin við börn sín og barna-
börn af alúð og árvekni. Hann
var örlátur, ætíð boðinn og bú-
inn að taka til hendinni ef leysa
þurfti verkefni sem féllu að hans
sérkunnáttu. Hann var félags-
vera, hafði yndi af samneyti við
aðra; samræðan var hans list-
form. Fæðingarsveit hans í
Dýrafirði var honum hugstæð og
þangað beindu hann og systur
hans öllum afkomendum sínum
nokkur sumur og leiddu þau um
grösugar engjar dalanna þar
sem forfeðurnir bjuggu áður.
Jón Snorri á þúfunni með gjall-
arhornið að lýsa ferðum Gísla
Súrssonar verður þeim ógleym-
anlegt sem á vettvangi voru.
Hann kom hingað til dóttur
sinnar að Mosfelli til þess að
deyja, líkt og Egill forðum; hing-
að komu líka börnin hans öll,
barnabörnin og systir hans; þau
önnuðust hann, studdu hann,
hlúðu að honum og vöktu yfir
honum uns yfir lauk. Hann
kvaddi sáttur og var hafinn úr
húsi undir söng sinna nánustu.
Silfur hans er fólgið í afkom-
endum hans; þar blasir það við
öllum.
Sigurgeir
Steingrímsson.