Morgunblaðið - 03.04.2014, Side 36

Morgunblaðið - 03.04.2014, Side 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2014 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Félagslífið gefur þér bæði orku og góðar hugmyndir. Ekki er allt gull sem glóir. Oft er betra að fara sér hægt og meta hlut- ina út frá kyrrum huga. 20. apríl - 20. maí  Naut Þér er brýn nauðsyn á að sýna hóf á hverjum hlut. Ef þú fylgist ekki með hlut- unum áttu á hættu að sitja eftir. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Sjálfsöryggi þitt er slíkt, að menn kynnu að taka það fyrir hroka. Þú sérð hlut- ina í skýrara ljósi en samferðamenn þínir. Það er hæfileiki. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það kostar ekkert að vera örlátur á annarra fé. Gamall vinur hefur samband og vill endunýja kynnin, þú ert efins. Gefðu þér tíma til að íhuga málið. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Líttu á björtu hliðarnar og gerðu þér sem flest að gamni. Hlýddu innsæinu, þann- ig verður þú bráðskemmtileg/ur. Þér eru all- ir vegir færir. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú færð að reyna sitthvað nýtt sem hefur varanleg áhrif á líf þitt. Brettu frekar upp ermarnar og helltu þér ótrauð/ur út í starfann og þér mun vinnast betur en þú áttir von á. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þig langar svo að njóta athygli vinnu- félaga þinna að þú ert reiðubúinn að leggja ýmislegt á þig hennar vegna. Mundu að manngæskan er öllu æðri. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú tekur reglur ekki alvarlega, og vilt geta samið um allt. Mundu að þiggja aðstoð með jákvæðum huga. Láttu mögu- leika þína til menntunar ekki verða þér fjöt- ur um fót. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú þarft að skipuleggja tímann þinn miklu betur en þú gerir nú þar sem þú kemst ekki yfir þá hluti sem þér ber að vinna. Ástvinur vill fara sínu fram og gera það sem honum sýnist. 22. des. - 19. janúar Steingeit Allt sem þú tekur þér fyrir hend- ur gengur upp. Stígðu varlega til jarðar. Ef það er eitthvert æðra máttarvald sem þú trúir á þá færðu endanlega sönnun brátt. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú átt í vandræðum með eitt- hvað sem þú fórst létt með hér áður fyrr. Mundu að samvinna getur einnig komið þér til góða. 19. feb. - 20. mars Fiskar Láttu ekki draga þig inn í deilur manna á vinnustað þínum. Vertu samstarfs- fús. Amma Víkverja var mikil kjarn-orkukona, sem sést kannski best á því að hún æfði víst hnefaleika í æsku sinni, einhverjum árum áður en sú iðja var bönnuð. Sagði hún Víkverja eitt sinn að strákarnir hefðu nú talið hana eitthvað skrítna að taka þátt í þessu. Amman hafði þó aldrei látið það á sig fá, enda með sterkari karakterum sem Víkverji hefur kynnst. x x x Þegar Víkverji hugsar til baka, erþað mjög sterkt í minningu hans hvað amman hélt mikið upp á 1. apríl sem „tyllidag“. Ófá árin hljóp Vík- verji apríl, yfir þröskulda, til þess að svara símanum þennan dag. Á hin- um endanum heyrðist þá í gömlu konunni: „1. apríl!“ og var síðan lagt á. Svo þegar reynt var að hringja til baka til þess að hefna sín þóttist hún ekki vera heima. Þetta var svo end- urtekið nokkrum sinnum þann morguninn. Fyrir ungan dreng var það ákveðið áfall hversu oft ömmu hans tókst að ná honum þennan til- tekna dag á hverju einasta ári. Eina hefndin sem honum datt í hug var að hringja til baka daginn eftir, hrópa, „2. apríl“ og leggja svo á. x x x Aprílgöbbin frá ömmunni entust ínokkur ár, eða þar til númera- birtir eyðilagði alla spennu við sím- hringingar heimilisins. Tæknin hef- ur þannig haft víðtæk áhrif á þennan dag og gerir enn. Nú skiptir minna máli hvort hægt er að fá fólk yfir þröskulda, heldur veltur allt á því að narra fólk til þess að klikka á ein- hvern tengil. x x x Eitt það vinsælasta sem Víkverjitekur eftir í netheimum síðustu árin er að koma með einhverja yf- irlýsingu, gjarnan um þungun, úr- sögn úr stjórnmálaflokki, húðflúr, eða eitthvað sem hugsanlega hefur víðtækar afleiðingar. Fylgir oftast með myndarlegur hlekkur ásamt loforði um að nánari skýringa sé að finna þar. Án undantekninga er þó ekkert þar að finna annað en einn af mörgum hjartaknúsurum 9. áratug- arins að syngja vinsælasta lagið sitt. Mætti Víkverji þá frekar biðja um símtalið sitt. víkverji@mbl.is Víkverji Orð dagsins: Hann stendur mér við hlið til þess að veita mér lið og vernd. (Daníel 11, 1.) Kristrún kona mín er ein af „Lell-unum“, en þeim var boðið á uppákomu á þriðjudag, þar sem „Soffíuhópurinn“ flutti ljóðabálkinn Geðfró eftir Siggu skáldu. „Þetta eru einskonar kvenlegir Passíu- sálmar, en ekki þótti ástæða til að halda til haga nöfnum höfunda þeg- ar konur áttu í hlut,“ skrifar Soffía Jakobsdóttir á netið. „Þessi kvæði voru mikið notuð við húslestra áður fyrr en að mestu fallin í gleymsku nú.“ Guðrún P. Helgadóttir segir í „Skáldkonum fyrri alda“ að höfund- urinn segist hafa ort Geðfró af guð- dómsanda. „Sá, sem les kvæðið finn- ur að það er rétt,“ segir hún og ennfremur: „Með kvæðinu hefur höfundurinn bæði veitt sjálfum sér og öðrum fró í geð, – og lengra verður ekki komist í trúarvissu en telja hugsýnir sínar og geðmyndir raunverulegastar alls raunveru- leika.“ Náðugi guð, í nafni þínu, neyð so verði kvitt, nú skal varpa út neti mínu í náðardjúpið þitt. Gísli Konráðsson skrifaði þátt um Siggu skáldu. Þar segir, að hún hafi lengstum verið á vergangi. Eitt sinn, er hún var á ferð, komu tveir menn ríðandi á eftir henni. Spauguðu þeir með það sín á milli, hvort þar færi tófa á undan þeim. Sigga heyrði, hvað þeir sögðu og kvað: Tryggð finnst engin tófu með, títt það margir skrafa, en reynið þið, hvort refsins geð rekkar engir hafa. Til er kvæði, eignað Siggu skáldu, sem hún yrkir til þeirra, sem höfðu hýst hana, og er viðlagið þetta: Kæri vinur, kem ég enn, kýs ég næturvist hjá þér. Guð launi yður, góðu menn, það gjörðuð þér mér. Svo að aftur sé vitnað í Geðfró segir Sigga skálda þar undir lokin: Svalaðu mér á sjálfs þíns blóði, sálin þyrst er mín. Ljúfur Jesú, lausnarinn góði, langar mig til þín. Kristinn Björnsson segir í netpósti til mín að í tengslum við aðalfund Seðlabankans hafi birst mynd af seðlabankastjóra, formanni banka- ráðs Ólöfu Nordal og fyrrverandi seðlabankastjóra Jóhannesi Nordal. Rifjast hafi upp fyrir sér gömul vísa og nú spyr hann um höfund hennar: Situr einn með súldarfés, Seðlabanka Jóhannes. Fellir gengið 1. des. Fer þá allt til helvítes. Halldór Blöndal Vísnahorn Sigga skálda og hið raunveru- legasta alls raunveruleika Í klípu „ÞAÐ ER NÚ VANDINN VIÐ ÞESSI ELDRI HÚS, MAÐUR VEIT ALDREI HVERNIG PÍPUR MAÐUR REKST Á.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG SÆI EKKERT Á TJALDIÐ EF HÚN VÆRI EKKI MEÐ GÖT Í EYRUNUM.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... augnablikið sem bræðir þig. ÉG MAN EFTIR SUMARFRÍUM FJÖLSKYLDUNNAR. JÓI FRÆNDI VAR MEÐ TÖFRABRÖGÐ. EINU SINNI LÉT HANN ALLA ÁVEXTINA HVERFA. GÓÐUR MAÐUR, HANN JÓI. GEFIST UPP! ÞIÐ ERUÐ UMKRINGDIR Á ALLA KANTA! HEY, VIÐ SKULUM LAUMAMST ÚT BAKATIL! AÐ HUGSA SÉR AÐ ÞETTA SÉ NÆSTI UNDIRMAÐUR MINN! Vagnhöfða 11, 110 Reykjavík | S. 577-5177 | linuborun@linuborun.is | www.linuborun.is Af hverju grafa þegar hægt er að bora? Reynsla - þekking - við komum og metum Við notum stýranlegan jarðbor sem borar undir götur, hús, ár og vötn. Umhverfisvænt - ekkert jarðrask• Meira öryggi á svæðinu• Sparar bæði tíma og peninga.• Borum fyrir nýjum síma-, vatns-, rafmagns- og ljósleiðaralögnum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.