Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.04.2014, Side 2
Í fókus
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.4. 2014
Svar: „Ekki spurning. Veturinn hefur
verið leiðinlegur og þá eigum við skilið
gott sumar.“
Málfríður Finnbogadóttir, 60 ára.
Svar: „Nei, ég hef enga trú á því.“
Elisabeth Maria, 16 ára.
Svar: „Já. Það kom alla vega á Egils-
stöðum í fyrra.“
Andri Jóhannesson, 9 að verða 10 ára.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Svar: „Já, já. Alveg pottþétt. Ég tala nú ekki
um ef Sunnudagsmogginn lagast eitthvað.“
Eggert Bogason, 74 ára.
Morgunblaðið/Þórður
SPURNING DAGSINS KEMUR SUMARIÐ Í ÁR?
Í nýrri bók BBC þáttagerðar-
mannsins og hljóðverkfræðings-
ins Trevor Cox bendir hann
ferðamönnum á að gleyma ekki
að leggja við hlustir þegar þeir
eru á ferðalögum. Hljóðin á
framandi slóðum séu ekki síður
þess virði að setja í minninga-
bankann en til dæmis myndir. 18
Í BLAÐINU
2010 ‘11 ‘12 ‘13 2014
77.841
160.370
GISTINÆTUR
Á HÓTELUM
Í FEBRÚAR
Heimild: Hagstofan (tölur fyrir
innlenda og erlenda ferðamenn)
Skálmöld var valin flytjandi ársins. Þið eruð þunga-
rokkarar en komið fram með Sinfó og nú með
trúðum. Hvar endar þetta?
Ég vona nú að þetta endi bara ekki, eða í það minnsta ekki strax.
Við erum mjög duglegir að finna okkur eitthvað nýtt og spenn-
andi að gera og það er klárlega mikilvægt að hjakka ekki enda-
laust í sama farinu. Það sem auðvitað stendur okkur næst er
að spila á hefðbundnum þungarokkstónleikum og því munum
við aldrei hætta, en ég þori að veðja að við finnum okkur eitt-
hvað óhefðbundið að gera með reglulegu millibili svo lengi
sem bandið lifir. Sem verður vonandi lengi.
Fyrir hvoru ertu spenntari, Eurovision eða
leiksýningunni Baldri?
Þetta er mjög ólíkur spenningur. Spenningurinn í sam-
bandi við Baldur er soldið svona eins og maður sé með
bindi að sjá barnið sitt útskrifast. Eurovision-spennan er
meira svona eins og maður sé að fara fullur í tívolí. Hvort
tveggja mjög gaman og mjög nauðsynlegt.
Forðum daga varstu einn fljótasti hlaupari
Þingeyjarsýslu og settir héraðsmet í 100
metrum. Ertu enn á hlaupum?
Nei, ég er alveg hættur að hlaupa. Sem er bagalegt því ég veit
hversu gott það er að vera í formi. Mitt ráð til fólks er að byrja aldr-
ei að hreyfa sig því þá finnur maður svo mikinn mun þegar maður
missir formið. Djók. Ég drulla mér örugglega í form aftur bráðum.
Seinna. Kannski.
Hvaðan kemur sköpunarþörfin og hvar lærðirðu
að yrkja?
Mín sköpunarþörf er tónlistarlegs eðlis og hún hefur bara alltaf ver-
ið til staðar. Frá því að ég byrjaði að fikta við hljóðfæri, sem var
mjög snemma, hef ég verið að búa eitthvað til sjálfur. Ég hef lítinn
áhuga á að spila tónlist eftir aðra. Varðandi ljóðlistina lít ég á mig
sem textasmið, ekki ljóðskáld. Ég hef enga köllun til þess að
setja saman bundið mál nema við tónlist sem ég er að sýsla við.
Og kannski stöku sinnum til að vera fyndinn. Ég sest niður og
yrki þegar það vantar texta, ekki þegar ég sé fallegan læk á
vordegi. Pabbi kenndi mér grunninn að bragfræðunum
þegar ég var lítill en ég gerði nú ekki mikið með þetta til
að byrja með. Þegar Ljótu hálfvitarnir tóku að rotta sig
saman varð þetta eiginlega hálfgerð keppni og þar yrkja
allir samkvæmt reglum. Eftir að ég byrjaði að nota þetta
fyrir alvöru hef ég haldið mig við það enda er þetta
skemmtilegt form.
Nefndu fjóra hluti sem þú myndir taka með
þér á eyðieyju.
Kassagítar, lengstu teiknimyndasögu í heimi, stærsta bjór
í heimi og konu. Ég veit að þú sagðir „hluti“ og mér finnst klár-
lega ekki fallegt að hlutgera konur, en í þessu tilfelli er það mér
sjálfum svo óskaplega mikið í hag að ég læt mig hafa það.
SNÆBJÖRN RAGNARSSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Ólíkur
spenningur
Morgunblaðið/Þórður
Í uppgerðri þakíbúð í Nóa-
túni er að finna sniðugar lausn-
ir fyrir heimilið. Heimilisfólkið
fer óhefðbundnar leiðir í hönn-
un og og deilir hugmyndum
með lesendum. 28
Börn hafa ótrúlega hæfileika til að læra tungu-
mál og því er snjallt að byrja snemma að kenna þeim.
Mikilvægt er að leggja áherslu á talmál í upphafi segir
frönskukennari leikskólabarna í Hjallastefnunni. 17
Agnar Sverrisson er
íslenskur kokkur sem
á og rekur Michelin
veitingastaðinn
Texture í Restaurant
London. Hann gefur
uppskrift að elduðum
graflaxi. 34
Snæbjörn Ragnarsson, textasmiður Skálmaldar, stend-
ur í ströngu þessa helgina. Skálmöld frumsýnir Baldur í
Borgarleikhúsinu og upphitun fyrir Eurovision hefst á
RÚV. Snæbjörn er hluti af Eurovision-hóp Íslands þar
sem hann syngur bakraddir fyrir Pollapönk.