Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.04.2014, Side 24
Hlaup, hjólreiðar og annað sem reynir á þol og úthald er gott fyrir hjartað – og heilann.
Morgunblaðið/Ómar
Kröftug hreyfing á þrítugsaldri skilar sér lík-
lega í verndun heilans þegar komið er á miðj-
an aldur, að því er ný rannsókn bandarískra
vísindamenna gefur til kynna.
Hlaup, hjólreiðar, sund og annað sem
reynir á úthald er talið skila sér í betra minni
og aukinni færni allt að 20 ár fram í tímann.
Vísindamennirnir, sem birtu niðurstöður
rannsókna sinna í tímaritinu Neurology á
dögunum, segja niðurstöðurnar enn frekar
ýta undir fyrri vitneskju um að sterkt hjarta
(sem byggist upp með úthaldsþjálfun) hafi
góð áhrif á heilann.
Prófaðir með 25 ára millibili
Vísindamennirnir, sem starfa við háskólann í
Minnesota í Minneapolis, prófuðu nærri
3.000 heilbrigða einstaklinga og settu þá í
þolpróf á þrítugsaldri. Þátttakendur voru
beðnir að hlaupa eins lengi og þeir gætu án
þess að verða uppgefnir eða missa andann,
að því er fram kemur í frétt um rannsóknina
á fréttavef BBC. Aldarfjórðungi síðar var
sami hópur settur í próf þar sem minni og
önnur færni sem reynir á heilastarfsemi var
prófuð. Niðurstöður sýndu að þeir sem
komu vel út úr upphaflega þolprófinu sýndu
jafnframt betri niðurstöður á seinna prófinu,
jafnvel þótt tekið væri tillit til annarra þátta
líkt og reykinga og sykursýki. Telja vísinda-
mennirnir að þetta sýni að það borgi sig að
stunda hreyfingu sem reynir á úthald á yngri
árum, það skili sér í bættri heilastarfsemi
þegar komið er á miðjan aldur.
HREYFING MARGBORGAR SIG
Þol á þrítugsaldri skilar betri
heilastarfsemi á miðjum aldri
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.4. 2014
Heilsa og hreyfing
S
vefnrannsóknir fá sífellt meira vægi í
vísindaheimum enda er góður svefn
mannskepnunni dýrmætur. Ýmislegt
er þó enn á huldu varðandi svefninn
og áhrif hans á líkamsstarfsemina. Til eru
ýmsar ævintýralegar sögur af svefnvenjum
sumra af þekktustu einstaklingum mann-
skynssögunnar. Ein sú kunnasta er á þá leið
að uppfinninga- og myndlistarmaðurinn Lea-
nordo Da Vinci hafi einungis lagt sig í tutt-
ugu mínútur á fjögurra tíma fresti til þess
að hámarka afköst. Aftur á móti vék víst
Winston Churchill, forsætisráðherra Breta,
nærri aldrei frá þeirri reglu sinni að fá sér
góðan síðdegislúr í allt að tvo tíma.
Svefnherbergið of mikið
notað fyrir afþreyingu
Svefnvenjur fólks geta verið misjafnar en
eitt af því sem vísindamenn eru farnir að
gefa æ meiri gaum í seinni tíð er hversu
mikið svefnherbergið er notað fyrir alls kyns
afþreyingu. Fyrst og fremst með ýmsum raf-
tækjum, símum, spjaldtölvum, sjónvörpum
og fleiru. Telja þeir sem stundað hafa svefn-
rannsóknir á vegum ýmissa háskóla í Banda-
ríkjunum þessa þróun minnka líkurnar á því
að fólk nái góðum og djúpum nætursvefni.
Bandaríski netmiðillinn Huffington Post
birti á dögunum stutta grein þar sem hnykkt
var á þessum vangaveltum. Þar eru raunar
settur fram listi yfir sjö atriði sem forðast
skal í svefnherberginu. Er þar meðal annars
vitnað til dr. M. Safwan Badr sem er hvorki
meira né minna en forseti bandaríska svefn-
rannsóknarfélagsins. „Ég segi að rúmið sé
nytsamlegt fyrir tvær aðgerðir sem byrja á
bókstafnum S en ekki er átt við ströggl og
sára þjáningu.“ Dr. Badr á þar við að svefn-
herbergið eigi eingöngu að vera staður
svefns og samræðis. Minnir þessi speki hans
nokkuð á eftirminnilega útvarpstýpu Jóns
Gnarr; Umferðar-Einar, sem sífellt tuðaði
um S-in þrjú í umferðinni.
Sjö atriði eru sérstaklega nefnd í umfjöll-
un Huffington Post sem minnka líkurnar á
því að festa svefn fljótt og örugglega:
1. Raftækin eru fyrst tínd til en sam-
kvæmt könnun sem gerð var á svefnvenjum
Bandaríkjamanna árið 2011 notuðu 95%
þeirra sem tóku þátt síma eða tölvur áður en
farið var í háttinn. Slíkt þykir ekki hjálpa til
við að festa svefn og er frekar mælt með því
að setja sér reglur um að nota ekki slík
tæki rétt fyrir svefninn.
2. Sjónvarpsgláp er víst ekki afslapp-
andi samkvæmt viðmælendum netmiðils-
ins heldur getur það þvert á móti byggt
upp spennu. Ekki er heldur mælt með
spennandi bók í rúminu áður en lagst er
til hvílu.
3. Þegar fólk er andvaka þá er ekki
heppilegt að stara upp í loftið eða bylta sér
endalaust í þeirri von að svefninn sæki á. Þá
er víst betra að fara fram úr og finna sér
eitthvað að gera og fara í koju þegar þreyt-
an sækir að.
4. Þeir sem taka vinnuna með sér í rúmið,
blaða þar í pappírum eða vinna á fartölvuna
eru að venja heilabúið við þá tilhugsun að
rúmið sé ekki eingöngu fyrir S-in tvö. Sam-
kvæmt rannsóknum í Harvard hafa átta af
hverjum tíu sem þar voru rannsökuð vanið
sig á þetta áður en haldið er í draumalandið.
5. Viðmælendur netmiðilsins mæla ekki
með því að gæludýrum sé hleypt upp í
rúmið, jafnvel þótt þau kunni að vera með
krúttlegasta móti. Því fylgi alls kyns áreiti
sem minnki líkurnar á djúpum svefni.
6. Þó að tilhugsunin um hlýjan bedda sé
notaleg þá eru ákjósanlegar aðstæður til
hvíldar nokkuð kaldari en margur heldur.
Mælt er með því að eiga fleiri en eina gerð
sængur til að stjórna hitanum án þess að
trufla rekkjunautinn.
7. Ekki er mælt með því að „snooza“ held-
ur þykir þá heillavænlegra að stilla vekj-
araklukkuna á áætlaðan fótferðartíma og
sofa sleitulaust þangað til. Svefninn á
„snooze-tímabilinu“ þykir vísindamönnum
ekki nægilega djúpur til að gera álíka gagn
og langur svefn.
TÆKIN BURT OG SVEFNINN BATNAR
S-in tvö í
svefnherberginu
Það þykir eftirsóknarvert að sofa eins og unga-
barn, en ýmis tæki geta truflað svefninn.
Morgunblaðið/Ernir
* Svefnherbergið á að verafrátekið fyrir tvær athafnir:
-Svefn
-Samræði
* Ekki er mælt með að raf-tæki séu í svefnherbergjum
VINSÆLT ER HJÁ HINUM ÝMSU FJÖLMIÐLUM AÐ LEIÐBEINA FÓLKI
MEÐ ÞVÍ AÐ BIRTA LISTA VARÐANDI ALLS KYNS ATHAFNIR DAG-
LEGS LÍFS. HUFFINGTON POST BIRTI NÝVERIÐ LISTA YFIR SJÖ ATRIÐI
SEM BER AÐ FORÐAST Í SVEFNHERBERGINU EN MÆLTI Á HINN
BÓGINN MEÐ TVEIMUR ATHÖFNUM.
Kristján Jónsson kris@mbl.is
Eins og allir vita er hreyfing lífsnauðsynleg. Ráðlagt er að börn hreyfi sig í minnst klukkustund
daglega, það er algjört lágmark. Fullorðnir þurfa líka hreyfingu, að lágmarki í hálftíma á dag.
Góð leið til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að ganga upp tröppur í stað þess að nota lyftur.
Tökum stigann og hreyfum okkur