Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.04.2014, Page 30
Matur
og drykkir
Alltaf röð út á götu
*Sagt er að enginn hafi smakkað alvöru pitsufyrr en smökkuð hefur verið pitsa í Napólí. Ápitseríunni L’Antica Pizzeria da Michele viðVia Sersale í Napólí er ekki verið að flækjahlutina. Þar er boðið upp á tvær gerðir pitsu:margarítu og marinara (sem er eins ogmargaríta nema án osts). Ekki virðist fá-
breytnin koma niður á viðskiptum því það er
nánast alltaf röð út á götu á veitingastaðnum.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
FURÐULEGAR SAMSETNINGAR SMAKKAST OFT VEL
Frábrugðnar
flatbökur
VÍÐA LEYNAST PITSUR MEÐ FREMUR ÓHEFÐBUNDNUM ÁLEGG-
STEGUNDUM. ÞAÐ ER GAMAN AÐ BREGÐA AÐEINS ÚT AF VAN-
ANUM OG SMAKKA SIG ÁFRAM, ENDA ÞYKIR EFLAUST LANG-
FLESTUM PITSAN GÓÐ. SUNNUDAGSBLAÐIÐ HAFÐI UPPI Á
NOKKRUM SLÍKUM.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Morgunblaðið/Ómar Morgunblaðið/Þórður
Það er sniðugt fyrir fjölskylduna að útbúa heimabakaða pítsu saman og skemmtilegt að
breyta til. Hér koma nokkrar tegundir af áleggi sem hægt væri að prófa til gamans.
1. Kartöflubátar
2. Ískúlur
3. Epli og kanill með bræddu súkkulaði (eftirréttapítsa)
4. Tandoori-kjúklingur
5. Kokteilsósa
6. Lax og kavíar
7. Pestó
8. Geitaostur
9. Eggaldin
10. Oreó-kex (eftirréttapítsa)
Tíu tegundir af óvenjulegu
áleggi á pítsu
Bautapitsa bernaise
Með nautahakki, rauðlauk, rucola-salati,
frönskum, bernaise og svörtum pipar.
Hvar? Bautanum, Akureyri.
Verð: Eitt verð, 1.500 kr.
Fyrir einn til tvo.
Baccalá
Með saltfisk, tómat, ferskum mozz-
arella, smátómötum, ólífum, furuhnet-
um, basil og jómfrúarolíu.
Hvar? Primo ristorante, Grensásvegi.
Verð: Eitt verð, 2.390 kr.
Fyrir einn til tvo.
Beikon & egg
Einfaldlega með beikoni og eggi. Tilvalin
í morgunsárið?
Hvar? Eldofninn, Grímsbæ.
Verð: Eitt verð, 1.950 kr., en 1.755 ef
sótt er.
Fyrir einn til tvo.
Eyþór spes
Á þessa pitsu er sett pepperoni,
bananar og chili-krydd.
Hvar? Gamla smiðjan, Lækjargötu.
Verð: 9" 1.050 kr.
12" 1.350 kr.
16" 2.450 kr.