Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.04.2014, Side 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.04.2014, Side 36
Símatilraunir Google hafa gengiðbrösulega á síðustu árum, eins ogsannast einna best á Motorola- ævintýrinu, en Google hyggst selja Mot- orola Mobilty, símahluta Motorola, til Lenovo á gjafverði á árinu, þótt það séu ekki liðin nema tvö ár frá því Google keypti fyrirtækið. Að því sögðu þá hefur Google líka tekist bráð- vel upp í síma- samstarfi, sjá til að mynda verð- launasímann LG Nexus 4, sem kom á markað síðla árs 2012. Gott innlegg í þá frægðarsögu er svo nýr Nexus frá LG, Nexus 5, sem er framúrskarandi sími og á þvílíku verði að óhætt er að telja hann ein bestu kaupin á farsíma sem stendur. Nexus 5 svipar um margt til fyrirrenn- ara síns, sem vonlegt er, sami framleið- andi og sama vörumerki, en er þó tals- vert frábrugðinn þegar grannt er skoðað. Bakið á símanum er úr plasti með mjúka áferð, eiginlega matta gúmmíkennda áferð. Síminn fer og vel í hendi, engin hætta á að hann renni úr hendinni. Ekki ber þó minna á fingraförum á bakinu en ef það hefði verið úr glampaplasti, en það er eins og við er að búast. Hann er 130 g að þyngt, nákvæmlega jafnþungur og Samsung Galaxy S4, en heldur þyngri en iPhone 5S (stærri skjár). Myndavélin í símanum er góð, fljót í gang og fljót að finna fókus. Það er líka einfalt að stilla vélina, maður þrýstir einfaldlega fingri á skjáinn og getur svo valið stillingar. Það er þó blár blær á myndum (á hvítum flötum) sem teknar eru með HDR+-stillingunni á (þótt þær myndir hafi annars verið einkar vel heppnaðar). Að sögn þeirra sem til þekkja verður þetta lagfært í næstu Android-uppfærslu. Líkt og aðrir Nexus-símar (og aðrar Nexus-græjur reyndar) er síminn alltaf með nýjustu útgáfu af Android og allar uppfærslur skila sér í hann jafnharðan og þær eru tilbúnar, ólíkt til að mynda uppfærslum í Samsung eða Sony (og reyndar líka þá LG-síma sem eru ekki með Nexus-vörumerkinu). Þetta skiptir náttúrlega ekki máli ef menn eru sáttir við þá útgáfu sem þeir eru með af Android og ekki spenntir fyrir viðbótum í umræddri uppfærslu, en svo hefur líka komið fyrir að uppfærsla hafi verið gör- ótt enda eru símarnir sumir ólíkir að innvolsi. Að því sögðu þá er óneitanlega sitthvað spennandi í boði í nýjustu Android-uppfærslum og líka spenanndi framundan, eins og væntanleg uppfærsla á myndavélarforriti Android-síma sem sumir segja reyndar að verði gefinn út sér og þá áður en Android 4.4.3 kemur út. Óhjákvæmilega bera menn Nexus 5 saman við „bróður“ hans frá LG, LG G2, enda eru þeir um margt áþekkir, báðir með 2,27 GHz Snapdragon 800-örgjörva, með jafnmikið vinnsluminni og nánast jafnstórir, en G2 hefur þó sitthvað fram- yfir nexusinn, til að mynda það að hann er með mun betri myndavél, 13 MP að aftan og 2,1 að framan, samanborið við 8 að aftan og 1,3 að framan, aukinheldur sem G2 er með aðeins stærri skjá og stærri rafhlöðu (en litlu meiri endingu). Í því ljósi er G2 lítt siðri kostur en Nexus 5, jafnvel betri að sumu leyti, en hann kemur með Android 4.2 JellyBean, en Nexus 5 með 4.4 KitKat eins og getið er. Verð á símunum er áþekkt, en fer þó eftir því hvar er keypt. Þeir eru til að mynda báðir til sölu hjá Nova á 79.990 kr., en G2-símanum fylgir 1.000 kr. notk- un á mánuði í þrjá mánuði. Hjá Síman- um kostar Nexus 5 89.900 kr. og G2 79.900 kr. Hjá Vodafone kosta báðir 79.990 kr. KOSTAGRIPUR Á KJÖRVERÐI ALLA JAFNA ER ÞAÐ SVO AÐ SÍMAR ERU ÞVÍ DÝRARI SEM ÞEIR ERU BETRI, EÐA SVO HEFUR ÞVÍ VERIÐ HÁTTAÐ UNDANFARIN ÁR OG ÁRATUGI. NÝR SÍMI FRÁ LG, LG NEXUS 5, SEM FYRIRTÆKIÐ SMÍÐAR Í SAMVINNU VIÐ GOOGLE, ER ÞÓ ÖÐRUVÍSI VERÐ- LAGÐUR EN VÆNTA MÁTTI Í LJÓSI ÞESS HVE HANN ER ÖFLUGUR OG ALMENNT VEL HEPPNAÐUR * Ekki er hægt að setja í hann minniskort og þvíaðeins hægt að fá síma með 16 MB eða 32 MB minni fyrir gögn. Ekki er heldur hægt að skipta um rafhlöðu, því að er ekki hægt að opna símann mema með til- færingum og er reyndar ekki ætlast til þess að aðrir en fagmenn fáist við slíkt. * Skjárinn er fyrirtak, rétt tæpar fimm tomm-ur, 4,95“, en síminn er annars 13,8 x 7 x 8,6 sm að stærð. Upplausnin á skjánum er líka mjög góð, 1920 x 1080 dílar, sem gefur 445 díla á tommu. Ef vel er að gáð sést daufur gulur blær á skjánum, en það kemur ekki að sök. * Vélbúnaður í Nexus 5 er sprækur,2,27 GHz fjögurra kjarna Snapdragon 800- örgjörvi, 2 GB af vinnsluminni og 16 eða 32 GB geymsluminni eftur gerð. Hægt er að hlaða símann þráðlaust, þ.e. ekki þarf að stinga honum í samband, að því gefnu að maður hafi aðgang að slíku hleðsluapparati. Græjan ÁRNI MATTHÍASSON Græjur og tækni Seldi ókeypis vírusvörn *Mohammed Khalid Jamil, 34 ára gamall mað-ur frá Luton, hefur verið dæmdur í skilorðs-bundið fangelsi og gert að greiða þúsundirsterlingspunda í skaðabætur fyrir að hafa seltfjölda manns á Bretlandi vírusvörn sem hægtvar að hlaða niður ókeypis á heimasíðuMicrosoft. Flestir viðskiptavinir hrappsins voru eldri borgarar og rukkaði hann þá um allt að þrjátíu þúsund krónur fyrir viðvikið. Android-stýrikerfið hefur tekið stakkaskiptum á síðustu árum og eftir kynni af 4.4 er ljóst að það stendur iOs (á iPhone og iPad) lítið sem ekkert að baki, er betra að mörgu leyti. Helstu breytingar eru í viðmóti og þá á ég ekki bara við útlit, sem er nokkuð breytt, heldur er svörun orðin mun betri og snertiskjárinn nákvæmari. Fjölvinnsla, þ.e. að nota mörg forrit í einu, er líka mun þægi- legri og fljótlegra að skipta á milli. Meðal helstu breytinga er að SMS/MMS-skeyti renna nú saman við Hangouts-spjallforritið (ef vill, hægt að halda því aðskildu með stillingu) og síminn svarar eftir því AÐGENGILEGRA VIÐMÓT sem við á, þ.e. SMS með SMS og svo framvegis. Google Now er líka alltaf í gangi, þ.e. nóg er að segja við símann „OK Google“ og síðan fyrirmæli (á ensku) um það sem maður vill gera, til að mynda ef ræsa á Google now. Hann getur líka látið vita af við- burðum í nágrenninu, birtir veð- urspá, álag í umferðinni (ekki hér á landi þó), birtir niðurstöðu í kapp- leikjum, sendir áminningu eftir stað og tíma, til að mynda þegar ekið er framhjá tiltekinni verslun og svo má telja. Símaforritið sjálft er mun betra og aðgengilegra, raðar tenglalist- anum sjálfkrafa eftir því við hverja maður talar mest, en náttúrlega líka hægt að leita eftir nafni/staf. Eins og kemur fram hér til hliðar er hægt að velja svonefnda HDR+- stillingu á myndavélinni í Nexus 5, en HDR-stillingin virkar annars þannig að síminn tekur nokkrar myndir í einu með mismunandi lýs- ingu og býr til úr þeim eina mynd þar sem allir fletir eru rétt lýstir (eða eins rétt lýstir og viðeigandi er eða hægt að ná). Í mörgum tilfellum verður myndin líka minna hreyfð. Plúsinn aftan við HDR er vegna þess að HDR-útgáfan í Nexus 5 er sérsmíðuð fyrir þann síma, þótt hún muni eflaust rata í komandi Andro- id-útgáfur. Ný útgáfa af Android

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.