Morgunblaðið - 09.05.2014, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2014
Fyrrverandi ráðgjafi JosesManuels Barrosos, forseta
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins, lýsir því í viðtali við
írska sjónvarpsstöð hvernig Evr-
ópusambandið hafi
þvingað Írland til
þess að taka á sig
ábyrgð á skuldum
írskra banka.
Ráðgjafinn fyrr-verandi, Phillipe Legrain,
segir að fyrir írska skattgreið-
endur hafi þetta verið „ranglátt
og óbærilegt,“ enda hafa skuldir
írska ríkisins sem hlutfall af
landsframleiðslu fimmfaldast.
Legrain segir að þrýstingurinná írsk stjórnvöld að ábyrgj-
ast skuldirnar hafi komið frá
Þýskalandi vegna þess að þýskir
bankar hafi átt mikilla hagsmuna
að gæta. Þrýstingurinn hafi einn-
ig komið frá framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins sem hafi
staðið þétt við hlið Þýskalands.
Þá hafi þrýstingur komið fráJean Claude Trichet, fyrrver-
andi bankastjóra seðlabanka
evrusvæðisins, sem hafi leitast við
að gæta hagsmuna franskra
banka.
Legrain segir að raunin sé súað „stofnanir ESB hafi tekið
hagsmuni þessara banka fram yf-
ir hagsmuni írskra borgara“.
Hvað halda „viðræðusinnar“ aðhefði komið fyrir Ísland
hefði það verið í ESB þegar bank-
arnir féllu?
Og hvernig ætli Íslandi tækistað gæta hagsmuna sinna í
öðrum málum fyrst nágrannar
okkar voru þvingaðir með fyrr-
greindum hætti?
Írskum borgurum
fórnað fyrir banka
STAKSTEINAR
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
mánudaginn 12. maí, kl. 18
í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg
Jóhannes S. Kjarval
Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og
fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna.
Verkin verða sýnd í dag föstudag kl. 10–18, laugardag kl. 11–17,
sunnudag kl. 12–17, mánudag kl. 10–17
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Listmunauppboð
í Gallerí Fold
Veður víða um heim 8.5., kl. 18.00
Reykjavík 7 alskýjað
Bolungarvík 6 skýjað
Akureyri 7 skýjað
Nuuk -1 alskýjað
Þórshöfn 10 skýjað
Ósló 3 skýjað
Kaupmannahöfn 12 skýjað
Stokkhólmur 7 skýjað
Helsinki 6 skýjað
Lúxemborg 12 skúrir
Brussel 12 skýjað
Dublin 15 léttskýjað
Glasgow 12 skúrir
London 15 skýjað
París 12 alskýjað
Amsterdam 12 súld
Hamborg 12 skýjað
Berlín 15 skýjað
Vín 20 léttskýjað
Moskva 17 heiðskírt
Algarve 22 heiðskírt
Madríd 27 léttskýjað
Barcelona 22 léttskýjað
Mallorca 22 heiðskírt
Róm 21 léttskýjað
Aþena 17 heiðskírt
Winnipeg 7 skýjað
Montreal 13 léttskýjað
New York 13 alskýjað
Chicago 25 skýjað
Orlando 29 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
9. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:32 22:17
ÍSAFJÖRÐUR 4:17 22:43
SIGLUFJÖRÐUR 3:59 22:26
DJÚPIVOGUR 3:57 21:52
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Félag sem eignaðist spildur úr
Laugardælalandi á árinu 2007 und-
irbjó skipulag fyrir mörg þúsund
manna byggð á svæðinu. Áformin
runnu út í sandinn í fjármálahruninu
og nú hefur Sveitarfélagið Árborg
eignast landið.
Spildurnar sem Árborg hefur
keypt af Lífeyrissjóði starfsmanna
sveitarfélaga á um 288 milljónir eru
tæplega 200 hektarar að stærð. Þar
af eru um 37 hektarar úr landi hjá-
leigunnar Uppsala. Jörðin Laugar-
dælir voru alls um 700 ha að stærð og
þótt spildur hafi verið seldar úr
henni eiga bændurnir enn megin-
hluta jarðarinnar. Á landi þeirra eru
7-8 íbúðarhús auk útihúsa og kirkju.
Kaupfélag Árnesinga eignaðist
Laugardæli 1937 og var með bú-
rekstur þar í tuttugu ár. Síðar rak
Búnaðarsamband Suðurlands þar
tilraunabú. Við uppstokkun á fjárhag
KÁ upp úr 1990 eignaðist Samvinnu-
lífeyrissjóðurinn jörðina. Sjóðurinn
gerði samning um sölu á henni til
fjárfestis 1998 en ábúendur jarðar-
innar, Haraldur og Ólafur Þór Þór-
arinssynir, neyttu forkaupsréttar.
Þeir seldu síðar spildur til fyrir-
tækja á Selfossi, meðal annars
Mjólkurbús Flóamanna og bygg-
ingafyrirtækis, meginhluta þess
lands jarðarinnar sem enn var innan
Sveitarfélagsins Árborgar.
Um tíma voru þreifingar um að
Selfossbær keypti landið næst bæn-
um en þegar fasteignabólan var sem
stærst festu fjárfestar sem víðar
voru í uppbyggingu kaup á tæplega
200 hektara landi Laugardæla og
hjáleigunnar Uppsala, því landi jarð-
arinnar sem liggur næst Selfoss,
með Ölfusá og beggja vegna Suður-
landsvegar. Stofnuðu þeir Fjárfest-
ingarfélagið Ferjuholt um viðskipt-
in. Verðbréfastofan (VBS)
fjármagnaði kaupin, meðal annars
með útgáfu skuldabréfa í nafni fjár-
festa. Einn þeirra sem töpuðu á þess-
um viðskiptum, Lífeyrissjóður
starfsmanna sveitarfélaga, keypti
eignina á nauðungaruppboði. Ferju-
holt var úrskurðað gjaldþrota í febr-
úar síðastliðnum.
Ætluðu í mikla
uppbyggingu
Árborg kaupir spildur úr Laugardælalandi
Golfvöllur
20,8 ha
Laugardælir
land
41,5 ha
Laugard.
8,8 ha
Laugard.
57,7 ha
Laugard.
23,9 ha
Spilda úr
Uppsölum
36,8 ha
Tindar
Þorleifskot
LaugardælavatnÖlfusá
Ölfusá Suðurlands-
vegur
Árborg
Árborg
Fló
ahr
.
Ölf
us
Flóahr.
Laugardælir
Selfoss
0,11 ha
0,32 ha
Fyrirhugað brúar-
stæði og ný lega
Suðurlandsvegar
Núverandi brú
Loftmyndir ehf.
Meginhluti Laugardæla í eigu ábúenda
Jörðin Laugardælir er að mestu
leyti í Flóahreppi og er sveitarfélag-
ið Árborg því að fjárfesta í landi í
öðru sveitarfélagi.
Golfvöllur Selfyssinga, Svarfhóls-
völlur, er við Ölfusá en er með samn-
inga til skamms tíma og vantar land
til stækkunar. Þá kemur ný brú sem
fyrirhuguð er yfir Ölfusá inn á völl-
inn og skerðir hann og mun vegur-
inn liggja yfir hið nýkeypta land inn
á Suðurlandsveg rétt austan við Sel-
foss.
Ásta Stefánsdóttir segir að Ár-
borg fari ekki með skipulagsvaldið á
þessu landi en muni sem landeigandi
hafa áhrif á þróun þess. Hún segir
að þarna séu möguleikar til upp-
byggingar í framtíðinni, til dæmis
við Suðurlandsveg. Ekkert hafi ver-
ið rætt um að breyta sveitarfélaga-
mörkum enda hafi kaupin borið
brátt að.
Fjárfesta í
Flóahreppi