Morgunblaðið - 09.05.2014, Page 10

Morgunblaðið - 09.05.2014, Page 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2014 Uppskriftir á gottimatinn.is H V ÍT A H Ú SI Ð / SÍ A NÝTT Prófaðu 36% sýrðan rjóma í matseldina. Á gottimatinn.is finnur þú nýjar og spennandi uppskriftir og fullt af öðrum sígildum uppskriftum. rjóminn af sýrða rjómanum Malín Brand malin@mbl.is H ugur Erlu er ákaf- lega frjór og hún fær hverja hug- myndina á fætur annarri. Ólíkt mörg- um öðrum kann hún vel að meta skammdegið því hún segir að það geri þá kröfu til manns að hugsa og nýta sköpunarkraftinn. Í október síðastliðnum varð til ný útfærsla á Frjálsmeni, sem er hálsmen sem Erla hannaði fyrst fyrir um fjórum árum. „Vinkona mín á afmæli í októ- ber og mér finnst ég alltaf þurfa að gefa henni eitthvað heimagert, það er eitthvað sem ég verð að gera og hún þreytist ekki á því,“ segir Erla Sigurlaug Sigurðar- dóttir, hönnuður Frjálsmenanna, um það hvernig nýjustu menin urðu til. „Þetta verður alltaf stærri áskorun því ég þarf að finna upp á einhverju. Svona perlufestar eru voða mikið í tísku og mig langaði nú ekki að gera neitt dæmigert því ég þarf alltaf að finna upp hjólið,“ segir hún. Erla fór því að velta fyrir sér hvað hún gæti gert úr perlum og minntist þess hvers konar perlu- skraut hún hafði séð konur á Grænlandi með. Þess vegna settist hún niður á stofugólfinu heima hjá sér kvöld nokkurt í október og fór að þræða tréperlur og laumaði nokkrum kristalsperlum inn á milli. „Ég eyddi heilu kvöldi í að þræða og þræða til að sjá hvernig þetta myndi hanga saman. Ég fann út úr því og gaf henni menið í afmælisgjöf. Hún var mjög ánægð og ég ákvað að þróa þetta áfram,“ segir Erla. Hún var ekki lengi að koma Facebook-síðu í loftið fyrir Frjálsmenin og viðtök- urnar hafa verið prýðilegar. Bankað upp á síðasta vetrardag Erla segir að sér þyki skemmtilegast þegar fólk banki upp á hjá henni í Hafnarfirðinum til að kaupa af henni gjafir. „Mér finnst ótrúlega skemmtilegt þegar karlmenn banka upp á daginn fyr- ir sumardaginn fyrsta og hafa skyndilega áttað sig á því að þeir eiga eftir að kaupa sumargjöf fyr- ir konuna sína, og koma og kaupa armband eða hálsmen,“ segir Erla sem hefur gaman af slíkum heim- sóknum. Nafnið Frjálsmen er nokkuð sniðugt og segir Erla að frænka hennar hafi stungið upp á því þeg- ar Erla var að búa til hekluð háls- men. „Þá var ég að hekla af fingr- um fram en núna er ég að perla af Frjálsmen með frjálsri aðferð Erla Sigurlaug vill helst koma vinkonum sínum á óvart með heimagerðum gjöf- um, einfaldlega af því henni þykir það skemmtilegt. Það var einmitt við gerð einn- ar slíkrar gjafar sem Frjálsmenið varð til en það er hálsmen unnið með frjálsri aðferð. Í það notar Erla tréperlur í öllum regnbogans litum og engin tvö Frjáls- men eru eins. Á meðan aðrir horfa á sjónvarp á kvöldin, perlar Erla af ástríðu. Ljósmynd/Erla Sigurlaug Sigurðardóttir Fjölhæf Erla býr til ýmislegt, bæði hálsmen og armbönd svo dæmi sé tekið. Litríkt Tréperlurnar eru málaðar í öllum regnbogans litum eins og sjá má. Á sunnudagskvöld 11. maí kl. 20 mun Karl Aspelund, lektor við University of Rhode Island, halda fyrirlestur í Hönnunarsafni Íslands í tengslum við yfirstandandi sýningu á fatnaði fv. forseta Íslands, frú Vigdísar Finn- bogadóttur. Karl ætlar að sýna fram á að fataval og hönnun í opinberum pólitískum tilgangi lýtur öðrum lög- málum en almennt gildir um annan fatnað, einkum þegar litið er til tísku- fatnaðar og merkjavöru. Skoðað verður hvernig fatahönnun svaraði þörfum pólitískra aðstæðna á tíma- bilinu og hvernig formleg klæði karla og kvenna þróuðust hvort fyrir sig eftir mismunandi en mjög íhalds- sömum ferlum: Ímyndir karla og fata- val stöðnuðu að mestu snemma og eru enn nánast í sjálfheldu, meðan kvenklæðnaður þróaðist alla öldina innan mótsagnakenndra væntinga sem hafa síst minnkað. Vefsíðan www. honnunarsafn.is AFP Klæði Siðareglur og venjur í opinberum athöfnum hafa þróast á löngum tíma. „Þið talið um föt eins og konur?“ Jan Pozok hefur mynd- skreytt barnabækur undanfarin 25 ár en þekkt- asta bókaserían sem hann hefur teiknað er Krakk- arnir í Kátugötu. Hann tók við útgáfu hasarblaðsins Blek árið 1997 og hefur haldið ótrauður áfram að gefa það út undir öðru nafni, NeoBlek. Einnig hef- ur hann teiknað mynda- sögubækurnar Úrg Ala Buks Unum, Rakkarapakk og Skuggi Rökkva. Í dag kl. 16 verður myndasögusýning á verk- um listamannsins Jan Pozok opnuð í Borgar- bókasafninu. Jan Pozok eða Jean Posocco eins og hann heitir réttu nafni er fæddur í Frakklandi 1961. Hann setti fyrsta myndasögunámskeiðið á Ís- landi af stað árið 1995 í litlum einka- reknum myndlistaskóla, Listaskól- anum við Hamarinn, í Hafnarfirði. Einnig hafa birst myndasögur eftir hann í dagblöðum og tímaritum. Árið 2013 byrjaði útgáfufyrirtæki hans Froskur að gefa út þýddar myndasögubækur. Þetta eru þrjár seríur sem nefnast Tímaflakkarar, Lóa og Svalur og Valur, en nýjar þýddar myndasögubækur hafa ekki komið út að neinu ráði undanfarin þrjátíu ár. Á sýningunni, sem er í aðalsafni Borgarbókasafns í Tryggvagötu 15, í myndasögudeild á annarri hæð, má finna ýmis dæmi um myndasögur listamannsins, aðallega þó úr bók- unum þremur. Sýningin stendur út júlímánuð. Endilega... Rökkvi Útigangsmaður sem breytist í ofurhetju. Spennusaga um baráttu í skuggaheimi. ...farið á myndasögusýningu Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.