Morgunblaðið - 09.05.2014, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 09.05.2014, Qupperneq 11
Hönnuðurinn Erla Sigurlaug Sigurðardóttir með eitt af Frjálsmenunum. fingrum fram,“ segir hún um nafnið sem vísar til frjálsu aðferð- arinnar að baki hverju meni og gerir hvert hálsmen einstakt. Leiðist aldrei nokkurn tíma Erla vinnur við markaðsmál hjá Icelandair Hotels en nýtur þess að hafa ýmiss konar auka- verkefni á borð við Frjálsmenin. Hún var líka dugleg að prjóna þegar mikið prjónaæði gekk yfir fyrir nokkrum árum. Hún gekk töluvert lengra en flestir og gaf út tvær prjónabækur ásamt frænku sinni. Erla var þá nýbyrjuð að prjóna en frænkan hafði margra ára reynslu. „Það var til svo mikið af fal- legum uppskriftum sem lágu hjá prjónakonum þannig að við söfn- uðum þeim saman og fyrri bókin kom út árið 2009. Þarna var gras- rótin komin saman í prjónabók. Við eigum sjálfar uppskriftir í henni ásamt fjölda prjónakvenna og einum karli,“ segir Erla. Bókin Prjónaperlur eftir þær Erlu og Halldóru Skarphéðins- dóttur seldist upp og nú er 2. prentun líka uppseld, svo vinsæl var bókin. Árið 2010 kom út bókin Fleiri prjónaperlur: Prjónað frá grasrótinni. Fyrri bókin var þýdd á ensku og hét Iceland knits: 50 patterns from the Icelandic knitt- ing grassroots og höfðaði sérlega vel til ferðamanna og er nú upp- seld. Erla segir að hún myndi gjarnan vilja skrifa fleiri bækur ef hún hefði tíma. Hún nýtir tímann oftast vel og lætur sér ekki leið- ast. „Ég horfi aldrei á sjónvarpið því mér finnst það tímasóun og ég sef mjög lítið því það þykir mér líka tímasóun. Mér finnst skemmtilegra að vera að gera eitt- hvað annað og þrífst voða illa ef ég er ekki með nein hliðarverk- efni. Hugurinn er alltaf að finna upp á einhverju,“ segir hin fjöl- hæfa Erla Sigurlaug Sigurðar- dóttir. Þeir sem vilja skoða Face- book-síðu Frjálsmensins geta farið inn á slóðina www.facebook.com/ perlufrjalsmen. Skartgripir Stundum setur Erla kristalsperlur með til gamans. Ég horfi aldrei á sjón- varpið því mér finnst það tímasóun og ég sef mjög lítið því það þykir mér líka tímasóun. Ég mun eldast þónokkuð ínæstu viku. Það hendirmig endrum og eins enstökkin eru misstór. Á fimmtudaginn verð ég 31 árs, sem er einmitt mátulegur aldur fyrir mann með mína reynslu. Sannast sagna tel ég mér trú um að ég sé enn bærilega ungur. Þess vegna kom það mér óþægilega á óvart í miðri klippingu á þriðjudag- inn – hvar ég er tíður gestur ... sem er æskilegt þegar hárið er farið að þynnast (það var einmitt eitt af stóru stökkunum í ellina) – að hárgreiðslu- konan snyrti á mér augabrýrnar. Fram að þessu höfðu þær lifað hinu ljúfa lífi, frjálslegar og óhirtar. Hún rak greiðu í hinar ósnertu augabrýr og saxaði það burt sem stóð upp úr. Þetta var alveg ný upplifun. Mamma skellihló þegar ég deildi þessu með henni. Aðrir hafa sagt, að ég megi þakka fyrir að hún hafi ekki snyrt hár í eyrunum. Það virðist vera síðasta hálmstráið. Ég ákvað að segja ekki orð. Það er nefnilega langt síðan ég fór að snyrta þau. Daginn eftir lét einka- þjálfari mig gera jafnvæg- isæfingar. Þær gengu erfiðlega, ég vaggaði til og frá. „Jafnvæg- isskynið er það fyrsta sem fer þegar fólk eldist,“ sagði þjálfarinn. Það er sem sagt komið að því. Til að kóróna þennan nýja veruleika hins fullorðna manns, sem farinn er að missa jafnvæg- isskynið og þarf að snyrta augabrýr og eyru, fékk ég símtal rétt í þessu á fimmtudegi – en hin tvö atvikin áttu sér stað á þriðjudag og miðvikudag – um að það þyrfti að ráðast í heil- miklar framkvæmdir á baðinu heima, sem þó er til þess að gera nýtt, vegna þess að flísarnar míg- leka. Það þótti mér leiðinlega full- orðið: Díla við pípara, sundurtætt baðherbergi, reikninga og annað vesen. Út af baðherbergi. Hingað og ekki lengra. Á loka- metrum þessa pistils hef ég ákveðið að breyta um takt og temja mér já- kvæðari viðhorf. Reynslan hefur sýnt að það getur skipt sköpum. Á ég að segja þér? Ég er nýklipptur (og þá er sko gaman að horfa í speg- il!), þjálfari er að koma mér í form (og þá líður manni vel – líka þegar horft er í spegil) og þegar múrarinn hefur lagað bað- herbergið má ég sprauta þar vatni út um allt! (En þar er einmitt spegill). »Á fimmtudaginn verðég 31 árs, sem er ein- mitt mátulegur aldur fyrir mann með mína reynslu HeimurHelga Vífils Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2014 Gus Gus og Reykjavík Dance Pro- duction hafa verið að gera það gott í útlandinu með sýninguna Á vit … en henni er lýst sem framandi ferðalagi skilningarvitanna um heim dans, tónlistar og myndmáls þar sem sameinaðir eru kraftar ólíkra listforma. Sýningin fór fyrst á svið á listahátíð hér heima 2012 og vakti mikla lukku og í kjölfarið var þeim boðið að sýna erlendis. Sýningin var í endurbættri útgáfu með glænýrri tónlist frá gus gus í Hörpu í gær og seinni sýningin verður í kvöld. Búningarnir eru eftir Filippíu Elísdóttur og Ýr Þrastardóttur og var hópurinn svo vinsæll í Moskvu að listamennirnir voru fengnir í ljós- myndatöku fyrir Esquire, Rússlandi. Gus Gus og Reykjavík Dance Production í Hörpu í kvöld Upplifun Dans, tónlist og myndmál. Ferðalag skilningarvitanna Ungir og efnilegir arkitektanemar sýna verk og standa fyrir hugleiðslu nk. sunnudag 11. maí kl. 11 í Naut- hólsvík. David Ingi Bustion, Selma Sigurðardóttir og Pétur A. Maack, nemar í Listaháskóla Íslands, standa fyrir viðburðinum. Þar sýna þau af- rakstur verkefnavinnu síðustu átta vikna sem fjallar um að tengjast sjálfum sér og náttúrunni í gegnum hugleiðslu. Verkið mun standa í nokkra daga á staðnum og er hægt að spyrja nemana og fræðast meira um tilgang verksins á þessum stað. Í gegnum ferlið hafa þau unnið með Arnbjörgu Kristínu Konráðsdóttur jógakennara og viðfangsefni þeirra er einingarvitund. Arnbjörg mun leiða hugleiðslu í fjörunni um 600 m aust- an við ylströndina (að Fossvogi). Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Nánari upplýsingar hjá Selmu Sig- urðardóttur: selma13@lhi.is. Að tengjast sjálfum sér og náttúrunni Arkitektanemar hugleiða Morgunblaðið/Frikki Hugleiðsla Gerir öllum gott.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.