Morgunblaðið - 09.05.2014, Blaðsíða 19
Ný könnun Félagsvísindastofnunar fyrir
Morgunblaðið á fylgi flokka í Reykjavík
leiðir í ljós að meirihlutinn í borgarstjórn heldur velli. Samfylkingin er í sókn. Fylgi hennar mælist 30,3% sem
gefur fimm borgarfulltrúa. Fylgi við Sjálfstæðisflokkinn hefur aukist frá síðustu könnun í mars, en það er mun
minna en í kosningunum 2010. Flokkurinn fengi fimm menn kjörna. Björt framtíð, arftaki Besta flokksins,
tapar fylgi og fær þrjá menn. Píratar og VG fá einn mann hvor. Framsóknarflokkurinn fær ekki mann kjörinn.
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR
Meðal tekjuhópa er mestur stuðn-
ingur við Samfylkinguna frá þeim
sem hafa meðaltekjur, mánaðarlaun
á bilinu 301 til 400 þúsund krónur.
Meiri stuðningur er við Sjálfstæð-
isflokkinn meðal tekjuhæsta hópsins
en annarra, 33%.
Af kjósendum Besta flokksins sem
ekki styðja Bjarta framtíð núna ætla
28% að kjósa Samfylkinguna og 10%
Sjálfstæðisflokkinn. Af þeim sem
kusu VG árið 2010 ætla 26% að kjósa
Bjarta framtíð, 18% Samfylkinguna
og 8% Pírata.Flestir þátttakendur í
skoðanakönnuninni myndu styðja
sama framboð ef kosið yrði til alþing-
is. Kjósendur VG í Reykjavík eru
undantekning, 29% þeirra myndu
kjósa Samfylkinguna og 17% Bjarta
framtíð. Þá myndu 21% kjósenda
Bjartar framtíðar í vor kjósa Sam-
fylkinguna til þings.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2014
Suðurlandsbraut 48 (bláu húsin í Faxafeni) - Sími 553 3450 - Vefverslun: www.spilavinir.is - Opiðmán-fös 11-18
20%
afsláttur
Spilavinir, spilasafnarar og spilaáhugafólk nú er tækifærið að
bítta, selja og kaupa lítið eða mikið notuð borðspil og jafnvel ný.
Spilavinir opna kjallarann hjá sér og setja upp borð fyrir
einstaklingsspilasölu. Nánari upplýsingar á spilavinir.is.
Komdu og gerðu góð kaup!
Daginn áður en könnun Félags-
vísindastofnunar á fylgi flokka í
Reykjavík hófst skiptu framsókn-
armenn um oddvita sinn. Tók Svein-
björg Birna Sveinbjörnsdóttir, for-
maður Landssambands framsóknar-
kvenna, við oddvitahlutverkinu af
Óskari Bergssyni sem sagði sig frá
listanum. Skipt var um nær alla aðra
frambjóðendur á lista flokksins.
Jafnframt var ákveðið að bjóða fram
í nafni flokksins og „flugvallarvina“
og gera framtíð Reykjavíkurflugvallar
þannig að helsta máli framboðsins.
Samkvæmt könnuninni dugar
þessi breyting ekki til að ná inn full-
trúa í borgarstjórn. Fylgið mælist að
vísu svolítið meira en áður, 4,5%, en
var 2% í könnuninni í mars. En vel
má vera að þetta eigi eftir að breyt-
ast þegar framsóknarmenn hafa náð
að kynna stefnu sína betur og kosn-
ingabaráttan verður komin á fullt
skrið.
Framsóknarmenn mega muna fífil
sinn fegri í höfuðborginni. Þeir áttu
fulltrúa í borgarstjórn áratugum
saman og voru margsinnis aðilar að
meirihlutasamstarfi. Eftir aðild
flokksins að Reykjavíkurlistanum
1994 fór hins vegar að halla undan
fæti.
Tvö önnur framboð í höfuðborg-
inni eru „úti í kuldanum“ samkvæmt
könnuninni, Dögun með 2,1% fylgi
og Alþýðufylkingin með aðeins 0,1%
fylgi. Oddviti Dögunar, Þorleifur
Gunnlaugsson, var áður borgarfull-
trúa Vinstri grænna sem tapa
nokkru fylgi á milli kannana, fara úr
8,6% í mars í 5,9% núna.
Eina nýja framboðið sem er að ná
árangri í Reykjavík er Píratar. Þeir
eru orðnir fjórða stærsta stjórn-
málaaflið með um 10% fylgi. Er
næsta öruggt að oddviti þeirra, Hall-
dór Auðar Svansson, verður borg-
arfulltrúi.
Oddvitaskiptin hafa enn ekki
breytt stöðu Framsóknarflokks
Fylgi flokka eftir því hvað var kosið síðast (2010)
Fra
ms
ókn
arfl
.
Kýs nú:
Kaus þá:
Bes
ti flo
kku
rinn
Vin
stri
-græ
n
Sam
fylk
ing
Sjá
lfst
æð
isfl.
Ann
an
flok
k
eða
fram
b.
?
Ann
an
flok
k
eða
fram
b.
?
Björt framtíð Framsóknarflokkur Sjálfstæðisflokkur Samfylking Dögun Píratar Vinstri-græn Annar flokkur eða framboð
Flokkur ef kosið yrði á morgun til Alþingis
Myndi
kjósa í
sveitar-
stjórn:
Samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 30. apríl - 6. maí 2014.
Fra
ms
ókn
arfl
.
Myndi
kjósa á
Alþingi:
Sjá
lfst
æð
isfl.
Bjö
rt f
ram
tíð
Sam
fylk
ing
Vin
stri
-græ
n
5% 7% 6%
26%
38%
28%
23%
49%
3%
5%
4%
13%
10%
28%
18%
8%
46%
2%
2%
1%
5%
5%
82%
3%
6%
2% 1%
82%
66%
8%
8%
12%
71% 67%
91%
7%
17% 18%
2%
7%
14%
10%
2%
46%
3%
9%
37%
5%
29%
1%
1%1%
1%
90%
7%
1% 1%
16%
17%
2%
2%4%
21%
Morgunblaðið/Kristinn
Reykjavík Gangi könnun Félagsvísindastofnunar eftir munu borgarbúar
búa við stjórn sömu flokka og áður eftir kosningar 31. maí.
myndum við vilja hafa sterkara um-
boð en þetta,“ sagði hann.
Eru með kjarnafylgið
„Þetta er að okkar mati nokkurn
veginn okkar kjarnafylgi,“ sagði
Halldór Auðar Svansson, oddviti Pí-
rata. „Við höfum verið að vonast til
að hækka okkur varanlega með
kosningabaráttu okkar. Það er
greinilega nóg vinna eftir hjá okkur
miðað við þessar tölur,“ sagði hann.
Halldór kvað Pírata í Reykjavík nú
setja fullan kraft í baráttu sína og
vonuðust þeir til að það skilaði sér í
auknu fylgi á kjördag. Samkvæmt
könnuninni ættu 14% kjósenda eftir
að gera upp hug sinn þannig að stað-
an í kosningunum væri enn opin.
Framsókn bjartsýn
„Þetta eru bara tölur á blaði. Við
erum bjartsýn og höldum áfram að
vinna að þeim góðu málefnum sem
við berjumst fyrir,“ sagði Sveinbjörg
Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti
Framsóknarflokksins. Hún sagði að
framsóknarmenn vonuðu að kosn-
ingamál þeirra næðu augum og eyr-
um fjöldans þegar fram í sækti. „Þó
að ekki séu nema rúmar þrjár vikur
til kjördags er það langur tími í póli-
tík,“ sagði hún.
Alvarlegar fréttir
„Þetta eru alvarlegar fréttir. Það
væri vont ef borgarbúar höfnuðu
Vinstri grænum í vor, enda enginn
flokkur sem stendur jafn fast með
félagslegu réttlæti og umhverf-
isvernd,“ sagði Sóley Tómasdóttir,
oddviti VG. „Það skiptir gríðarlegu
máli að rödd Vinstri grænna heyrist
skýrt á næsta kjörtímabili.“ Sóley
kvaðst ekki trúa öðru en að fylgi
flokksins myndi aukast aftur fyrir
kosningar. gudmundur@mbl.is
Halldór Auðar
Svansson
S. Björn
Blöndal
Halldór
Halldórsson
Dagur B.
Eggertsson
Sóley
Tómasdóttir
Sveinbjörg Birna
Sveinbjörnsdóttir
Næsti borgarstjóri
Á morgun