Morgunblaðið - 09.05.2014, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 09.05.2014, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ekki erumörg ár fráþví að und- irskriftasafnanir töldust nýmæli sem hrist gætu upp í hinni pólitísku tilveru. Þá þóttu það tíðindi ef undirskrift- irnar á móti einhverju dægur- máli næðu 10 þúsundum. Undir- skriftir Varins lands höfðu þó algera sérstöðu enda voru áhrif- in mikil. En muna mætti að að- standendur þeirrar söfnunar voru sérlega gætnir og vand- virkir og var ekki laust við að í hita leiksins væri jafnvel reynt að notfæra sér það, til að gera hið merka framtak tor- tryggilegt. Í fyrri tíð var það auðvitað þannig að menn skrifuðu per- sónulega undir yfirskrift skjals- ins, enda var þetta söfnun und- irskrifta. Fölsun nafns var nánast óhugsandi, enda litin mjög alvarlegum augum, en þó voru dæmi þess. Eftir að fjölda- safnanir á netinu komu til er óhjákvæmilegt að hafa vara á. Slíkar undirskriftir er nánast ómögulegt að sannreyna. Stikk- prufur hafa verið gerðar og t.d. hringt í tilviljanakennt úrtak til að kanna hvort þeir sem í því lenda kannist við að hafa lýst yf- ir samþykki í gegnum tölvuna sína. Slík áreiðanleikakönnun er þó ekki mjög mikils virði. Þeir sem hafa lengi verið staðsettir viðtökumegin við undirskriftarsafnanir, ekki síst á meðan undir þær var sannar- lega ritað, sáu að aðstandendur kannana gerðu sjálfir ekki ráð fyrir því, að nokkru sinni yrði rýnt í nöfnin. Fór ekki á milli mála að í mörgum tilvikum höfðu aðstandendurnir látið nægja að renna lauslega yfir þær. Látið að öðru leyti nægja að telja útfylltar blaðsíður og margfalda svo með þeim nöfn- um sem komust á hvert blað. Auðvitað sást að strikað hafði verið yfir Andrés Önd, Ketil Skræk og Stekkjastaur, sem gerði plöggin og tölurnar trú- verðugri. En iðulega höfðu þeir komist upp með að segja sitt álit Bjartur í Sumarhúsum 16 Hornafirði, Jesús Jósefsson, Ol- íufjalli 15, Fáskrúðsfirði og fleiri sem full ástæða var svo sem til að taka töluvert mark á. Glöggur lesandi í röðum við- takenda sá eitt sinn að þjóð- kunnur merkismaður hafði skrifað 5 sinnum nafn sitt á mis- munandi undirskriftarblöð. Þegar lesandinn rakst á þann kunna mann á förnum vegi og innti hann eftir hvernig á þessu stæði svaraði sá: „Þetta er svo góður málstaður að minna mátti það ekki vera.“ En hvað sem slíkum dæmum líður þá standa engar líkur til þess að aðstandendur slíkra safnana hafi haft vilja til þess að gefa villandi mynd af þunganum í andstöðunni það og það sinnið. Fólki var einfald- lega treyst til að taka ábyrga afstöðu og skynja alvöruna sem í því fælist að rita nafn sitt, heimilisfang, nafnnúmer (eða kennitölu) á blað sem var ætlað að hafa áhrif á ákvarðanatöku opinberra aðila. Á síðari tíma hefur viðhorfið orðið annað. Fræg eru dæmin um undir- skriftirnar gegn fjölmiðlalög- unum. Þá gengu hagsmuna- aðilar svo langt að með ólíkindum var og í öndvegi þeirrar óskammfeilni allrar er atgangur eins núverandi alþing- ismanns. Undirskriftirnar, sem feng- ust með þvílíkum aðferðum, voru raunar furðu fáar miðað við það sem á gekk og síðar hef- ur orðið. Þær munu þó hvergi vera til svo hægt sé að skoða þær eða sannreyna. Gömlu und- iskriftirnar, sem risu undir því nafni, er að finna í skjalasöfn- um. Þær eru í eðli sínu fjarri því að vera trúnaðarmál. Þeir, sem ljá nafn sitt við áskorun, vilja setja fullan þunga persónu- legrar skoðunar sinnar mál- staðnum til gagns. Þess vegna vekur nýupplýst framganga ESB-sinna sérstaka eftirtekt. Þeir viðurkenna að ómögulegt sé að fá nema lítinn hluta þjóðarinnar til að styðja yfirlýsingu um að ganga í ESB. Þess vegna var skipt um gír. Þeir, sem lengi hafa barist fyrir því að Ísland gangi í ESB og „verndi fullveldi sitt með því að fela hluta þess öðrum,“ eins og þeir orða það, breyttu sér í skoðanalausa „viðræðusinna,“ opna fyrir öllu! Kannanir voru gerðar og spurt hvort „klára“ bæri „samn- ingaviðræður“ sem þó fóru eng- ar fram að mati ESB sjálfs og þótt aðlögunarathugun hefði legið niðri í tæp 3 ár! Þeim tókst stundum í könnunum að fá við- unandi svar við spurningu um að „klára og kjósa,“ jafnvel þótt yfirgnæfandi meirihluti sé gegn því að ganga í ESB. Þeir hafa síðan þennan steininn klappað, en málstaðurinn, um að ganga í ESB, verið falinn. Undirskriftasöfnun í þessa veru var sett af stað, en gekk dræmt. Þegar henni loks lauk hafði hún aðeins náð 70% af undirskriftum gegn aðför að flugvellinum. Nú er upplýst að tæplega fjórðungur þeirra sem þó „skrifuðu undir“ virðist ekki telja sér neinn heiður að því. Þess vegna blasir við, að sá ein- staklingur sem oftast skrifar undir þessa söfnun, er Óskar Nafnleyndar. Ekki er vitað með öruggri vissu hvar Óskar Nafnleyndar býr, en líklegt er talið að lög- heimili hans sé að Leynimýri, við hlið útfararþjónustunnar, sem þar er. Það fer ekki illa á því. Ekki batnar það}Fá óskar í undirskriftum É g fyrirlít skoðanir þínar en er reiðubúinn að deyja fyrir rétt þinn til þess að tjá þær.“ Ein- hvern veginn svona hljóðar þekkt tilvitnun sem gjarnan hefur verið eignuð franska heimspekingnum François-Marie Arouet sem var betur þekkt- ur undir nafninu Voltaire. Voltaire lét um- rædd orð hins vegar að öllum líkindum aldrei falla með beinum hætti en talið er að tilvitn- unina sé að rekja til enska rithöfundarins Evelyn Beatrice Hall og bókar hennar The Friends of Voltaire sem hún reit undir höf- undarnafninu S.G. Tallentyre og gefin var út árið 1906. Með tilvitnuninni reyndi Hall að draga saman afstöðu Voltaires til tjáningar- frelsisins og hefur tilvitnunin fyrir vikið gjarnan verið notuð til þess að lýsa kjarna þess. Talsvert önnur útlegging hefur hins vegar oft heyrzt í seinni tíð þegar kemur að tjáningarfrelsinu. Þar hefur orðalagið yfirleitt verið á þá leið að bera ætti virðingu fyrir skoðunum annarra. Sama hverjar þær væru. En skoðanir fólks eru líklega nokkurn veginn jafn margar og misjafnar og fjöldi þeirra einstaklinga sem byggja þessa jörð. Mörgum þeirra er vafalaust hægt að bera virðingu fyrir og í sumum tilfellum mikla virðingu. Öðr- um klárlega ekki og sumar skoðanir eru einfaldlega þess eðlis að full ástæða er til þess að fyrirlíta þær. Hvernig er til að mynda mögulegt að bera virðingu fyrir þeirri skoðun að réttlætanlegt sé að beita aðra ofbeldi og mismunun á grundvelli kynþáttar? Það er skoðun sem ég persónu- lega get engan veginn borið virðingu fyrir og mun aldrei geta. Eða að konur skuli kúgaðar vegna kyns síns og meinað á þeim grundvelli að taka eðlilegan þátt í samfélaginu? Stað- reyndin er sú að það er einfaldlega ekki hægt að bera virðingu fyrir öllum skoðunum. Hins vegar er hægt að bera virðingu fyrir rétti fólks til þess að tjá skoðanir sínar enda sá réttur einn og hinn sami í lýðræðislegu sam- félagi þó skoðanirnar kunni að vera ólíkar. Þetta er enda nákvæmlega það inntak sem felst í tilvitnuninni sem getið er í upphafi og eignuð hefur verið Voltaire. Hún er rétt- nefndur kjarni tjáningarfrelsisins. Hugsuðir upplýsingarinnar litu einu sinni svo á að tján- ingarfrelsið væri ekki aðeins fyrir þá sem hefðu réttar skoðanir heldur einnig þá sem talið væri að hefðu rangar skoðanir. Hins vegar verða vitanlega allir að vera reiðu- búnir að axla ábyrgð á skoðunum sínum ef á reynir. Þar kemur til hið sígilda samband frelsis og ábyrgðar sem því miður hefur ekki alltaf verið haft í hávegum. Hitt er svo annað mál að þegar allt kemur til alls eru beztu viðbrögðin við skoðunum sem ekki þykja æskileg- ar af einhverjum ástæðum ekki boð og bönn heldur að svara þeim með rökum í málefnalegri og lýðræðislegri umræðu. Boð og bönn gera jú gjarnan einungis illt verra. hjortur@mbl.is Hjörtur J. Guðmundsson Pistill Virðing og skoðanir STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Þrátt fyrir bata á bygging-armarkaði að undanförnuáætla sements- og steypu-salar að salan í ár verði undir langtímameðaltali. Gunnar H. Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Sementsverksmiðj- unnar, segir að salan á sementi sé enn undir langtímameðaltali. „Sé litið áratugi aftur í tímann hafa að meðaltali selst um 110 þúsund tonn af sementi á ári á Íslandi. Ég á ekki von á að það meðaltal í sölu náist í ár. Það mun taka lengri tíma.“ Sementsverksmiðjan á Akranesi hætti framleiðslu í ársbyrjun 2012 og hóf þá í staðinn innflutning á sementi frá NORCEM í Noregi. Gunnar seg- ist aðspurður ekki telja að fram- leiðsla á sementi hefjist aftur á Ís- landi í bráð. Slík framleiðsla yrði enda að óbreyttu ekki raunhæf. Alexander G. Alexanderson, fram- kvæmdastjóri Steypustöðvarinnar, segir að salan sé nú á bilinu 50-60% meiri en þegar steypusala var í sögu- legu lágmarki á Íslandi árið 2010. „Steypusala hefur aukist undan- farna mánuði. Við fórum að finna svo- lítið fyrir þessu þegar það fór að líða á síðasta ár. Þá urðu skörp umskipti í steypusölu. Það virðist margt í píp- unum. Þær eru hins vegar oft stífl- aðar, þessar pípur. Áætlanir okkar gera ráð fyrir að salan í ár aukist töluvert frá því í fyrra. Samt munum við ekki ná meðalárferði í sögulegu samhengi. Það vantar töluvert upp á það.“ Samkeppni þrýstir niður verði Spurður hvernig verðið á steypu sé þessa dagana bendir Alexander á að þar sem „kakan sé lítil“ sé lítið til skiptanna fyrir steypufyrirtækin. „Samkeppnin á þessum markaði hef- ur verið mjög hörð. Steypuverð hefur alls ekki fylgt verðlagsþróun, langt í frá. Steypuverð hefur ekki fylgt verði á öðrum byggingarvörum. Félögin á markaðnum eru enda í bullandi vand- ræðum. Þau þurfa að fá meiri fram- legð út úr vörunni,“ segir Alexander. Gunnar Þór Ólafsson, forstöðu- maður sölu- og markaðssviðs BM Vallár, segir útlit fyrir að árið 2014 verði það besta í rekstri félagsins frá 2009. Því fari hins vegar fjarri að sal- an á steypu í ár verði til jafns við söl- una í kringum aldamótin þegar hún var í hinu sögulega meðaltali. „Salan er að glæðast og árið 2014 verður stærsta steypuár frá hruni. Magnið er hins vegar enn ekki mikið og því er verðið of lágt, því fyrirtækin þrjú sem selja steypu á höfuð- borgarsvæðinu eru í grimmri sam- keppni. Þetta kemur fram í afkomu fyrirtækjanna. Það þarf tvö til þrjú ár til viðbótar til að ná jafnvæginu sem var á markaðnum fyrir bóluárin. Við hjá BM Vallá vonumst eftir að ná þessu jafnvægi í rekstrinum á ár- unum 2016-2017,“ segir Gunnar sem telur að enn sé því langt í land. Hálfdrættingar á við fyrri ár „Við erum nú um það bil hálfdrætt- ingar á við það sem við vorum á ár- unum fyrir bóluárin í sölu á steypu. Rekstur byggingarfyrirtækja og steypuframleiðenda er erfiður vegna þess hvað sveiflurnar eru miklar. Það væri æskilegt að það væri jafnari dreifing á opinberum fram- kvæmdum. Það væri heppilegt að hið opinbera væri einskonar sveiflujafn- ari á markaði. Þá væri betra að hafa nákvæmari gögn um þörf fyrir nýjar íbúðir á markaðnum svo verktak- arnir yrðu þá öruggari með að ráðast í framkvæmdir. Framkvæmdir í ferðaþjónustu og jarðgangagerð hafa aukið sölu á steypu í landinu á þessu ári.“ Ýmislegt í farvatninu Haukur Guðmundsson er forstjóri og eigandi steypustöðvarinnar Grá- bergs. Fyrirtækið tók til starfa í haust og segir Haukur að síðan hafi salan verið á uppleið. „Það eru mörg stór verkefni fram- undan. Það er því mikil magnaukning í framleiðslu í steypu á höfuð- borgarsvæðinu. Nefna má verkefni eins og Hljómalindarreitinn, Lýsis- reitinn, 16 hæða hótelturn á Höfða- torgi, Mýrargötuhúsið, Alvogen- húsið í Vatnsmýri og fangelsi á Hólmsheiði, svo eitthvað sé nefnt. Að auki eru margir verktakar að fara af stað á næstunni með íbúða- framleiðslu. Eftirspurnin er að aukast og Gráberg mun taka fullan þátt í samkeppninni á markaðnum. Framlegðin er því miður enn lítil. Þegar ég kom inn í þennan bransa veðjaði ég á að samhliða minni fjár- festingu myndi tvennt koma til; hækkandi einingarverð og aukin eftirspurn. Magnið hefur tekið við sér og ég hef fulla trú á að einingar- verðið fari hækkandi. Þess vegna hefur Gráberg fjárfest í auknum tækjakosti til að mæta þörfum mark- aðarins,“ segir Haukur. Steypusalan enn undir langtímameðaltali Morgunblaðið/Ómar Framkvæmdir Þrátt fyrir bata á byggingarmarkaði að undanförnu áætla sements- og steypusalar að salan í ár verði undir langtímameðaltali. Íslenski sements- markaðurinn „Annað Portlandssement“ í þúsundum tonna 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 Heimild: Hagstofa Íslands/Sementsverksmiðjan Innflutt Innlend framleiðsla 166 153 319 229 105 63 59 65 78 111 118 38 67 24 39 27 32 65 78 Samtals

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.