Morgunblaðið - 09.05.2014, Qupperneq 38
38 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2014
Ég verð nú bara á stóra sviði Þjóðleikhússins að leika í Spamalotá afmælinu mínu en ætla að halda upp á þetta eftir sýningu álaugardaginn,“ segir Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir, leik- og
söngkona, sem er þrítug í dag. Hún leikur og syngur í Spamalot þessa
dagana, auk hlutverks í Eldrauninni á stóra sviði Þjóðleikhússins.
Þetta er hennar eldskírn á leiksviði hérlendis en Thelma lærði óp-
erusöng og sviðslistir í Glasgow á árunum 2007-2009. „Ég kom heim
eftir að hafa útskrifast í Skotlandi og hef aðallega verið í söngnum.
Það var rosalega gaman að komast að hjá Þjóðleikhúsinu og skemmti-
legt að fá tækifæri í verki eins og Spamalot.“
Sem fyrr segir gefst ekki tækifæri til þess í dag, til að halda upp á
þrítugsafmælið, en að lokinni sýningu á Spamalot á morgun, sem
hefst kl. 16, ætlar hún að bjóða til sín vinum og ættingjum. Partíið
byrjar um það leyti sem stigagjöfin í Eurovision hefst. „Ég er mikið
Eurovision-barn og orðin vön því að halda upp á afmælið á sama tíma
og keppnin fer fram. Það er bara gaman að því.“
Thelma verður að leika fram í miðjan júní og síðan tekur við sum-
arfrí. „Ég mun taka gigg í söngnum hér og þar,“ segir Thelma en auk
einsöngs við ýmis tækifæri hefur hún sungið með Schola Cantorum og
fleiri sönghópum. Hún hefur m.a. lagt stund á söngkennslunám og
stýrir Krúttakórnum í Langholtskirkju. bjb@mbl.is
Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir 30 ára
Leik- og söngkona Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir bæði syngur og
leikur og er mikill aðdáandi Eurovision-söngvakeppninnar.
Eurovision að leik
loknum í Spamalot
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Guðríður Dýrleif Kristjánsdóttir Skjóldal,
Holtateigi 54, Akureyri er níræð í dag.
Dýrleif er fædd í Ytra-Gili í Eyjafirði 9. maí
1924, ein af níu systkinum. Dýrleif og eig-
inmaður hennar Guðjón Símon Björnsson
fagna áfanganum í Reykjavík, ásamt börn-
um sínum.
Eiginmaður hennar, börn, barnabörn og
barnabarnabörn óska henni hjartanlega til
hamingju með daginn og megi dagurinn
verða henni hamingjuríkur og ánægju-
legur.
Árnað heilla
90 ára
Kópavogur Freyja Karítas fæddist
17. september kl. 14.15. Hún vó 3.926
g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar
eru Íris Hauksdóttir og Finnur Marinó
Flosason.
Nýir borgarar
Reykjanesbær Sigrún Svala fæddist
25. mars kl. 23.17. Hún vó 3.480 g og
var 51,5 cm löng. Foreldrar hennar eru
Bryndís Ósk Pálsdóttir og Siggeir
Pálsson.
K
ristján fæddist í Reykja-
vík 9.5. 1974 og ólst upp
á Njálsgötunni fyrstu
fimm árin en síðan á
Austurgötunni í Hafn-
arfirði: „Ég á skýrar og skemmti-
legar minningar frá fyrstu æviár-
unum á Njálsgötunni. Þar ólst ég upp
undir þöndum vængjum Hallgríms-
kirkju og var ekki hár í loftinu þegar
ég lagði í könnunarleiðangra um ná-
grennið í þessu gamla, fjölbreytilega
og skemmtilega hverfi.
Á Austurgötunni í Hafnarfirði
bjuggum við hins vegar nokkurn veg-
inn miðja vegu milli Fríkirkjunnar og
Hafnarfjarðarkirkju, svo ég noti nú
kirkjurnar sem kennimörk á þessum
æskulóðum.
Ég var svo í sveit í tvö sumur í Fell-
sási í Breiðdalnum. Þar var manni
haldið að vinnu og mér fannst það
svolítið puð á þeim tíma. En eftir á að
Kristján Þór Sverrisson, viðskiptafr. og kristniboði – 40 ára
Fjölskyldan Helga Vilborg og Kristján, ásamt Margréti Helgu, Karitas, Davíð Ómari, Dagbjarti Elí og Jóel.
Við kristniboðsstörf
í Eþíópíu í fimm ár
Bókhaldsnemar Kristján, ásamt nemendum sínum í Addis Abeba.