Morgunblaðið - 09.05.2014, Blaðsíða 40
40 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2014
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta í 90 ár
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Dagurinn verður annasamur, ekki síst
fyrir hádegi. En þú þolir ekki þegar fólk stelur
smekklegu hugmyndunum þínum og þykist
eiga þær.
20. apríl - 20. maí
Naut Svo virðist sem fólk reyni vísvitandi að
reita þig til reiði í dag. Bjartsýni þín er
kannski á rökum reist, en gættu þess að láta
ekki glepjast.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú býrð yfir ýmsum hæfileikum
sem nýtast þér þegar á reynir. Er það upp-
skrift að ævintýri eða ógæfu? Gakktu í lið
með öðrum og hið fyrra verður ofan á.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Taktu eftir sérhverjum gleðiviðburði
því þú átt eftir að hafa margt til þess að
gleðjast yfir. Reyndar lifir sjálfsblekkingin
bestu lífi í málefnum hjartans, svo mikið er
víst.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er komið að því að menn taki eftir
framlagi þínu. Og ef þú veist ekki hverju trúa
skal, mun opinn hugur koma þér á réttan
stað. Væntingar eru sennilega raunhæfar.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Sögur, slúður og dramatík gera vart
við sig í fjölskyldulífinu. Dressaðu þig upp,
stórkostlegt tækifæri bíður þín.
23. sept. - 22. okt.
Vog Gæðin sem þú glæðir daginn með auka
líkurnar á heppni. Bjartsýni og eldmóður eru
rétta umhverfið fyrir þá til að vaxa og dafna í.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það góða við að hafa tvöfaldan
persónuleika, er að þú þarft ekki að bregðast
við á einn veg. Ekkert er samt eins vandræða-
legt og fólk sem talar í kross.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Finndu þér einhvern sem þú get-
ur deilt hugsunum þínum með. Leggðu þitt af
mörkum til þeirra sem hafa stutt þig með
ráðum og dáð. Kvöldið verður óvænt og
skemmtilegt.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú býrð yfir ýmsum hæfileikum
sem nýtast þér þegar á reynir. Kannski þarft
þú að hætta að telja þér trú um að bara þeir
vinnusömu eigi skilið að vera elskaðir.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú átt í einhverri valdabaráttu,
sem tekur æði mikinn tíma frá þér. Gefðu þér
tíma til að sinna þínum nánustu, það gefur
þér margfalt til baka.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það eru ýmsir möguleikar opnir í
stöðunni og þú þarft að gefa þér tíma til að
gaumgæfa málin vandlega. Annað mun ein-
ungis koma í bakið á þér síðar.
Það er skemmtilegt að flettaljóðabókum og rifja upp með
sjálfum sér hvernig hin ýmsu skáld
heilsa vorinu. Fyrstur er Jakob Jóh.
Smári:
Fyrir handan sortans sæ
silfrast randir skýja.
Í vesturstranda vörmum blæ
vorið andar nýja.
Steingrímur Thorsteinsson hefur
verið í sólskinsskapi þegar hann
orti:
Grundin vallar glitruð hlær
glóir á hjalla og rinda;
sólarhalla blíður blær
blæs um fjallatinda.
Og þessi braghenda:
Látum skotið fari á flot á fagran græði,
vindur lotinn varpar mæði,
varla er brot á Ránar klæði.
Páll Ólafsson orti:
Sólin gleður grund og hól
græðir vetrar sárin;
lætur þó in sama sól
svellin fella tárin.
Jaka lætur Jökulsá
jafnt á löndin flóa,
Hlíðin orðin auð að sjá
er og fer að gróa.
„Dýrðin!“ öllum dögonum
drottni lóan kveður
hjarðirnar í högonum
hlýja veðrið gleður.
Sér á fjalla blárri brún
bjartir fossar hrósa,
sóley kemur senn í tún,
silungur í ósa.
Kristmann Guðmundsson er í
öðrum hugleiðingum vorið 1925:
Vorið heldur í vestur,
vorsól um Hvalfjörð skín;
en ég er útlagi orðinn
og enginn saknar mín.
Því ég hef brotið brýrnar
að baki mér, fyst um sinn.
Í minn stað sálast úr sulti
má sjálfur andskotinn.
En golan gustar um ennið;
góðvinar máli lík,
hvíslar hún viðkvæmt að vestan
um vorkvöld í Reykjavík.
Elín Sigurðardóttir á síðasta orð-
ið – vormorgnar eru fallegir á
Langanesi!:
Röðull fagur gyllir grund,
glóir lagarveldi,
gróðrarhag og gull í mund
gefur dagur kveldi.
Halldór Blöndal.
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vorvísur frá Arnarstapa
austur í Jökulsárhlíð
Í klípu
BYGGIÐ BRÝR, EKKI VEGGI. NEMA ÞEGAR
KEMUR AÐ HÚSNÆÐI. ÞÁ ER BETRA AÐ
BYGGJA VEGGI.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„BARA SNYRTA SMÁ Í KRINGUM HÚFUNA.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar þið vitið allt
hvort um annað.
HJÁLP! ÉG ER AÐ
BREYTAST Í KÖTT!
NEI, BÍDDU, ÞAÐ ER EKKI RÉTT!
ÉG ER BARA ÞAKINN ÓGEÐSLEGUM
KATTAHÁRUM AF ÞÉR!
EN ÞAU
VONBRIGÐI.
KOMIÐ EKKI
NÆR!
ANNARS
MUNIÐ ÞIÐ
IÐRAST!
VÁ, SÁ ER
KJARKAÐUR!
ER ÞETTA
EIGANDINN?
NEI, HANN VINNUR HJÁ
BANKANUM SEM Á LÁNIÐ Á
HÚSINU.
Margir af helstu listamönnumþjóðarinnar stigu sín fyrstu
skref í bílskúrum og margar bíl-
skúrssveitirnar hafa náð langt á
frægðarsviðinu. Víkverji er sann-
færður um að án þessara banda væri
tónlistarheimurinn mun fátæklegri
en hann er, jafnvel ekki svipur hjá
sjón.
x x x
Hljómar frá Keflavík ruddu braut-ina í íslenska bítlaheiminum og
á Suðurnesjum eins og víða annars
staðar hafa bílskúrsbönd reynt með
sér í keppni eins og til dæmis hljóm-
sveitakeppninni Rokkstokk í
Reykjanesbæ. Upp úr þessum
keppnum hafa sprottið hin bestu
bönd og miklir tónlistarmenn. Bíl-
skúrsbönd hafa líka náð eyrum og
augum tónlistarunnenda á hátíðum
eins og Menningar- og listahátíðinni
Björtum dögum í Hafnarfirði.
x x x
Ekki er samt algilt að liðsmenn bíl-skúrsbanda verði heimsfrægir.
Þannig reyndi Víkverji fyrir sér í
einu bílskúrsbandi fyrir margt löngu
en hann lék aldrei á hljóðfærið utan
bílskúrsins. Eftirspurnin eftir kröft-
um hans á þessu sviði var einfald-
lega engin. Hins vegar átti hann
góðar stundir með félögum sínum í
upphitaða bílskúrnum og einhvers
staðar á hann áritaðar myndir af
þeim sem til stóð að dreifa í Liver-
pool og víðar í þá gömlu, góðu daga,
en því miður lognaðist bandið út af
áður en fyrsta utanlandsfrægð-
arferðin var skipulögð.
x x x
Margir óslípaðir demantar eru átónlistarsviðinu víða um land.
Þeir fá tækifæri til þess að blómstra
í bílskúrsböndum og Bjarkir og Sig-
ur Rósir eiga eflaust eftir að dafna
og springa út. Alls staðar nema í
Reykjavík, því nái ráðamenn borg-
arinnar áfram meirihluta stendur
hugur þeirra til að rífa bílskúra í
borginni. Með því er ekki aðeins
vegið að eignarrétti fólks heldur ráð-
ist á grunn tónlistarfólks. Ef fram
heldur sem horfir verða því engin
bílskúrsbönd í Reykjavík í náinni
framtíð. Ekkert Pollapönk. Það get-
ur ekki verið gott fyrir framtíð tón-
listarinnar í landinu. víkverji@mbl.is
Víkverji
Náð Drottins er ekki þrotin, miskunn
hans ekki á enda,
(Harmljóðin 3:22)