Morgunblaðið - 09.05.2014, Blaðsíða 48
Nýliðar Fjölnis tróna á toppnum í
Pepsi-deild karla í knattspyrnu að
loknum tveimur umferðum. Fjölnir
sótti þrjú stig til Akureyrar í gær-
kvöld með 2:1-sigri á Þór. Keflavík og
Stjarnan hafa líka fullt hús stiga eins
og Fjölnir. Keflavík vann Val, 1:0, og
Stjarnan vann ÍBV, 2:1. Nánar um alla
sex leiki gærkvöldsins í 8 síðna
íþróttablaði. »1, 3, 4, 5, 6, 7
Fjölnir, Keflavík og
Stjarnan með fullt hús
FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 129. DAGUR ÁRSINS 2014
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Regluleg laun 436 þúsund krónur
2. „Hann ætlar að láta mig borga“
3. „Þessi hjól skila sér aldrei“
4. Leitað að þremur stúlkum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Páll Óskar Hjálmtýsson hertekur
þáttinn Poppland á Rás 2 í dag, frá kl.
12.45 til 16 og mun eingöngu leika
Eurovision-lög til að hita hlustendur
upp fyrir lokakeppnina sem fram fer
annað kvöld. Útvarpsmennirnir Ólaf-
ur Páll Gunnarsson og Matthías Már
Magnússon verða honum til halds og
trausts. Páll Óskar mun auk þess
syngja Neil Young-lag dagsins með
Ólafi Páli sem er einhver heitasti
aðdáandi Young norðan Alpafjalla.
Young-lag dagsins hefur til nokkurra
vikna verið daglegur liður í Popplandi
í tilefni af því að Young heldur tón-
leika á Íslandi í sumar.
Morgunblaðið/Kristinn
Eurovision og Young
Sýning á verk-
um Jans Pozoks
verður opnuð í
dag kl. 16 í að-
alsafni Borgar-
bókasafns við
Tryggvagötu. Po-
zok hefur mynd-
skreytt barna-
bækur frá árinu
1989, gefið út eigin myndasögur og
myndasögur erlendra höfunda.
Pozok í bókasafni
Kvikmyndin Vonarstræti var for-
sýnd í Háskólabíói í fyrrakvöld og bað
leikstjóri hennar, Baldvin Z, gesti að
taka upp farsíma sína og taka mynd
af honum að taka mynd af sjálfum
sér með bíósalinn í bakgrunni. Bald-
vin bað svo gesti um að setja mynd-
irnar á samskiptavefi,
t.d. Facebook og
hvetja fólk um leið til
að fara á myndina í
bíó. Almennar sýn-
ingar á Vonarstræti
hefjast 16. maí.
Sniðugur leikstjóri
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustanátt, víða 3-10 m/s. Skýjað með
köflum og úrkomulítið sunnan- og vestanlands en áfram vætusamt
norðaustanlands. Hiti 3 til 12 stig að deginum.
VEÐUR
ÍBV jafnaði úrslitaeinvígið
við Hauka um Íslandsmeist-
aratitil karla í handbolta
þegar Eyjamenn sigruðu
Hauka í öðrum leik liðanna,
25:23. Staðan í einvíginu er
nú 1:1, en vinna þarf þrjá
leiki í úrslitunum til þess að
verða Íslandsmeistari. Rétt
eins og í fyrsta úrslitaleik
liðanna var leikurinn í gær
jafn og gríðarleg barátta í
báðum liðum, enda sjálfur
titillinn í húfi. »2
ÍBV jafnaði metin
gegn Haukum
Íslenska kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu tapaði fyrir Sviss í gærkvöld,
3:0, í undankeppni heimsmeist-
aramótsins í knattspyrnu. Sviss
stendur nú með pálmann í hönd-
unum með að ná 1. sætinu í riðl-
inum. Ísland þarf því að setja stefn-
una á 2. sæti og treysta á að
komast í umspil um laust sæti á
HM. »8
Tap gegn Sviss gerði
leiðina á HM erfiðari
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Ufuoma Overo-Tarimo frá Nígeríu
skreytir systur sína með slæðum,
eins og gert er í Nígeríu við ákveð-
in tilefni, eins og til dæmis þegar
kona er á höttunum eftir eigin-
manni, í Ráðhúsinu á morgun.
Þetta er liður í dagskrá fjölmenn-
ingardagsins.
„Ég sagði við systur mína að
hún yrði að koma til landsins
vegna þess að mig vantaði höfuð,“
segir Ufuoma, sem kom fyrst til
Íslands 1994 og hefur búið hér í
rúman áratug.
Ufuoma er mjög önnum kafin en
finnur tíma fyrir allt. „Það reddast
allt á endanum og þá er það ekkert
mál,“ segir hún. „Ég fer í laugina á
hverjum morgni, geri æfingar og
fer svo að vinna.“
Menning og skreið
Hún hefur tekið sérstöku ást-
fóstri við enska skáldið Geoffrey
Chaucer og hefur samið leikrit,
sem verður í Austurbæ 12.-20. júlí
í tengslum við ráðstefnu HÍ um
Chaucer. Í leikritinu The Miller’s
Tale: Wahala Dey Oh! tengir hún
daglegt líf í Nígeríu við eina sögu í
Kantaraborgarsögum Chaucers frá
miðöldum.
„Þetta er sama verk og ég setti
upp á hátíð í Edinborg fyrir tveim-
ur árum, þar sem það gekk vel og
fékk góða dóma,“ segir Ufuoma,
sem lauk MA-prófi frá Háskóla Ís-
lands 2008 og er í doktorsnámi í
enskum bókmenntum.
Ufuoma fæddist í Nígeríu
og bjó þar fyrstu árin en
flutti átta ára til Englands.
Eftir að hafa lokið BA-námi í
heimspeki í London sinnti
hún hjálparstörfum sem sjálf-
boðaliði í flóttamannabúðum í
Portúgal sumarlangt 1987. Þar
hitti hún meðal annars Ás-
mund Jónsson, með þeim tókst vin-
skapur og þegar hún gekk í hjóna-
band á Englandi nokkru síðar bauð
hún honum í veisluna. „Hann gaf
okkur skreið sem fyllti eina ferða-
tösku og heillaði allt Afríkufólkið
upp úr skónum,“ segir hún.
Nokkrum árum síðar slitnaði
upp úr hjónabandinu. Á leið í
heimsókn til fjölskyldunnar í
Bandaríkjunum í desember 1994
kom hún við á Íslandi, hitti Ás-
mund á ný og svo fór að þau gengu
í hjónaband á Þingvöllum árið
2003. „Við féllum strax fyrir landi
og þjóð,“ segir Ufuoma um fyrstu
heimsóknina 1994. „Hugarfarið
hérna minnir mig á samfélagið í
Nígeríu, hér er ég boðin velkomin
á sama hátt og í Nígeríu.“
Allt bjargast á endanum
Nígerísk kona
á fullu í menning-
unni á Íslandi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Listakona Ufuoma Overo-Tarimo frá Nígeríu kann vel við sig á Íslandi og leggur menningunni lið.
Fjölmenningardagur Reykjavíkur-
borgar verður haldinn í sjötta sinn
á morgun og verður boðið
upp á fjölbreytta dag-
skrá í Ráðhúsinu,
Tjarnarbíói og Iðnó.
Skrúðganga verður
frá Hallgrímskirkju að
Ráðhúsinu og hefst
hún kl. 13. Í Tjarnarsal
verður boðið upp á fjöl-
þjóðlegan markað til kl. 17
en kynning Ufuomu Overo-Tarimo
verður kl. 15-16. Í Tjarnarbíói verð-
ur meðal annars boðið upp á dans-
atriði og fleira og um kvöldið verð-
ur sýnt leikritið Ragnarök. Í Iðnó
verður listasmiðja fyrir börn þar
sem hægt verður að búa til pappa-
blóm, handalistaverk og margt
fleira. Farið verður í leiki, hoppkast-
ali verður fyrir utan, boðið verður
upp á andlitsmálningu og kenndir
litháískir dansar.
Fjölbreytt dagskrá
FJÖLMENNINGARDAGURINN Í REYKJAVÍK Í 6. SINN
VEÐUR » 8 www.mbl.is
Á laugardag Norðaustan 5-10 m/s. Lítilsháttar rigning eða slydda
norðaustan- og austanlands. Bjart að mestu á Suður- og Vestur-
landi. Hiti 1 til 11 stig að deginum.