Morgunblaðið - 23.05.2014, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2014
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Hafnar verða mælingar á veðri á
Esjunni á næstunni. Eru þær liður
í undirbúningi að því að koma upp
kláfi til að flytja farþega upp á
brún fjallsins. Verkefnisstjóri „Far-
þegaferju í Esju“ segir þó að veð-
urmælingarnar muni nýtast fólki
sem gengur á Esjuna og öðru
áhugafólki og muni auka öryggi
fólks.
Hugmyndir um að ferja farþega
upp á Esju eru ekki nýjar af nálinni
en með vaxandi ferðamannastraumi
til landsins er talinn grundvöllur til
að hrinda henni í framkvæmd.
Verkfræðistofa Jóhanns Indriða-
sonar hefur tekið málið upp á sína
arma og undirbýr framkvæmdina.
Matsskylda könnuð
Leyfi hefur fengist fyrir veður-
mælingum enda þurfa upplýsingar
um vind að liggja fyrir við hönnun
mannvirkisins. Á fyrirhuguðum
áfangastað á brún Esju, um tvo
kílómetra austan við Þverfellshorn,
verður sett upp veðurstöð og vef-
myndavél. Veðurstöðin er sjálfvirk
og síritandi og hægt að fylgjast
stöðugt með veðrinu. Einnig verða
settir upp mælar á Rauðhól í Esju-
hlíðum og á upphafsstað kláfsins,
við Mógilsá.
Áformað var að aka upp á fjallið í
fyrradag til að setja búnaðinn upp
en jepparnir urðu frá að hverfa
vegna aurbleytu á vegi. Í staðinn
munu starfsmenn fyrirtækisins
sem setja upp búnaðinn ganga með
hann upp í bakpokum, einhvern
næstu daga.
Arnþór Þórðarson, fjármála- og
rekstrarráðgjafi hjá verkfræðistof-
unni, segir að verið sé að undirbúa
fyrirspurn til Skipulagsstofnunar
um matsskyldu framkvæmdarinn-
ar. Hún verði send á næstu dögum.
Í sumar verði einnig gerðar mark-
aðsathuganir, viðhorf og áhugi Ís-
lendinga og erlendra ferðamanna
kannaður. Þá segir hann rætt við
Reykjavíkurborg og ríkið um lóðir
fyrir Esjuferjuna og útsýnis- og
veitingastað á brún fjallsins. Fjár-
festar hafi sýnt verkefninu áhuga
og segir Arnþór að viðræður standi
yfir við nokkra þeirra.
Reiknað er með að framkvæmdir
taki eitt til tvö ár frá því ákvörðun
verður tekin. Ef hægt verður að
byrja á næsta ári ætti kláfurinn að
komast í gagnið á árunum 2016 eða
2017.
Esja Arnþór Þórðarson við göngustíginn upp á Esju. Þverfell og Kistufell fyrir ofan. Esjuferjan mun liggja talsvert
austan við göngustíginn, frá Mógilsá. Áfangastaðurinn er tvo kílómetra austan við Þverfellshorn.
Vindmælir og vef-
myndavél á brún Esju
Uppsetning kláfs í Esjuhlíð undirbúin í sumar
Gert er ráð fyrir því að Esjulyftan verði rekin allt árið. Í lóðarumsókn til
Reykjavíkurborgar kom fram að áætlað væri að flytja 100-150 þúsund
farþega á ári.
Uppi á fjallinu er gert ráð fyrir útsýnisveitingastað enda segir Arnþór
Þórðarson að gestamóttaka verði að vera fyrir farþega á fjallinu. Þar
geti verið annað veður en á Mógilsá þar sem ferðin hefst.
Gert er ráð fyrir því að í skjóli kláfsins skapist möguleikar til iðkunar
íþrótta. Til dæmis verði hægt að skíða niður yfir háveturinn, þegar
mesti snjórinn er. Möguleikar verði á að hjóla og ganga enda Esjuhlíðar
stórkostlegt útivistarsvæði eins og Arnþór bendir á.
Möguleikar á íþróttaiðkun
LYFTAN REKIN ALLT ÁRIÐ
Biskup Íslands, Agnes M. Sigurð-
ardóttir, hefur kallað saman ráð-
gjafahóp til að fjalla um hlunnindi
kirkjujarða og prestssetra. Hópur-
inn mun einnig fjalla um auka-
greiðslur til presta og annarra
starfsmanna sókna og kirkju.
Í tilkynningu frá Biskupsstofu
segir að hópnum sé ætlað að vera
biskupi til ráðgjafar um ofangreind
málefni, taka saman greinargerð
um núverandi stöðu og eftir atvik-
um gera tillögur til biskups um það
sem nefndin telur að betur mætti
fara. Biskup mun í framhaldi af
vinnu hópsins leggja tillögur sínar
fyrir stofnanir kirkjunnar þar sem
þær verða ræddar og tekin afstaða
til þeirra eftir þá formlegu máls-
meðferð sem um slíkar tillögur gild-
ir.
„Ofangreind málefni hafa á und-
anförnum árum verið rædd á vett-
vangi kirkjunnar. Ýmsar breytingar
og lagfæringar hafa verið gerðar á
gildandi reglum en á sumum svið-
um er þörf á að skýra reglurnar og
jafnvel móta nýjar sem betur falla
að því þjóðfélagi sem við nú búum í.
Skipan ráðgjafahópsins er ætlað að
flýta þeirri vinnu og auðvelda bisk-
upi að taka afstöðu til þessara mik-
ilvægu mála,“ segir í tilkynningu
Biskupsstofu.
Formaður hópsins er Óskar
Magnússon, hrl. og útgefandi. Aðrir
í hópnum eru Svana Helen Björns-
dóttir, forstjóri Stika, og Steinunn
Valdís Óskarsdóttir verkefnisstjóri.
Þau eiga öll sæti í sóknarnefndum í
þjóðkirkjunni, Óskar er formaður
sóknarnefndar Breiðabólstaðar-
sóknar, Svana Helen er varafor-
maður sóknarnefndar Seltjarnar-
nessóknar og Steinunn Valdís er í
sóknarnefnd Laugarnessóknar.
Hópurinn þiggur ekki laun fyrir
störf sín.
Skoða hlunn-
indi og auka-
greiðslur
Biskup Íslands stofnar ráðgjafahóp
Andri Karl
andri@mbl.is
Þrettán núverandi og fyrrverandi
starfsmenn Byko, Húsasmiðjunnar
og Úlfsins byggingavöruverslunar
neituðu sök við þingfestingu máls
sérstaks saksóknara á hendur þeim
fyrir Héraðsdómi Reykjaness í
gærmorgun. Sakarefnið er aðallega
verðsamráðsbrot og tilraunir til
verðsamráðsbrota, einkum við verð-
upplýsingagjöf á grófvörum, þ.e.
bygginga- og timburvörum.
Málið hefur verið til rannsóknar í
rúm þrjú ár, en það hófst í mars
2011 þegar Samkeppniseftirlitið og
efnahagsbrotadeild ríkislög-
reglustjóra framkvæmdu húsleitir
hjá Byko, Húsasmiðjunni og Úlf-
inum. Málið var að hluta til rann-
sóknar hjá lögreglu og að hluta hjá
Samkeppniseftirlitinu, sem ekki
hefur lokið sinni rannsókn.
Samkvæmt því sem kemur fram í
ákæruskjali var einkum um að ræða
verðupplýsingagjöf símleiðis og
voru þær upplýsingar hagnýttar
innan fyrirtækjanna og urðu grund-
völlur að einstökum verðbreyt-
ingum á grófvöru.
Mögulega fært í Safnahúsið
Sakborningar mættu, ásamt verj-
endum sínum, í Héraðsdóm Reykja-
ness í gærmorgun og neituðu allir
sök. Þá var ákveðið að næsta þing-
hald færi fram í lok júní en það
verður notað til að ákveða grein-
argerðarfrest auk þess sem skipu-
lag málsins verður mögulega til um-
fjöllunar.
Ljóst er að málið verður ekki
rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness
vegna fjölda sakborninga. Til greina
kemur að aðalmeðferðin fari fram í
dómsal 101 í Héraðsdómi Reykja-
víkur eða jafnvel í Safnahúsinu, sem
áður nefndist Þjóðmenningarhúsið.
Dómari spurði hvort ekki ætti að
stefna að því að halda aðalmeðferð-
ina fyrir jól en efuðust verjendur
um að það næðist. Fari svo að málið
verði rekið í Héraðsdómi Reykja-
víkur er viðbúið að takmarka verði
aðgang almennings og fjölmiðla
vegna plássleysis í salnum.
Ekki aðeins eru sakborningar í
málinu margir heldur eru skjölin
sem sérstakur saksóknari hefur
lagt fram tæplega fimm þúsund.
Fór dómari fram á það við saksókn-
ara að hann tæki saman þau máls-
kjöl sem byggt yrði á, öllum til hag-
ræðis. Taldi saksóknari að það tæki
hann fjórar vikur og ætti verkinu
því að vera lokið fyrir næsta þing-
hald.
Morgunblaðið/Ómar
Dómstóll Málið var þingfest í Hér-
aðsdómi Reykjaness í Hafnarfirði.
Neituðu allir að hafa
staðið að verðsamráði
Tæplega fimm
þúsund skjöl lögð
fram af sækjanda
Fyrirsögn hér
Fyrirhuguð leið kláfsins
Gönguleið
Fyrirhugaður kláfur
Skipholti 3 - Sími: 552 0775 - www.erna.is
GULL- OG SILFURSMIÐJA
Njáluarmbandið Afmælistilboð112.000 kr.
Hannað af Ríkarði Jónssyni
og Karli Guðmundssyni
myndskera frá
Þinganesi. Silfurmunir og skartgripir í 90 ár 1924-2014