Morgunblaðið - 23.05.2014, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 23.05.2014, Qupperneq 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2014 Þegiðu háttvirtur þingmaður, Vigdís Hauksdóttir. Svo mæltist Steingrími J. á lokamínútum klukkustundar ræðu á lokametrum þings- ins nú í vor. Síðan sakaði hann forseta þingsins um að sitja sofandi í forsetastól. Aðeins eitt orð skap- aði þennan ofsa hjá þingmann- inum: „Landsbankabréfið“. Allt byrjaði þetta með samningi 15. desember 2009 þegar Steingrímur J. Sigfússon var fjármálaráðherra. Hann samþykkti að Nýi Lands- bankinn gæfi út 260 milljarða skuldabréf til þrotabús gamla Landsbankans í evrum, pundum og bandaríkjadollurum. Eftir að Hæstiréttur dæmdi gengislánin ólögleg komu fram áhyggjur af því að bankinn gæti ekki staðið undir skuldabréfinu. Það voru m.ö.o. færðar handónýtar eignir án nokkurra efnislegra fyrirvara inn í Nýja Landsbankann. Á þessum tíma var nokkuð sjáanlegt að gengistryggð lán væru ólögleg eins og seinna kom á daginn og varað var við. Auk þess var gefið út 92 milljarða skilyrt skuldabréf og er það m.a. ástæða þess að rík- isstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar gaf það út á blaðamannafundi þann 3. desember 2010 að meira yrði ekki gert fyrir heimilin, slík var harkan í innheimtuaðgerðum. Saman standa þessi bréf í 350-360 millj- örðum í erlendum gjaldeyri sem ekki er til. Þetta er klafi um háls þjóðarinnar um langa framtíð. Hin hliðin og nátengt þessu máli eru Icesave- samningar Steingríms sem að lokum og eftir mikla baráttu voru dæmdir sem ólögvarin krafa. Eftir að fundargerðir frá þessum tíma voru birtar þá er augljóst að allan tímann var verið að friða erlenda kröfuhafa, fórna þjóðarhag og ganga í berhögg við neyðarlögin. Ekki er hægt að hugsa þá hugsun til enda hefði Steingrímur J. náð sínu fram í báðum málum. Því er von að fyrr- verandi fjármálaráðherra sem hef- ur landað svo „glæsilegum samn- ingum“ við alþjóðlega fjármálaheiminn fari af hjörum þegar kvenkyns þingmaður uppi á Íslandi truflar handritið og hvísli í hliðarsal Alþingis „Lands- bankabréfið“. Landsbankabréfið og Steingrímur Eftir Vigdísi Hauksdóttur Vigdís Hauksdóttir »Ekki er hægt að hugsa þá hugsun til enda hefði Steingrímur J. náð sínu fram í báðum málum. Höfundur er lögfræðingur og þing- maður Framsóknarflokksins. Nú nálgast sveit- arstjórnarkosning- arnar óðfluga og þau stjórnmálaöfl sem eru í framboði í Kópavogi eru farin að kynna stefnumál sín. Miðað við loforðaflauminn hjá flokkunum þarf að halda vel á rekstri bæjarsjóðs til að eiga fyrir honum og mun ekki duga til. Fróðlegt er að fara yfir þau mál sem hafa verið efst á baugi í bæj- armálunum í Kópavogi að und- anförnu. Starfskjör bæjarfulltrúa Í tvö ár hafa starfskjör bæjarfull- trúa verið til umfjöllunar í bæj- arstjórn. Fyrst var stofnuð nefnd sem í var fulltrúi bæjarstjóra og bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar. Þeirra tillögur voru: a) Bæjarfulltrúastarfið úr 27% starfshlutfalli í 100%, fullt starf og laun yrðu þau sömu og alþing- ismanna. b) Bæjarfulltrúum yrði fjölgað í 15. c) Bæjarstjórn og bæjarráð afsal- ar sér þeirri skyldu og ábyrgð að samþykkja ákvarðanir einstakra nefnda, þ.e. nefndirnar myndu fullnaðarafgreiða sín mál. Undirritaður og Aðalsteinn Jóns- son bæjarfulltrúi voru þeir einu sem voru á móti málinu. Viðbót- arkostnaður vegna þessa er áætl- aður vel á annað hundrað milljónir á ári og laun bæjarfulltrúa hækka margfalt meðan fólkið í landinu er að fá 3-5% launahækkun. Eðlilegt er að laun bæjarfulltrúa hækki í samræmi við aðra. Undirritaður kom með þá tillögu, að ef þetta fyr- irkomulag yrði samþykkt væri rétt að bera það undir íbúana í bænum samhliða kosningunum í vor. Allir flokkarnir tala mikið um beint lýð- ræði en sömu fulltrúar hafa ekki viljað samþykkja þessa tillögu einhverra hluta vegna. Félagslegar leigu- íbúðir Mikill biðlisti er eft- ir félagslegum leigu- íbúðum hér í Kópa- vogi. Lítið hefur verið keypt af íbúðum inn í kerfið á undanförnum árum. Undirritaður lagði til í nóvember sl. að ca 40 íbúðir yrðu byggðar á næstu 2-3 árum. Þessari tillögu var, að tillögu bæjarstjóra, vísað í nefnd um húsnæðismál sem ekkert hefur komið út úr. Samfylk- ingin endurflutti svo tillögu und- irritaðs í febrúar, ásamt viðbótum, sem var samþykkt í bæjarstjórn eftir mikil mótmæli oddvita meiri- hlutaflokkanna. Þau voru ekki að hugsa um sína minnstu systur og bræður sem hafa ekki aðra valkosti en að leigja í félagslega kerfinu. Bæjarstjóri fékk matsfyrirtæki til að lækka lánshæfismat Kópa- vogsbæjar vegna þessarar sam- þykktar og auglýsti lækkað mat rækilega í öllum fjölmiðlum, jafnvel þó hann í hinu orðinu héldi því fram að hún væri ólögleg og stæðist ekki. Hann fékk síðan Capacent til að taka út stöðu á leigumarkaði í Kópavogi. Þeir snillingar fundu það út að offramboð væri á leiguíbúðum í Kópavogi! Öfugt við öll nágranna- sveitarfélögin! Bæjarstjórinn og oddvitar Framsóknar og Kópavogs- listans voru hæstánægðir. Staða málsins er sú að ekkert hefur verið gert. Samningar og skuld- bindingar við ýmis félög Undanfarna mánuði hafa verið gerðir samningar og viljayfirlýs- ingar við ýmis félög um styrki og uppbyggingu sem munu útheimta gríðarleg fjárútlát á næsta kjör- tímabili. Allt er þetta gert með það að markmiði að safna atkvæðum í prófkjöri og kosningum. Á meðan sjálfsagt er að styðja félagasamtök eins og unnt er miðað við aðstæður, er ósanngjarnt að láta þá sem minnst mega sín liggja óbætta hjá garði meðan milljörðum er lofað í samfélagslega léttvægari verkefni. Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi hef- ur alltaf passað upp á að jafnræði sé á milli allra málaflokka og haldið ut- an um þá sem ekki hafa átt sér mál- svara enda eru þeir ekki þurfalingar heldur partur af okkur og okkar samfélagi, við berum ábyrgð á því. Traust og heiðarleiki á að vera grundvöllur Sjálfstæðisflokksins Það vakti athygli þegar formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi fór fram á að fá stuðnings- mannalista hinna framboðanna til bæjarstjórnar. Þetta er alveg nýr þáttur í kosningabaráttu og hefur ekki tíðkast í þann aldarfjórðung sem ég hef verið í stjórnmálum í Kópavogi. Þetta er Sjálfstæð- isflokknum til vansa. Heyrst hefur að þessi hugmynd hafi komið frá svo- kölluðum pólitískum ráðgjafa bæj- arstjóra, þeim hinum sama og sagði á ÍNN að Kópavogsbúar væru fleiri en Hafnfirðingar og Garðbæingar til samans! Af hverju er undirritaður að gagn- rýna þessi atriði? Jú, ég vil sjá Sjálf- stæðisflokkinn snúa aftur til fyrri gilda þar sem mildi og mannúð er í fyrirrúmi, sem í gegnum tíðina hefur verið aðalástæðan fyrir velgengni flokksins og þjóðarinnar. Ef menn hafa þetta að leiðarljósi mun flokkn- um ganga vel í kosningunum. Hvað erað gerast í Kópavogi? Eftir Gunnar Inga Birgisson »Ég vil sjá Sjálfstæð- isflokkinn snúa aftur til fyrri gilda þar sem mildi og mannúð er í fyrirrúmi. Gunnar I. Birgisson Höfundur er bæjarfulltrúi og fyrrverandi bæjarstjóri Kópavogs. Reyknesingar unnu Kjördæmamótið Sveit Reyknesinga sigraði með minnsta mun í Kjördæmamótinu sem að þessu sinni var spilað í Fær- eyjum um sl. helgi. Mótið var spenn- andi fram á síðasta spil en sveit Norðurlands eystra leiddi mótið lengst af. Reyknesingar fylgdu þeim sem skugginn og svo skemmtilega háttaði til að þessar sveitir mættust í lokaumferðinni. Norðanmenn áttu ein 14-15 stig fyrir leikinn en svo fór að Reyknesingar unnu með minnsta mun eftir æsispennandi lokaspil. Lokastaða efstu sveita: Reykjanes 345,31 Norðurland eystra 343,53 Reykjavík 311,53 Færeyjar 293,82 Spilarar nutu ferðarinnar enda kunna Færeyingar betur en flestir að taka á móti gestum. Meðal ann- ars buðu þeir allri hersingunni í mat og drykk fyrra spilakvöldið. Kjötiðnaðarmeistarinn, Stefán Vilhjálmsson, „liðskipari“ Akureyr- inga, kann manna best að þakka fyr- ir sig og sína en hann skrifaði m.a. eftirfarandi í gestabók hótelsins: „Spennandi Kjördæmakappingin var og konungleg býráðsveitslan þar. Okkar lið var þar alveg spes en allra best stóð sig Reykjanes.“ Keppnisstjóri var Vigfús Pálsson. Brids í Stangarhyl Mánudaginn 19. maí var spilaður tvímenningur hjá bridsdeild Félags eldri borgara, Stangarhyl 4, Reykja- vík.Spilað var á 11 borðum. Efstu pör í N/S: Örn Isebarn – Ólafur Ingvarsson 275 Björn Árnason – Auðunn Guðmss. 238 Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 235 Trausti Friðfinnss. – Guðlaugur Bessas. 233 A/V Bergur Ingimundars. – Axel Lárusson 251 Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 249 Guðm. Jóhannss. – Hrafnhildur Skúlad. 243 Margr. Gunnarsd. – Vigdís Hallgrímsd. 239 Bridsfélag eldri borgara í Hafnarfirði Þriðjudaginn 13. maí var spilaður tvímenningur með þátttöku 30 para. Bræðurnir Sturla og Ormarr voru í feikna stuði og þegar upp var stað- ið enduðu þeir með 71% skor. Efstu pör N/S: (% skor) Óli Gíslason - Sverrir Jónsson 61,9% Bjarnar Ingimarss. - Bragi Björnss. 59,5% Albert Þorsteinss. - Björn Árnason 58,7% A-V Sturla Snæbjss. - Ormarr Snæbjss. 71,0% Ólafur Ólafsson - Anton Jónsson 62,3% Stefán Ólafss. - Haukur Guðmundss. 58,2% Föstudaginn 16. maí var spilaður tvímenningur með þátttöku 24 para. Bestum árangri náðu í N/S: Erla Sigurjónsd. - Jóhann Benediktss. 57,4% Nanna Eiríksd. - Sigfús Skúlason 56,7 Bjarnar Ingimarss. - Bragi Björnss. 55,3 A-V Tómas Sigurjónss. - Björn Svavarss. 67,6 Kristrún Stefánsd. - Sverrir Gunnarss. 56,0 Bergljót Gunnarsd. - Hildur Jónsdóttir 53,0 Bridsfélag eldri borgara í Hafn- arfirði spilar á þriðjudögum og föstudögum í félagsheimili eldri borgara, Flatahrauni 3 í Hafnar- firði. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is huga okkar kaupmanna. Hraðakstur á ekki við á Laugavegi. Umferðin er hæg hvort sem um er að ræða um- ferð gangandi eða akandi og þá er heldur ekki rúm fyrir reiðhjólastíg, enda ófært að fækka stæðum við götuna meira – þvert á móti þarf að fjölga stæðum. Í þessu sambandi er rétt að horfa til götu sem allir lands- menn þekkja, Striksins í Kaup- mannahöfn, þar eru hjólreiðar bann- aðar. Verslun í miðbænum á í vök að verjast, vegna þrenginga, lokana, hækkunar bílastæðagjalda, fækk- unar bílastæða og ýmissa fleiri þátta sem borgaryfirvöld bera einkum ábyrgð á. Reiðhjólastígur niður Laugaveginn yrði enn til að draga úr verslun við þessa helstu versl- unargötu borgarinnar. Fjölskyldubíllinn er sá fararmáti sem flestir borgarbúar hafa kosið sér og verslun fær ekki þrifist í borginni nema íbúar geti komist um á sínum bílum og lagt þeim auðveld- lega. Við kaupmenn höfnum því að aðgengi fótgangandi og bifreiða verði skert með hraðakstursbraut reiðhjóla á Laugavegi og hjólreiðum á gangstéttum. Slíkt er aðför að verslun og mannlífi í miðbænum. » Flest heimili þurfa bíl til að komast á milli staða og til að geta sinnt innkaupum, til dæmis í miðbænum. Höfundur hefur verið kaupmaður við Laugaveginn frá árinu 1971. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Bréf til blaðsins Fyrir nokkru síðan var til sýnis hjá rík- issjónvarpinu mynd um erfið og óeðli- leg samskipti innan fjölskyldu á banda- rísku sveitaheimili. Heimilisfaðirinn var forhertur einvaldur og enginn hafði til þess kjark eða mátt að rísa gegn ofstopa föðurins sem hafði meðal annars á sam- viskunni sifjaspell gagnvart dætrum sínum ungum. Er tímar liðu urðu dæturnar sjálfstæðari og tóku að standa upp í hárinu á harð- stjóranum föður sínum og misgjörðir hans urðu nú öllum ljósar. Þetta er vel gerð mynd og áhugaverð. Í harðlok- uðum heimi sumra fjölskyldna gerast ýmsir þeir hlutir sem ekki þola dagsins ljós og manni verður hugsað til hinna mörgu afskekktu heimila á Íslandi í aldanna rás, mörg hver einangruð mánuðum saman. Heimskunnir leik- arar á borð við Jessica Lange og Jason Robards skiluðu sínum hlutverkum með ágætum eins og við mátti búast. Ekki fylgdu með kynningu RÚV á myndinni nein viðurkenningarorð né var minnst á stórleikarana sem voru þó nokkuð örugg trygging fyrir vel vörð- um tíma fyrir framan sjónvarpið. En myndin var ekki frá BBC eins og við erum minnt á reglulega, en framleiðsla þeirra fær oftar en ekki merkimiða sem á stendur: vönduð, vel gerð, spennandi, skemmtileg, ef ekki bráðskemmtileg, vinsæl. Um þessar mundir er sýnd mynd um kynskipting sem fæddist karlkyns en telur sig eiga heima í lík- ama konu; sem slík gerist hún leigu- morðingi og fremur hina hroðalegustu glæpi; mynd þessi skartar óvenju subbulegum atriðum, jafnvel af breskri mynd að vera, en í augum dag- skrárdeildar RÚV er hún spennandi og munu sumir áhorfenda klóra sér í höfð- inu. Önnur mynd: Í mat hjá mömmu, heldur hallærisleg framleiðsla en mein- laus er að dómi RÚVskemmtileg ef ekki bráðskemmtileg. Svona rausn með jákvæð lýsingarorð fellur einnig sumu efni frá Skandinavíu í skaut en mjög sjaldan myndum frá Vesturheimi. Er- um við að horfa í plógfar á heimilisakri áróðurssamfélags hjá merkri rík- isstofnun? Dæmin eru fleiri: Spilaborg- in sem nýtur vinsælda og er bæði „vönduð og vel gerð“ þótt RÚV láti þess ekki getið. Hitt er til umhugsunar að í kynningu er látið eins og að hér sé á ferðinni einskonar heimilda- eða raun- veruleikamynd; en auðvitað er þetta skáldskapur sem er felldur í kunn- uglegt umhverfi. Refskákir eru hluti af valdatafli stjórnmálamanna í öllum löndum og Spilaborginni mætti því finna umgjörð víða um heim. Áhorf- endur og skattgreiðendur sem eru vitni að þessu geðþóttaframferði starfsfólks hjá RÚV bíða þess að endurhæfing fari fram eða jafnvel tilfærsla í starfi. Það er ekki ásættanlegt að fólk sem er í pólitískri bóndabeygju einhvers rétt- trúnaðarins ráði yfirbragði fjölmiðils sem á að heita þjónustufyrirtæki í al- mannaeigu. EMIL ALS, læknir. Slagsíða Frá Emil Als Emil Als

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.