Morgunblaðið - 23.05.2014, Síða 48

Morgunblaðið - 23.05.2014, Síða 48
FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 143. DAGUR ÁRSINS 2014 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Er með 36 mm göt á kinnunum 2. Láðist að tæma loft úr kraga 3. „Það þorir bara enginn að tala“ 4. „Er ég klikkaður að hafa …“ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Benedikt Kristjánsson tenór mun syngja hlutverk Le Sommeil í upp- færslu Óperunnar í Kiel á óperunni Atys eftir barokktónskáldið Jean- Babtiste Lully. Fyrsta sýning á upp- færslu Óperunnar í Kiel á Atys verður 4. október og hefjast æfingar í ágúst. Morgunblaðið/Eggert Benedikt syngur í Óperunni í Kiel  Páll Palomares fiðluleikari hlaut 15. maí sl. verð- laun í keppni strengjaleikara 30 ára og yngri í Árósum í Dan- mörku, Den danske stryger- konkurrence. 23 innlendir og erlendir strengjaleikarar tóku þátt í keppninni, léku á fiðlu, víólu, selló og kontrabassa. Sinfón- íuhljómsveitin í Árósum lék með og var Páll einn fjögurra fiðluleikara sem komust í úrslit og hafnaði í þriðja sæti. Páll nam fiðluleik hér á landi og í Þýskalandi og starfar nú með Kammersveitinni í Randers í Danmörku. Hann leikur fiðlukonsert Lalos með Sinfóníuhljómsveit unga fólksins á Þjóðlagahátíð á Siglufirði 5. júlí nk. og í Langholtskirkju 7. júlí. Vann til verðlauna í keppni í Árósum  Hljómsveitin Snakebite heldur mið- næturtónleika á Spot í kvöld til heið- urs rokksveitinni White- snake sem hélt síðast tón- leika hér á landi árið 2008. Ferli White- snake verða gerð góð skil á tónleikunum. Whitesnake heiðruð Á laugardag Suðlæg átt 5-10 vestanlands, skýjað og rigning með köflum, en mun hægari austantil og víða léttskýjað um landið norðaustanvert. Hiti 5 til 12 stig, einna hlýjast norðanlands. Á sunnudag Austlæg átt, 5-10 m/s, léttir til vestanlands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 5-10 og rigning með köflum vest- an- og norðavestanlands og hiti 5 til 12 stig. VEÐUR Þrjú lið eru enn taplaus í Pepsi-deild karla í knatt- spyrnu eftir 5. umferðina sem fór fram í gærkvöld. FH og Stjarnan tróna á toppn- um en nýliðar Fjölnis, sem gerðu jafntefli við Íslandsmeistara KR í gær, eru einnig taplausir. ÍBV og Breiðablik hafa enn ekki landað sigri en Þór kom sér af botninum með sínum fyrsta. »1-8 Stjarnan, Fjölnir og FH enn taplaus „Mér hefur oftast nær þótt skemmti- legra að æfa og keppa í handbolta en í vetur. Það er ömurlegt að geta ekki beitt sér af krafti á æfingum og í leikjum. Þess vegna er ég svo rosa- lega mikið tilbúin til þess að hætta núna,“ sagði handbolta- drottningin Hrafnhildur Skúladóttir sem er hætt. »4 Handboltadrottning yfirgefur sviðið Evangelos Marinakis, forseti gríska meistaraliðsins Olympiacos, stað- festi í gær vilja félagsins til að kló- festa landsliðsframherjann Alfreð Finnbogason í sumar. Þýska félagið Leverkusen mun einnig ætla í við- ræður við Heerenveen um kappann en bæði félög geta boðið Alfreð upp á Meistaradeildarfótbolta. Alfreð miss- ir af komandi landsleikjum. »1 Forseti Olympiacos vill klófesta Alfreð í sumar ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Ég vann í bakaríinu hjá föður mín- um frá því ég var lítill strákur. Þeg- ar hann spurði mig við hvað ég ætl- aði að starfa, sagðist ég ekki ætla að verða bakari, og ákvað þá að verða rakari,“ segir Trausti Thorberg Óskarsson, rakarameistari og tón- listarmaður með meiru. Trausti verður 87 ára á þessu ári og er nýhættur að klippa. Hann var því einn elsti starfandi rakari á Ís- landi en hann starfaði sem slíkur í 71 ár. Elsti núlifandi rakari er Kári Elí- asson, besti vinur Trausta, en hann verður 89 ára gamall á árinu. Trausti er ern og eldhress og tók blíðlega á móti blaðamanni á hárgreiðslustof- unni Effect á Bergstaðstræti. Segja má að þar hafi verið svokölluð starfskveðjustund Trausta. Hún fólst í því að hárgreiðslumeistarinn Jón Halldór Guðmundsson, betur þekktur sem Nonni klippari, klippti hár Trausta og ekki veitti víst af. Byrjaði á kústinum Árið 1943 hóf Trausti að læra iðn sína, þá 17 ára gamall, hjá Rakara- stofu Sigurðar Ólafssonar í Eim- skipafélagshúsinu sem stofnuð var árið 1921 og var rekin til ársins 1988. Trausti byrjaði á kústinum en á fyrsta vinnudeginum hjá Sigurði sópaði hann alla stofuna hátt og lágt. Þegar því var lokið spurði Sigurður Trausta hvort hann gæti mætt á mánudaginn. Trausti tók vel í það í fyrstu en sagði síðar að hann gæti það líklega ekki og þyrfti að bregða sér frá því það væri afmælisdagur móður sinnar, 18. maí. „Seinna sagði Sigurður mér að honum hefði þótt afskaplega vænt um þetta svar,“ rifjar Trausti upp en hann færði móður sinni blóm á afmælisdaginn. Hann tengist rakarastofu Sig- urðar einnig með öðrum hætti. Trausti var giftur Dóru Sigfúsdótt- ur, sem var dóttir Sigfúsar Elíasson- ar rakara, sem var fyrsti nemandi á rakarastofunni árið 1921. Spilandi rakari „Það var mín gæfa í lífinu að hafa orðið rakari því þá gat ég líka sinnt tónlistinni.“ Trausti hefur spilað á gítar frá 12 ára aldri og er enn með gítarinn í fanginu. Hann starfaði lengi sem gítarleik- ari samhliða rakarastarfinu, m.a. með KK sextett og Hljómsveit Ey- þórs Þorlákssonar, en með þeirri hljómsveit var hann fyrstur í Reykjavík til að spila á rafmagns- bassa. Hann hefur komið víða við á starfsævinni og vann m.a. um tíma í Kaupmannahöfn sem rakari og New York en þar kynntist hann djass- inum. Þá rak hann ásamt konu sinni um árabil ljósmyndavöruverslunina Fotohúsið í Bankastræti. Varð rakari en ekki bakari  Trausti Thor- berg rakari hættir eftir 71 ár í starfi Morgunblaðið/Árni Sæberg Klipping Vel fór um Trausta Thorberg Óskarsson rakara í stólnum hjá hárgreiðslumeistaranum Jóni Halldóri Guð- mundssyni sem oftast er nefndur Nonni. Trausti rakari sem er á 87. aldursári hætti nýverið störfum eftir 71 ár í faginu. Hljómsveit Eyþórs Piltarnir spila á dansleik á Röðli 1963. Guðjón Pálsson píanóleikari, Sigurdór Sigurdórsson söngvari, Eyþór Þorláksson gítarleik- ari, Trausti Thorberg gítarleikari og Sverrir Garðarsson trommari.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.