Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Síða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.5. 2014 Árni Björnsson, þjóðháttafræðingur, máfara að hugsa sinn gang. Og reyndar öllþau sem leggja upp úr „sögu daganna“ en Árna nefni ég sérstaklega vegna fróðlegra og skemmtilegra bóka hans og rannsókna á sögu merkis- og hátíðisdaga, innlendra og al- þjóðlegra. Ástæðan fyrir því að menn kunni að þurfa að hugsa sinn gang er tillaga sem nú svífur yfir vötnum á Alþingi um að leggja niður hefð- bundna hátíðisdaga og skjóta þeim sem frídög- um að næsta helgarfríi því við fáum best notið þeirra í samfellu við annað frí. Auðvitað má segja að þetta kæmi ekki að sök að því leyti, að margir hátíðisdagar hafa fyrir löngu glatað upphaflegri merkingu sinni, alla vega í dagatalinu en jafnvel einnig að öðru leyti. Þjóð sem var háðari veðurguðunum en við er- um nú, með góðum húsakosti fyrir menn og skepnur og fær í flestan sjó í eiginlegri og óeig- inlegri merkingu, lagði meira upp úr því að rýna í samspil dagsetninga og veðurfars, svo dæmi sé tekið. Þannig mun það hafa tíðkast að setja vatn út fyrir hús aðfaranótt sumardagsins fyrsta til að sjá hvort saman frysi vetur og sumar því þannig þóttust menn komnir með vís- bendingar um sumarið. Væru þessir dagar hreyfðir mikið til má ætla að gömlum nátt- úrurýnum þætti þar með kompásinn úr lagi færður. Ljóst er að þýðing daganna í vitund þjóð- arinnar tekur breytingum í áranna og aldanna rás. Þannig segir Árni Björnsson frá því í riti sínu, Sögu dagnna, að rannsóknir hafi leitt í ljós að um aldamótin 1900 hafi sumardagurinn fyrsti hvarvetna á landinu verið talinn mikill „hátíðis- og veitingadagur“ og gengið víðast hvar „næst jólum og nýári að fyrirferð“. Þetta er liðin tíð en þó ekki að öllu leyti, alla vega ekki í mínum huga. En spurning er hvort máli skipti þótt sumardeginum fyrsta væri hnikað til þannig að hann félli að komandi helgi. Svari hver fyrir sig. Það gerði ég að kvöldi dags 30. apríl. Þá barst mér fyrirspurn um það hvort ég gæti fellt mig við að gera hátíðisdagana hreyfanlega á framangreindan hátt. Ég sat þá við tölvu og var að hugleiða ávarp sem ég ætlaði að flytja morg- uninn eftir. Tilefnið var 1. maí, alþjóðlegur bar- áttudagur verkalýðsins. Sá dagur væri haldinn 1. maí en ekki 2. maí, svaraði ég að bragði. Það væri dagurinn sem tengdi heiminn saman, „strönd við strönd“ eins og segir í Nallanum. Eitthvað finnst mér rangt við það að rífa alla sögulega merkingu innan úr hátíðardögum – gleyma því hvers vega þeir urðu til – en horfa bara til hins, hve gott frí þeir gefa. Er ekki hætt við því að þar með glati dagarnir lit sín- um? Þá munu dagarnir lit sínum glata * Sá dagur væri haldinn1. maí en ekki 2. maí,svaraði ég að bragði. Það væri dagurinn sem tengdi heiminn saman, „strönd við strönd“ eins og segir í Nallanum. ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM Ögmundur Jónasson ogmundur@althingi.is Sjónvarpsmaðurinn Sölvi Tryggvason birtir myndir á Face- book af ferðalagi sínu um Japan en með honum í för er faðir hans. Með nýjustu myndinni frá Kyoto skrifar hann: „Ég kom fyrst til Kyoto i Japan þegar ég var 18 ára til að keppa á heimsmeist- aramóti í skylmingum. Síðan þá hefur þessi borg átt sérstakan stað hjá mér, enda einhver fallegasti staður veraldar. Ég er þakklátur fyrir að fá að koma hingað einu sinni enn og rækta tengslin við Jap- an með pabba gamla.“ Nokkrar fréttir hafa birst und- anfarið þar sem fjallað er um Ís- lendinga sem komist hafa inn í merka háskóla. Helgi Seljan kastljósmaður skrifaði á face- booksíðu sína í vikunni: „Fékk símhringingu í gær. Á línunni var ung og kurteis íslensk kona sem sagði mér að einhver hefði bent á mig sem tilvalinn nemanda í skól- ann hennar. Ég áttaði mig ekki alveg á um hvaða skóla hún var að tala, en hann hlýtur að hafa verið banda- rískur. Skólinn vildi nefnilega fá mig í sérstakt NBA-nám. Ég sagði henni að ég gæti það ekki. Air Jordan- skórnir mínir eru nefnilega orðnir allt of litlir á mig.“ Ellý Ármannsdóttir skráði sig á samskiptamiðilinn Twitter í vik- unni og virtist ánægð með þá skráningu ef marka má ummæli hennar á bæði Twitter og Face- book. „Elska Twitter. Þar má dólg- ast og rífa kjaft.“ Og fleiri voru að uppgötva sam- skiptamiðla en Katrín Júl- íusdóttir þing- maður skráði sig á Instagram. „Ákvað að skrá mig inn á þetta Snapchat. Ég veit nákvæm- lega ekkert hvað ég er að gera. Mitt fyrsta verk var að senda mynd af þvottakörfunni.“ AF NETINU Sigurður Guðmundsson, sem var uppi 1833-1874 og er oftast nefnd- ur Sigurður málari, þykir sláandi líkur Hollywood-stjörnunni Neil Patrick Harris sem er trúlega þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Barney Stinson í sjónvarpsþátt- unum How I met your mother. Einn aðdáandi þáttanna, Matt Walton að nafni, var staddur hér á landi og fór á Þjóðminjasafnið þar sem málverk af Sigurði hang- ir. Þar rak hann upp stór augu, smellti af mynd af Sigurði og sagði Harris frá uppgötvun sinni á Twitter. Ekki stóð á svari því stórstjarnan svaraði einfaldlega: „Love“ eða ást og aðdáendur hans endurtístu orð hans í gríð og erg eða rúmlega átta þúsund sinnum. Harris er með átta milljónir fylgj- enda á Twitter. Fór svo að Wal- ton sagðist hafa séð eftir því að hafa látið Harris vita af uppgötv- un sinni. „Geri þetta ekki aftur. Síminn minn logar hérna og fylgj- endum mínum fjölgar stöðugt. Fylgifiskur frægðarinnar trú- lega,“ sagði Walton á Twitter- síðunni sinni. Sigurður var íslenskur listmál- ari og starfaði mikið að leik- húsmálun, hannaði búninga og gerði sviðsmyndir. Á heimasíðu Leikminjasafns Íslands er hann sagður frumkvöðull leiklistar, myndlistar og minjavörslu en Sig- urður átti drjúgan þátt í stofnun Fornminjasafnsins. Neil Patrick Harris var verð- launaður árið 2012 af People’s Choice Award sem eftirlætis- sjónvarpskarakterinn fyrir hlut- verk sitt sem Barney. Sigurður Guðmundsson, málari og leikhúsfrömuður, þykir sláandi líkur leikaranum Neil Patrick Harris. Sigurður líkur Harris Neil Patrick Harris skaust upp á stjörnuhimininn með hlut- verki sínu sem Barney Stinson í How I met your mother. Vettvangur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.