Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Side 15
ákveða að hætta. Jón er maður
sem hefur brennandi áhuga á hlut-
um í ákveðinn tíma, en finnur sér
síðan ný verkefni sem eiga hug
hans allan.“
Hefur þú áhuga á stjórnmálum?
„Ég fylgist með pólitík eins og
hver annar þegn í þessu landi en
hef ekkert viljað beita mér þar.
Jón hefur stundum sagt við mig:
„Það væri flott ef þú værir bæj-
arstjóri í Hafnarfirði og ég borg-
arstjóri í Reykjavík.“ Og það er
rétt hjá honum, það væri gaman.
Góður stjórnmálamaður þarf að
vera góður leikari og stjórn-
málamennirnir okkar eru ekki góð-
ir leikarar. Þess vegna gæti ég
orðið nokkuð góður stjórn-
málamaður, allavega sæmilegur.“
Kveðja til Davíðs
Þú ert landsþekktur, verðurðu fyr-
ir ónæði frá fólki vegna þess?
„Ég fæ jákvæða athygli sem ég
get ekki annað en verið ánægður
með. Á ólíklegustu stöðum kemur
fólk til mín til að lýsa yfir ánægju
eða óánægju með eitthvað sem ég
hef gert og ég læt það ekki trufla
mig. Þegar öllu er á botninn hvolft
þá valdi ég mér þetta starf sjálfur.
Þegar maður tekur ákvörðun um
að feta ákveðinn veg þá verður
maður að vera til í að taka slaginn
og því fylgja bæði kostir og gall-
ar.“
Hvernig er einkalífið?
„Ég reyni að halda einkalífinu
utan fjölmiðla. Við Sigrún Hall-
dórsdóttir höfum verið trúlofuð
mjög lengi og ég þarf að fara að
taka sambandið á næsta stig. Við
eigum saman tveggja og hálfs árs
strák og ég á eina stelpu úr fyrra
sambandi og hún eina, báðar eru
þær fimmtán ára og þeim semur
mjög vel.“
Hefurðu hugsað um það hvernig
líf þitt væri ef þú værir enn að
vinna í byggingavöruversluninni?
„Lífið væri ekki mikið öðruvísi
því ég held að ég sé ekki mikið
breyttur maður. Í bygginga-
vöruversluninni gerði ég mikið af
því að stytta mér stundir með
glensi og gríni og þar lauk vinnu-
deginum klukkan sex en núna
skemmti ég mikið á kvöldin og um
helgar, sérstaklega á vetrum. Ef
hægt er reyni ég að láta vinnudeg-
inum ljúka klukkan sex og svara til
dæmis lítið í síma eftir þann tíma,
nema um sé að ræða þá nánustu.
Vinnudegi þarf að ljúka og þegar
maður er sinn eigin herra þá þarf
maður að ljúka honum sjálfur.“
Er eitthvað sem þú vilt koma að
svona í lokin?
„Já, ég bið að heilsa Davíð Odds-
syni. Um daginn kom ég upp í
Moggahúsið vegna ákveðins erindis
og hitti Óskar Magnússon sem gaf
sig á tal við mig. Ég spurði hann
hvort Davíð væri í húsinu og hann
spurði hvort ég vildi hitta hann.
„Að sjálfsögðu vil ég hitta Davíð,
ég hef bara séð hann í sjónvarp-
inu,“ sagði ég. Hann vísaði mér á
skrifstofu Davíðs og við Davíð
spjölluðum örstutt saman. Ég var í
svo mikilli geðshræringu að ég
man ekkert um hvað við töluðum.
Það var magnað að hitta hann!“
„Þegar maður tekur ákvörðun
um að feta ákveðinn veg þá verð-
ur maður að vera til í að taka
slaginn og því fylgja bæði kostir
og gallar,“ segir Pétur Jóhann.
Morgunblaðið/Eggert
4.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
– hágæða ítölsk hönnun
NATUZZI endurspeglar fullkominn
samhljóm og kjarna ítalskrar hönnunar.
NATUZZI umhverfi,
staður þar sem fólki líður vel.
100%made in Italy
www.natuzzi.com
Komið og upplifið NATUZZI gallerýið okkar
NATUZZI SÓFI –LEÐUR CT 15 – 311X223 CM – VERÐ 799.000,-
NATUZZI BORÐ MEÐ BRÚ – VERÐ 138.000,-
NATUZZI BORÐ – VERÐ 89.000,- NATUXXI MOTTUR - VERÐ FRÁ 85.000.-