Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Side 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Side 18
Ferðalög og flakk *Ný heimildarmynd um ferðaþjónustuna í borginni Barcelona áSpáni lýsir slæmu ástandi í borginni vegna þess fjölda ferða-manna sem leggur leið sína þangað á hverju ári. Í myndinni Byebye Barcelona lýsa íbúar og leiðsögumenn því hvernig borgin erað breytast í risavaxinn skemmtigarð og varpa þar fram hug-myndum um að auka skattlagningu á ferðamenn og takmarkafjölda þeirra sem fá að heimsækja borgina. Þá er einnig vakin at- hygli á því að flestir ferðamenn eyða litlum peningum við dvöl sína í borginni, eða innan við 300 evrum á viku. Barcelona að breytast í skemmtigarð Flórída, „the Sunny State“, stendur undir nafni. Hér er sól og blíða nánast alla daga. Við ákváðum að taka okkur frí frá ströndinni og sundlauginni og gerðum okkur ferð í Lowry Park Zoo, sem er í Tampa. Þar heimsóttum við gíraffa, fíla, nashyrninga, krókódíla og fleiri skemmtileg dýr sem við lesum annars bara um í bókum. Við sáum líka dýr sem við þekkjum betur eins og geitur og hesta. Að heimsókn lokinni lá leið feðganna beint í sundlaug- ina en móðirin fékk að leggjast með bók á sólbekkinn. Það er ekki hægt að biðja um miklu ljúfari stundir í fríinu. Svana, Högni & strákarnir Hin ýmsu dýr búa í dýragarðinum. Stefán Hrafn heilsaði m.a. upp á þennan gíraffa. Sólarríkið stendur undir nafni Einbeittur knapi á hestbaki. PÓSTKORT F RÁ FLÓRÍDA E yjan Poveglia, rétt hjá Feneyjum á Ítalíu, stendur nú þeim til boða sem hefur áhuga á að taka hana á langtímaleigu. Fjárhagserfiðleikar ítalska ríkis- ins hafa knúið yfirvöld til þess að leita tekna og hefur verið farin sú leið að bjóða Poveglia og fjórar aðrar stórar eignir á svæðinu út til langtímaleigu. Vonast yfir- völd til þess að áhugasamur leigutaki geti séð sér hag í því að hefja uppbyggingu lúxushótels á eyjunni. Eyjan er sjö hektarar að stærð og er saga hennar athyglisverð fyr- ir margar sakir. Fortíð hennar gæti mögulega fælt áhugasama leigutaka frá áformum sínum. Á tímum svartadauðans var eyjan notuð sem geymslustaður fyrir lík þar sem þau voru ann- aðhvort brennd eða skilin eftir til þess að rotna. Árið 1922 var byggt geðsjúkrahús á eyjunni. Sagan segir að lækn- irinn sem starfaði á spítalanum hafi gert ýmiss konar til- raunir til þess að lækna sjúklingana og voru ýmsar hræðilegar tilraunaaðgerðir framkvæmdar á spítalanum. Ógeðfelldri sögu eyjunnar lauk ekki þar því ævi læknisins endaði samkvæmt sögusögnum á því að hann fleygði sér út úr háum klukkuturni á eyjunni. Er sagt draugagangur á eyjunni sé gríðarlega mikill því alls er talið að um 160 þúsund manns hafi látið lífið á eyjunni, margir undir afar ógeðfelldum kringumstæðum. Hópur Feneyjabúa, sem kallar sig Poveglia Per Tutti (ísl. Poveglia fyrir alla), er ekki hrifinn af áformum yfir- valda um að láta byggja lúxushótel á eyjunni. Sumir íbú- anna eru afar hrifnir af töfrum eyjunnar og nýttu hana sem leikvöll sinn í æsku. Þeir gefa lítið fyrir sögusagnir um draugagang. „Þessi angló-saxneska hefð fyrir drauga- gangi er ekkert annað en una cazzata,“ (ísl. kjaftæði) seg- ir Lorenzo Pesola, arkitekt frá Feneyjum og einn þeirra sem berjast gegn áformunum um byggingu hótels. „Sem krakkar heimsóttum við eyjuna, veiddum okkur til matar og grilluðum fiskinn á báli. Síðan snæddum við ferskjur sem vaxa út um allt á eyjunni,“ segir Pesola. POVEGLIA: PARADÍS EÐA DRAUGAEYJA? Eyja vek- ur athygli EYJAN POVEGLIA LÍTUR ÚT FYRIR AÐ VERA FULLKOMINN STAÐUR FYRIR GLÆSILEGT LÚX- USHÓTEL. EN FORTÍÐ EYJUNNAR VELDUR HUGSANLEGUM FJÁRFESTUM HUGARANGRI. Björn Már Ólafsson bmo@mbl.is Þrír ættliðir saman í sundi.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.