Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Qupperneq 21
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
4.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21
Vissulega er dálítill munur á Nauthólsvík og Mallorca en ef þú vilt
njóta sólarinnar, hvort sem er í íslenskri hafgolu eða hlýjum and-
vara á suðlægum slóðum, er aldrei of oft minnt á sólarvörnina.
Hún er staðalbúnaður þegar sólargeislunum er leyft að leika um
kroppinn, jafnvel á svæði á líkamanum sem fá ekki að njóta sólar
nema stopult yfir þrjá mánuði á ári.
* Þeir sem eru óvanir sólinni eða með óvenjuföla húð ættuað byrja á sólarvörn með frekar háum SPF-stuðli, t.d. 25 eða 20
en slík vörn síar um 95% hinna skaðlegu UVB-geisla frá. Engar
áhyggjur, þú verður samt sólbrún/n á endanum því það eru að-
allega UVA-geislarnir sem valda litabreytingunum í húðinni
smám saman. Þér ætti svo að vera óhætt að færa þig niður í sól-
arvörn 15, sem er sögð sía 90% UVB-geislanna frá.
* Til er sólarvörn með lægri stuðli, 10 og 4, en mælt er meðstuðli 15 og yfir fyrir flesta, þannig fær kroppurinn lit og nóg af
D-vítamíni en verst á sama tíma skaðlegu geislunum.
* Athugið að sólarvörn sem keypt er í Bandaríkjunum er oft-ast með tvöfalt hærri stuðli en sú evrópska, þannig að þar er sól-
arvörn númer 20 í rauninni með stuðulinn 10 á okkar mæli-
kvarða.
* Sérstök sólarvörn fyrir börn er með mjög háum SPF-stuðlienda húð barnanna sérstaklega viðkvæm og nauðsynlegt að
maka vel á þau, einnig í hársvörðinn, og helst láta þau nota sól-
hatta sem mest.
* Sólarvörn gerir mest og nánast einungis gagn ef hún er bor-in á ÁÐUR en þú ferð út í sólina og svo sannarlega er of seint að
bera hana á eftir að bruninn er byrjaður, en það getur gerst á
frekar stuttum tíma. Þrátt fyrir að sólarolíur innihaldi margar
hverjar einnig sólarvörn þá eykur olían hitamyndun í húðinni,
sem aftur ýtir undir bruna, og því er sólarolía eilítið vand-
meðfarin og alls ekki fyrir óvana.
* Ef dvalið er á sólarströnd þar sem maður fer út af hótelinusnemma dags og eyðir mestum deginum útivið er einfaldast að
bera vel á allan líkamann áður en maður klæðir sig að morgni og
passa svo að bera aftur reglulega á ber svæði á líkamanum yfir
daginn.
* Góð regla er að bera á sig sólarvörn á tveggja klukkustundafresti. Vatnsheld sólarvörn kallast svo því hún lekur ekki strax af
manni í vatni og heldur því áfram að veita vörn meðan við fáum
okkur sundsprett í sólinni en þegar maður er búinn að þurrka
sér á eftir þarf svo sannarlega að bera á sig sólarvörn upp á nýtt.
* Íslendingar sem vilja nýta hverja sólarstund vel í sumarfríinuog fá mikla sólbrúnku fyrir heimferð átta sig ekki alltaf á því að
það er ekki nauðsynlegt að liggja beint undir sólinni til að taka lit,
sem getur aukið hættuna á sólsting og sólbruna, heldur fær mað-
ur líka smám saman lit þótt maður liggi í skugga, sérstaklega á
sundlaugarbakka eða við sjó þar sem sólargeislarnir endurkast-
ast af vatninu á líkamann.
Verjumst sólinni
NOKKUR GÓÐ RÁÐ UM SÓLARVÖRN
SUMARFRÍ MEÐ ALLT IN
NIFALIÐ
FYRIR ALLA FJÖLSKYLD
UNA!
OKKAR ÓDÝRASTA
ALLT INNIFALIÐ
BON APART -ALANYA
Gildir eingöngu nýjar bókanir,
með minnst tvo saman í herbergi.
ÍSLENSKIR
BARNAKLÚBBAR!
PEGASOS WORLD -SIDE
Gildir eingöngu nýjar bókanir,
með minnst tvo saman í herbergi.
1 vika 2 vikur
9/7 159.599 249.599
16/7 159.599 249.599
13/8 139.599 199.599
20/8 123.999 199.599
1 vika 2 vikur
18/6 99.999 Örfá sæti laus
25/6 99.999 139.999
23/7 119.999 159.999
30/7 119.999 Örfá sæti laus
nazar.is · 519 2777
Til Tyrklands frá Keflavík