Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Page 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Page 22
Heilsa og hreyfing Mittismálið umtalað AFP AFP *Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera konungborinn.Á vef Telegraph er vakin athygli á mittismáli Vilhjálms Breta-prins, en hann hefur verið á ferð um Ástralíu ásamt eiginkonusinni Katrínu Middleton og syninum George. Það fer ekkiframhjá vökulu auga myndavélanna að belti, sem Vilhjálmur hef-ur sést nota í ferðinni, er í síðasta gati. Breska pressan á myndiraf honum frá 2009 með sama belti - en þá í næstsíðasta gati. Í greininni er prinsinum vinsamlega bent á að vara sig á að verða ekki of sver um sig miðjan. TENGSL MATARÆÐIS OG AUGNHEILSU Augun - spegill sálar og mataræðis? Á SÍÐUSTU ÁRUM HEFUR ORÐIÐ MIKIL VAKNING Á VESTURLÖNDUM UM HEILBRIGÐI OG HOLLUSTU, EKKI SÍST FYRIRBYGGJANDI ÁHRIF MATVÆLA Á HRÖRNUN KROPPSINS. AUGUN ERU ÞAR EKKI UNDANSKILIN EN VÍSINDAMENN HAFA Í AUKNUM MÆLI BEINT SJÓNUM SÍNUM AÐ ÁHRIFUM MATARÆÐIS Á MYNDUN AUGNSJÚKDÓMA. Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is Það má með sanni segja að að fjölmörgu er að huga þegar kemur að bætiefnum fyrir kroppinn dagsdaglega. Hvað augun og sjónina varðar er mælt með því að fólk leggi einkum upp úr að fá tiltekin bætiefni, meðal annars A-, C- og E-vítamín, auk karótenóíð- og steinefna, úr fæðunni. Víða er einnig orðið hægt að nálgast tilbúnar bætiefnablöndur fyrir sjón- ina í pilluformi nú til dags. Samkvæmt prófessor Grierson eru slík bæti- efni ágæt til síns brúks, ekki síst þegar maður á óhægara um vik að borða sem fjölbreyttasta fæðu eins og til dæmis á annatímum, ferðalögum o.s.frv. Gallinn er hins vegar einkum sá að þeim hættir til að innihalda minna magn lúteíns en æskilegt þykir (6 mg er miðað við í Bretlandi). Því er áhugasömum bent á að hafa sérstakar gætur á lúteín-magninu þegar innihaldslýsingar slíkra bætiefna eru skoðaðar. FERSKMETI VS. BÆTIEFNABLÖNDUR Best beint úr fæðunni F áir mæla gegn því að augnvandamál hvers konar séu með algengari fylgifiskum ell- innar. Fyrir utan fjarsýnina, sem læðist aftan að flestum með aldrinum, taka önn- ur og alvarlegri augnmein líka að hrjá marga, svo sem ský á augum, þurrkur í slímhúð eða hrörnun í augnbotnum, sem getur orsakað blindu. Þótt ekki sé hægt að koma í veg fyrir þessa sjúkdóma, hafa vísindamenn í auknum mæli velt fyrir sér fyrirbyggjandi áhrifum vít- amína og steinefna, úr fæðunni sem fólk neytir, á myndun þeirra. Réttar olíur og andoxunarefni mikilvæg Ian Grierson, prófessor í augnlækningum við Liverpool-háskóla, er einn af frammámönnum í rannsóknum á áhrifum matvæla á sjónina. Hefur hann m.a. gefið út bókina Vegetables for Vision: Nature’s Supplements for Eye Health. Í viðtali við The Telegraph nýverið segir hann frekari rannsókna óneitanlega þörf en í tilfelli sjúkdóma á borð við hrörnun í augnbotnum bendir hann samt á mikilvægi þess að fólk á öllum aldri sé duglegt að neyta fæðu sem rík er að viðeigandi andoxunarefnum, til að efla varnir augnanna gegn frumuskemmdum af völdum útfjólublárra geisla. Mælir hann með að neytendur hugi vel að magni karótenóíð-efna í fæðunni, sérstaklega lút- íns (e. lutein) og seaxantíns (e. zeaxanthin), en þau vinna ötullega að því að útfjólubláir geislar komist ekki að sjónhimnunni og geti valdið þar skemmdum. Fyrrnefnd andoxunarefni finnast m.a. í jurt- um, ávöxtum og grænmeti sem er gult eða app- elsínugult að lit auk þess sem grænt grænmeti, á borð við spínat, grænkál og annað kál, er líka ríkt að þeim að sögn Grierson. Lausnin er þó ekki að gerast eingöngu græn- metisæta, þar sem líkaminn þarf líka fitu til að vinna andoxunarefnin úr fæðunni, hvort sem hún kemur til í formi smjörs, olíu eða á annan hátt. Omega-3 og Omega-6 fitusýrur eru líka af- ar heilnæmar fyrir augun og þar með sjónina. Þær má m.a. finna í hörfræolíu, hnetum, feitum fiski og fleiru. Getur neysla þessara fitusýra sem dæmi dregið úr líkum á þurrki í augum. Sem fyrr segir leggur Grierson áherslu á að frekari rannsókna í þessum efnum sé þörf, áður en hægt sé að setja fram staðhæfingar um óhrekjanleg tengsl mataræðis og augnheilsu. Kostir þess að færa mataræðið til heilsu- samlegri vegar, meðal annars með fyrrnefndum áherslum (með miklu af litríku grænmeti), séu hins vegar ótvíræðir. „Það útheimtir tiltölulega einfaldar breytingar, t.d. bara appelsínusafa með morgunmatnum, ber út á morgunkornið og þess háttar,“ segir Gierson. *Karótenóíð-efni, m.a. úr gulu,og appelsínugulu grænmeti,vinna að því að útfjólubláir geisl- ar komist ekki að sjónhimnunni og valdi skemmdum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.