Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Page 29
4.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
„Ég er að reyna
að nýta íslensk-
an grisjunarvið
sem fer mjög
gjarnan til spillis
á Íslandi og er
ekki nýttur í
neitt nema salla
og sag, sem fer
undir búfénað
og ég nýti sallann,“ segir Björk
sem blandar viðarsalla saman við
lífrænt plast og býr til efnivið
sem hægt er að nýta á marga
vegu. Efnið er algerlega lífrænt
og eyðist upp í náttúrunni.
Björk segir mikið af greinum
og viði falla til við grisjun skóga
sem er erfitt að nýta öðruvísi en
að kurla niður í viðarsalla. „Á
þetta sérstaklega við um íslenska
skóga þar sem lítið hlutfall nýtist
í viðarborð eða aðrar nothæfar
einingar.“
Björk segir ekki einungis
íblöndunarefnin umhverfisvæn
heldur er viðarsallinn unninn
með því að nota innlenda vist-
væna orkugjafa.
Verkefni Bjarkar gengur út á að nýta íslenskan grisjunarvið sem fer mjög gjarnan til spillis.
BJÖRK GUNNBJÖRNSDÓTTIR
Býr til lífrænan efnivið
Viðarsalla er blandað saman við lífrænt plast og þannig skap-
ast lífrænn efniviður.
Björk
Gunnbjörnsdóttir
„Verkefnið snýst um hring-
rás í framleiðslu. Eitt af
lykilatriðunum er að það
verði ekki til neinar auka-
afurðir í framleiðslunni,“
segir Búi Bjarmar sem nýt-
ir lífrænan úrgang í verki
sínu Flugnagerðinni.
Búi nýtir þá afskurð úr
fiskverksmiðjum eða líf-
rænan úrgang frá heimilum til þess að
fæða lirfur sem síðan vaxa og verða að
lirfukjöti sem er fullt af prótíni og fitu.
Lirfukjötið nýtir Búi til þess að búa til
matvöru sem er hugsuð fyrir íslenskt sam-
félag og er unnin í lirfukæfu og lirfufars.
Skítur lirfanna er einnig fullur af nær-
ingu og hann má nota sem áburð fyrir
plöntur.
„Ég er að reyna að rækta lirfur við ís-
lenskar aðstæður.
Það er von mín að allir átti sig á mikil-
vægi sjálfbærrar framleiðslu. Að öðrum
kosti erum við ófær um að lifa innan þess
ramma sem náttúran gefur. Verkefnið er
innblásið af ábendingum Sameinuðu þjóð-
anna um vistvæn matvæli fyrir hinn vest-
ræna heim.“
Búi Bjarmar nýtir lífrænan úrgang í verki sínu Flugnagerðinni.
Morgunblaðið/Þórður
BÚI BJARMAR AÐALSTEINSSON
Matvara úr lirfum
Lirfukæfa og lirfufars sem eru full af hollu
prótíni og fitu.
Búi Bjarmar
Aðalsteinsson
Faxafeni 5, Reykjavik, S: 588 8477 | Skeiði 1, Ísafirði, S: 456 4566 | Dalsbraut 1, Akureyri • S: 558 1100 • www.betrabak.is
TIMEOUT STÓLLINN
Hannaður með fagurfræði
og þægindi að leiðarljósi.
Hönnuður: Jahn Aamodt