Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.5. 2014 Matur og drykkir HAFRAGRAUTUR HLAUPARANS 1 b hafrar 3 b vatn salt eftir smekk lítil skyrdós kanill, 1 tsk. rúsínur, 1 hnefi HAFRAGRAUTUR MEÐ MANGÓ 1 dl grófir hafrar 1 skeið hreint prótein (má sleppa) 60 g mangó (u.þ.b. 1⁄4 úr bolla) 1 tsk kanill 1 tsk múskat ½ tsk negull vanilludropar 1½-2 dl vatn Allt soðið í potti. OFURGRAUTUR 1 b haframjöl 1 b mjólk (fjörmjólk, sojamjólk eða önnur mjólk) 1 b vatn smásjávarsalt lítið eitt af fljótandi hunangi eða agave-sírópi SPARIGRAUTUR 1 b hafrar 2 b vatn Soðið og fært yfir í skál. Hálfur banani, saxaður 10 pekanhnetukjarnar 1-1½ msk hlynsíróp SÚKKULAÐIGRAUTUR 50 g haframjöl 150 ml mjólk 5-6 dropar stevía 1 msk kakó Á Íslandi fór hafragrautur að tíðkast seint á 19. öld, þegar innflutningur á höfrum til landsins jókst mikið, og var hann mjög algengur morgunmatur alla 20. öld og er enn þótt samkeppnin hafi harðnað, einkum við ýmsar tegundir af morgunkorni. Hafragrautur er ákaflega hollur matur sem getur hjálpað fólki að léttast og bætt heilsu hjarta- og æðakerfis með því að lækka kólester- ól. Hafragrautur inniheldur mikið af trefjum, en trefjar eru ekki melt- ar eða frásogaðar heldur fara þær í gegnum meltingarkerfið og draga í sig vökva. Þetta hefur þau áhrif að maður er saddur lengur og því hentar hafragrautur mjög vel sem morgunmatur. Hafragrautur getur líka minnkað líkurnar á sykursýki og bætt hjarta- og æðakerfi þar sem hann er mjög hægmeltur og blóðsykurinn hækkar því hægt. Gunnlaugur A. Júlíusson langhlaupari þarf eðli málsins samkvæmt á mikilli orku að halda dags daglega og fyrir vikið kemur ekki á óvart að hann skuli hafa alist upp á hafragraut frá blautu barnsbeini og alltaf þótt hann ljómandi góður. „Hafragrautur er fín undirstaða inn í daginn enda er engin máltíð eins mikilvæg og morgunmaturinn. Það er ógnvekjandi tilhugsun að sumir skuli hefja daginn á því að nærast á kaffi eða jafnvel engu,“ segir Gunnlaugur. Hann kveðst hafa tekið mataræði sitt rækilega í gegn fyrir átta eða níu árum þegar hann fór að leggja meira á skrokkinn gegnum lang- hlaup. Í nokkur ár hljóp Gunnlaugur 5.000 kílómetra á ári, það er 15 kílómetra að meðaltali á dag, og meðan álagið var svo mikið kom ekk- ert nema hafragrautur til greina í morgunmat. Skyr, kanill og rúsínur Eins og svo margir bætir Gunnlaugur hafragrautinn á ýmsan hátt. Best þykir honum að hræra smáskyr saman við (sem í gamla daga var kallað hræringur) og fá þannig góða blöndu af próteinum og kol- vetnum. Þá bragðbætir hann grautinn gjarnan með rúsínum og kanil og jafnvel grófum flögum sé þeim til að dreifa. „Þessari uppskrift fylgdi ég í sex eða sjö ár og varð aldrei leiður á henni. Hafði þess utan mjög gott af þessu. Ég man varla eftir að hafa meiðst á þessum tíma, þrátt fyrir mikið álag, og hafragrauturinn skiptir alveg örugglega máli í því sambandi.“ Þegar svona mikið er hlaupið er endurnýjunarþörf frumnanna í lík- amanum að vonum mikil og því betur sem maður er nærður þeim mun betur gengur sú endurnýjun fyrir sig. Í raun segir Gunnlaugur einu gilda hvort álagið sé andlegt eða líkamlegt; góður hafragrautur að morgni komi alltaf í góðar þarfir. Fyrir þá sem aldrei hafa gætt sér á honum er hafragrautur oftast gerður þannig að valsaðir hafrar (hafragrjón) eru settir út í vatn í hlutföllunum 1:2 (1 bolli hafrar á móti 2 bollum af vatni), hitað að suðu og grauturinn látinn sjóða við meðalhita í 1-2 mínútur en síðan saltaður og tekinn af hitanum. Morgunblaðið/Golli HAFRAGRAUTURINN STENDUR FYRIR SÍNU Árbítur meistarans ÞRÁTT FYRIR AUKNA SAMKEPPNI FER ÞVÍ FJARRI AÐ GAMLI GÓÐI HAFRAGRAUTURINN SÉ HROKKINN FRAM AF MORGUNVERÐARBORÐUM ÍSLENDINGA. SKYLDI ENGAN UNDRA, GRAUTURINN ER EKKI AÐEINS BRÁÐHOLLUR, VANDFUNDIÐ ER BETRA ELDSNEYTI FYRIR DAGINN. ENDALAUST MÁ LÍKA BÆTA GÓÐGÆTI ÚT Á GRAUTINN. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sem langhlaupari þarf Gunnlaugur A. Júlíusson að gæta vel að mataræð- inu. Í hans huga jafnast fátt á við hafragraut. Hollur og góður í senn. Morgunblaðið/Árni Sæberg Nokkrar uppskriftir að hafragraut
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.