Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Qupperneq 38

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Qupperneq 38
Ódýrt: Tristar-skeggsnyrtir Stillanleg lengd 3-39 mm. Hleðslustandur, mismun- andi kambar fyrir lengd hárs og skeggs. 45 mín. hleðsla Fæst í Rafha Verð: 3.990 krónur. Miðlungs: Remington MB4040 Lithium-hleðslurafhlaða sem gef- ur allt að 160 mín. notkun. 1-18 mm lengdarstillingar. Fæst í Elkó. Verð: 11.995 krónur. Dýrt: Philips Laser Guide- skeggsnyrtir með LazerGuide- leysigeisla sem hjálpar við ná- kvæmari rakstur. 17 stillingar (0,4-7mm). Stálhnífar sem ekki þarf að brýna. LED-skjár sýnir allar stillingar. Fæst í Heim- ilistækjum. Verð: 22.995 krónur. ÓDÝRT, MIÐLUNGSDÝRT Skeggsnyrtir 38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.5. 2014 Græjur og tækni Réttarhöldunum yfir Apple og Samsung lauk á fimmtu- dag og eru kviðdómendur nú að lesa í gegnum grein- argerðir lögfræðinga fyrirtækjanna um hvort það hafi verið Samsung sem stal frá Apple eða öfugt. Apple krefst 2,2 milljarða dala í skaðabætur, Samsung vill 6 milljónir dala. Hver stal frá hverjum? Þ að mætti líkja Snapchat- skilaboðum við sápukúlur sem gleðja augað í nokkr- ar sekúndur og springa svo, horfnar að eilífu. Að því gefnu að myndskilaboðin gleðji viðtak- andann. En Snapchat-forritið var hið fyrsta sinnar tegundar þegar það fór í dreifingu árið 2011: samskiptaforrit sem eyðir sjálf- krafa myndskilaboðum nokkrum sekúndum eftir að þau eru opnuð Ungu mennirnir þrír sem hönn- uðu Snapchat-forritið gætu verið milljarðamæringar í dag, hefðu þeir tekið tilboði Facebook um þrjá milljarða dollara fyrir Snapchat- snjallsímaforritið síðastliðið haust. En Evan Spiegel og félagar hans afþökkuðu gott boð og buðu í stað- inn aðra fjárfesta velkomna, enda höfðu þeir lýst því yfir að þeir hefðu engan áhuga á að selja fyr- irtækið frá sér. Býr heima hjá pabba Spiegel heldur því áfram að búa heima hjá pabba sínum og starfa sem forstjóri Snapchat-fyrirtæk- isins, en hann heldur upp á 24 ára afmælið sitt í næsta mánuði. Spie- gel og félagi hans, Reggie Brown, bjuggu til fyrstu útgáfuna af Snapchat sem skólaverkefni í Stan- ford-háskólanum í Bandaríkjunum. Þeir fengu forritarann Bobby Murphy í lið með sér og Spiegel kynnti afkvæmið stoltur fyrir bekkjarfélögum sínum, sem höfðu miklar efasemdir um skilaboð sem eyðast. Þeir sáu ekki tilganginn í því og töldu hugmyndina ekki lík- lega til vinsælda. Nokkrum mán- uðum síðar hleyptu þremenning- arnir samskiptaforritinu af stokkunum, þá undir nafninu Pi- caboo, og svo endurbættri útgáfu í september sama ár, undir nafninu Snapchat. 20 milljónir sendar daglega gegnum Snapchat Rúmu ári síðar voru notendur for- ritsins búnir að deila meira en ein- um milljarði myndskilaboða með forritinu, og er talið að daglega séu yfir 20 milljón myndir sendar gegnum Snapchat. Margir telja að sá eiginleiki Snapchat-skilaboða að eyðast nokkrum sekúndum eftir að þau eru opnuð, valdi því að notendur leyfi sér að senda allskonar myndir sem þeir annars myndu ekki kæra sig um að neinn ætti afrit af. Telja þeir getnaðarlimi og brjóst vinsæl- asta myndefnið á Snapchat. Spiegel telur hins vegar að minnihluti Snapchat-notenda sé að senda viðkvæmar myndir. „Snapc- hat er bara ekki hentugt í þeim til- gangi. Það þarf að fara sérstaklega inn í forritið til að smella af mynd- inni sem á að senda, og senda hana samstundis. Forritið er langmest notað að deginum, þegar fólk er í vinnu og það væri erfitt að vera alltaf að girða niður um sig bux- urnar á skrifstofunni,“ sagði Spie- gel í viðtali við The Telegraph. „Auk þess eru yfir 70% notenda konur og við notum forritið ekki til að eiga þannig samskipti við vin- konur okkar. Og ekki nota ég for- ritið þannig í samskiptum við mömmu mína.“ Eyðing gagna aðalsmerki Snapchat Hann heldur því fram að Snapchat sé brautryðjandi nýrra hugmynda gagnageymslu netfyrirtækja. Flest- ar vefsíður státi af því að þar geti fólk geymt myndir og upplýsingar um aldur og ævi, á öruggum stað, en aðalsmerki Snapchat er sjálf- krafa eyðing gagna. Svolítið eins og sjálfeyðandi skilaboðin í öllum njósnamyndunum. „Snapchat ögrar því viðhorfi að eyðing gagna sé endilega slæm. Á netinu eyðum við vanalega því sem við teljum slæmt eða virkilega skammarlegt. Snapchat reynir að líkja eftir raunverulegum sam- tölum, sem eru liðin tíð um leið og þeim lýkur. Við getum reynt að skrifa niður og geyma sérstök augnablik en að stærstum hluta sleppum við takinu á þessu öllu. Við munum samtöl en geymum ekki afrit af þeim,“ sagði Spiegel og benti á að með því að taka afrit af öllu mögulegu týnist það sem er virkilega sérstakt og þess virði að geyma. Geymum einungis það sem er mikilvægt Honum finnst fólk þurfa að leggja of mikið á sig til að halda úti síðum á samfélagsmiðlum, það sé í raun heilmikið vinna að halda utan um þannig samskipti, en að Snapchat sé bara eins og leikvöllur. „Eyðum öllu, geymum svo ein- ungis það sem er mikilvægt og þá þurfum við bara að halda utan um þetta eina prósent sem er þess virði að geyma.“ En þrátt fyrir gríðarlegar vin- sældir forritsins er það ekki enn farið að skila hagnaði, enda hala notendur því niður ókeypis. Spiegel lætur lítið uppi en virðist hafa stór framtíðaráform því af netfyr- irtækjum segist hann helst líta upp til Google-risans. „Við erum mjög ungt fyrirtæki, erum bara á þriðja ári, og erum svo heppnir að starfa í umhverfi þar sem fjármagnskostnaður er lágur. En ég tel mikilvægt að svona fyrirtæki byrji snemma að huga að því hvernig það geti skap- að tekjur, hvernig það geti gert framleiðslu sína arðbæra.“ „Þessi skilaboð eyðast af sjálfu sér eftir 10 sekúndur“ EITT VINSÆLASTA SNJALLSÍMAFORRIT HEIMS ER EKKI ENN FARIÐ AÐ SKILA TEKJUM, EN ÝMSIR ÁGIRNAST ÞÓ FYR- IRTÆKIÐ OG HERMA SÖGUSAGNIR AÐ HÁAR FJÁRHÆÐIR SÉU NEFNDAR ÞEGAR VERÐMÆTI ÞESS BER Á GÓMA MEÐ- AL FJÁRFESTA Í KÍSILDALNUM FRÆGA. Ingibjörg Rósa Björnsdóttir ingibjorgrosa@gmail.com Evan Spiegel og Bobby Murphy mættu á galakvöld Time tímaritsins í Lin- coln Center í New York í síðustu viku þar sem 100 áhrifamestu var fagnað. AFP Panono-boltinn er með 36 innbyggðar myndavélar með sjálfvirkum fókus sem allar eru þriggja megapixla. Eru þetta því 108 megapixlar sem sauma saman eina mynd. Boltinn sló í gegn á CES-tækni- og græju- sýningunni í Las Vegas þar sem hann var kynntur í febrúar. Boltanum er hent upp og tekur hann mynd á hæsta punkti og býr til 360° x 360° mynd sem sendist í snjallsímann eða annað tæki en hann styður einnig Bluetooth. Sá sem kastar boltanum er alltaf í mynd þannig að boltinn nýtist þeim sem hafa sérstakan áhuga á sjálfsmyndatökum. Ekki er hægt að nota hann í miklu myrkri án þess að myndin verði óskýr enda þriggja megapixla myndavél svipuð og myndavélin framan á iPhone. Boltinn kostar 549 dollara eða rúm- lega 62 þúsund krónur á heimasíðunni panono.com, en hann mun koma í búðir vestanhafs og í vefverslanir í september. 360° x 360° sjálfa PANONO-BOLTINN SETUR NÝ VIÐMIÐ Í SJÁLFSMYNDATÖKUM EÐA „SELFIES“. BOLT- INN BÝR TIL HRING ÚR 36 MYNDAVÉLUM SEM SAUMA SVO SAMAN EINA MYND. Hér má sjá smábrot af mynd sem tek- in var í Tókýó með boltanum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.