Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Síða 41
4.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
M
itt einfalda og viðburðasnauða líf heldur áfram að rúlla eins og
enginn sé morgundagurinn. Það var líklega þess vegna sem ég
sagði já þegar ein afar skemmtileg stelpa hafði samband við
mig og bauð mér að koma með sér og vinkonum sínum á Beyoncé Know-
les-dansnámskeið.
Það þurfti ekki að suða mikið í mér að koma, jafnvel þótt vinkonur mín-
ar segi að ég sé versti dansari á Íslandi. Ég vissi líka að þetta væri aðeins
til gamans gert – ég gæti gleymt því að minn næsti karríer yrði á dans-
gólfinu og ég vissi líka að ég væri ekkert á leiðinni á dansmót. Hin meðvit-
aða ég hafði vitneskju um það að þótt ég myndi jafnvel aldrei geta lært
sporin, þá fengi ég allavega hjartað til að slá hraðar og blóðið til að fruss-
ast um æðarnar. Bara það tvennt væri þess virði að drífa sig út á þriðju-
dagskvöldum og hrista á sér skrokkinn.
Fyrsti tíminn byrjaði frekar rólega þannig séð en svo magnaðist tryll-
ingurinn upp. Áður en ég vissi af var búið að taka ákvörðun um að hóp-
urinn myndi mæta í háhæluðum skóm í næsta tíma. Ekki nóg með það
heldur var einnig mælt með því að við dansarnir ógurlegu mættum í
sundbol við háhæluðu skóna. Til þess að ná upp sömu þokkafullu hreyf-
ingum og Knowles státar af þyrftum við að vera í réttum búnaði. Þetta
væri sko tækifærið til að hleypa kynverunni út … eða eitthvað!
Á þessu augnabliki var hjartslátturinn kominn yfir hættumörk því til-
hugsunin um sokkabuxurnar, hælaskóna og sundbolinn varð mér nánast
ofviða. Hvernig ætti stelpa, sem er helst aldrei með bera handleggi, að
geta „púllað“ þennan búning og það fyrir framan fullan sal af konum.
Sem afar meðvituð 37 ára stelpa veit ég að ég mun aldrei komast upp á
næsta þrep í lífinu nema að leggja eitthvað á mig. Þess vegna ákvað ég að
láta slag standa og takast á við óttann.
Því var skundað í miðbæinn og keyptar
extra stífar Wolford-sokkabuxur sem myndu
hafa kontról á lærunum í öllum hristingnum.
Þegar heim var komið tróð ég mér í þetta allt
saman og auðvitað brosti ég hringinn. Ég
meina, hversu fyndið er það að vera ein
heima hjá sér að máta sokkabuxur undir
sundbolinn og velja sér háhælaða skó við sem
hægt er að dansa Beyoncé-dansa í?
Svo rann danstíminn upp og stelpurnar
mættu flestar í Beyoncé-klæðum eins og
ekkert væri eðlilegra. Það að mæta í þessum
búningi gerði danstímann náttúrlega helm-
ingi skemmtilegri. Eina vandamálið var að
ég var alltaf pínu hrædd um að brjóstin
myndu poppa upp úr sundbolnum. Það er því
spurning hvort ég þurfi ekki að taka þetta
alla leið og fjárfesta í alvöru dansbol sem ég
get verið í við sokkabuxurnar og hælaskóna
og þannig dansað áhyggjulaus.
Lærdómurinn af þessu er án efa að nýta
hvert tækifæri sem gefst til að gera eitthvað
sem maður myndi
aldrei gera undir
venjulegum kring-
umstæðum. Svona
klikkaðar að-
stæður gera lífið
svo fyndið og
skemmtilegt
og í hinum
venjulega
hversdegi
þá veitir bara
stundum ekkert
af því …
Kynverunni
hleypt út …
Það er hægt að dansa í
þessum sundbol frá
Speedo.
Sundbolur sem
hægt er að dansa í.
Wolford-
sokkabuxur
eru nauðsyn-
legar í dans-
inum.
Beyoncé Knowles
í essinu sínu.
FLUGFARÞEGAR FÁ VSK
AFÖLLUMGLERAUGUM
SÍMI 527 1515 GÖNGUGÖTU