Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Blaðsíða 41
4.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41 M itt einfalda og viðburðasnauða líf heldur áfram að rúlla eins og enginn sé morgundagurinn. Það var líklega þess vegna sem ég sagði já þegar ein afar skemmtileg stelpa hafði samband við mig og bauð mér að koma með sér og vinkonum sínum á Beyoncé Know- les-dansnámskeið. Það þurfti ekki að suða mikið í mér að koma, jafnvel þótt vinkonur mín- ar segi að ég sé versti dansari á Íslandi. Ég vissi líka að þetta væri aðeins til gamans gert – ég gæti gleymt því að minn næsti karríer yrði á dans- gólfinu og ég vissi líka að ég væri ekkert á leiðinni á dansmót. Hin meðvit- aða ég hafði vitneskju um það að þótt ég myndi jafnvel aldrei geta lært sporin, þá fengi ég allavega hjartað til að slá hraðar og blóðið til að fruss- ast um æðarnar. Bara það tvennt væri þess virði að drífa sig út á þriðju- dagskvöldum og hrista á sér skrokkinn. Fyrsti tíminn byrjaði frekar rólega þannig séð en svo magnaðist tryll- ingurinn upp. Áður en ég vissi af var búið að taka ákvörðun um að hóp- urinn myndi mæta í háhæluðum skóm í næsta tíma. Ekki nóg með það heldur var einnig mælt með því að við dansarnir ógurlegu mættum í sundbol við háhæluðu skóna. Til þess að ná upp sömu þokkafullu hreyf- ingum og Knowles státar af þyrftum við að vera í réttum búnaði. Þetta væri sko tækifærið til að hleypa kynverunni út … eða eitthvað! Á þessu augnabliki var hjartslátturinn kominn yfir hættumörk því til- hugsunin um sokkabuxurnar, hælaskóna og sundbolinn varð mér nánast ofviða. Hvernig ætti stelpa, sem er helst aldrei með bera handleggi, að geta „púllað“ þennan búning og það fyrir framan fullan sal af konum. Sem afar meðvituð 37 ára stelpa veit ég að ég mun aldrei komast upp á næsta þrep í lífinu nema að leggja eitthvað á mig. Þess vegna ákvað ég að láta slag standa og takast á við óttann. Því var skundað í miðbæinn og keyptar extra stífar Wolford-sokkabuxur sem myndu hafa kontról á lærunum í öllum hristingnum. Þegar heim var komið tróð ég mér í þetta allt saman og auðvitað brosti ég hringinn. Ég meina, hversu fyndið er það að vera ein heima hjá sér að máta sokkabuxur undir sundbolinn og velja sér háhælaða skó við sem hægt er að dansa Beyoncé-dansa í? Svo rann danstíminn upp og stelpurnar mættu flestar í Beyoncé-klæðum eins og ekkert væri eðlilegra. Það að mæta í þessum búningi gerði danstímann náttúrlega helm- ingi skemmtilegri. Eina vandamálið var að ég var alltaf pínu hrædd um að brjóstin myndu poppa upp úr sundbolnum. Það er því spurning hvort ég þurfi ekki að taka þetta alla leið og fjárfesta í alvöru dansbol sem ég get verið í við sokkabuxurnar og hælaskóna og þannig dansað áhyggjulaus. Lærdómurinn af þessu er án efa að nýta hvert tækifæri sem gefst til að gera eitthvað sem maður myndi aldrei gera undir venjulegum kring- umstæðum. Svona klikkaðar að- stæður gera lífið svo fyndið og skemmtilegt og í hinum venjulega hversdegi þá veitir bara stundum ekkert af því … Kynverunni hleypt út … Það er hægt að dansa í þessum sundbol frá Speedo. Sundbolur sem hægt er að dansa í. Wolford- sokkabuxur eru nauðsyn- legar í dans- inum. Beyoncé Knowles í essinu sínu. FLUGFARÞEGAR FÁ VSK AFÖLLUMGLERAUGUM SÍMI 527 1515 GÖNGUGÖTU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.