Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Síða 44

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Síða 44
Fjármál heimilanna Bananarnir tamdir Morgunblaðið/ Sverrir *Það getur verið snúið að hafa bananana í eld-húsinu í því ástandi sem heimilismeðlimir viljahelst. Bananarisinn Chiquita bendir á að efbananarnir eru of grænir má flýta fyrir aðþeir þroskist með því að geyma þá með eplieða tómat í pappírspoka yfir nótt. Hægja máá þroskunarferlinu með því að setja ban- anann í kæli. Hýðið kann að dekkjast en holdið heldur réttum þroska í nokkra daga. Alltaf er eitthvað um að vera hjá Hallveigu Rúnarsdóttur. Næstkom- andi laugardag heldur hún upp á Evróska óperudaginn með því að syngja með Ágústi Ólafssyni í Hörpu síðdegis. Hvað eruð þið mörg í heim- ili? Það myndu vera ég, Jón maðurinn minn, Ragnheiður Dóra dóttir okk- ar og lúxuskisan Aþena. Hvernig sparar þú í heim- ilishaldinu? Ég reyni að kaupa mátulegt magn, ég kaupi t.d. frekar kjöt í kjötbúðum eða -borðum þar sem ég get keypt nákvæmlega eins mikið og ég þarf. Afganga dagar oft uppi í „tupper- verunum“ þrátt fyrir eindreginn ásetning um át. Hvað áttu alltaf til í ísskápn- um? Hér þarf nauðsynlega að vera til létt-G-mjólk í morgun-cappuch- inoinn, skyr, sódavatn, smjör til að steikja upp úr og svo túnfiskur og parmesanostur handa kettinum. Hvar kaupirðu helst inn? Stórinnkaup eru í Bónus eða Krón- unni en skutlinnkaup eru í Víði því maður er svo fljótur. Svo er ein verslunarferð í Pylsumeistarann Laugalæk og Frú Laugu á viku. Eins freistast ég oft í Melabúðina ef ég á leið vestur í bæ! Hvað fer fjölskyldan með í mat og hreinlætisvörur á viku? Vandræðalega mikið. Ég hef enga sjálfsstjórn í matvörubúðum. Hvað vantar helst á heim- ilið? Ef einhver er með Kitchenaid- hrærivél sem hann er hættur að nota, þá já takk! Hvað freistar helst í mat- vörubúðinni? Góðar vörur úr almennilegu hrá- efni. Er t.d. mjög hrifin af Stonewall- vörunum sem fást víða, hnetusmjör- ið frá þeim er af himnum ofan. Eyðir þú í sparnað? Við reynum að nurla saman af fremsta megni. Nú erum við til dæm- is að safna fyrir nýjum bíl, fengum okkur fullsödd á bílalánum fyrir hrun. Skothelt sparnaðarráð? Langbesta sparnaðarráð sem ég get gefið fjölskyldum er að eiga ekki fleiri en einn bíl og reyna af fremsta megni að hjóla eða ganga það sem hægt er. Við það að selja stóra bílinn vænk- aðist hagur fjölskyldunnar gríðarlega, auk þess sem almenn heilsa batnaði! Einnig er gott að taka út pening af og til og sjá hversu hratt hann hverf- ur. Maður verður ögn meðvitaðri í nokkra daga eftir það. NEYTANDI VIKUNNAR HALLVEIG RÚNARSDÓTTIR SÖNGKONA Hefur enga sjálfsstjórn í matvörubúðum Morgunblaðið/Ómar Hallveig segir það hafa verið mikið gæfuspor þegar fjölskyldan seldi stóra bílinn. Sumarfríið er framundan og margir sem hyggja á utanlandsferðir. Er rétt að minna þá, sem þurfa að kaupa sér nýja ferðatösku, á mik- ilvægi þess að velja léttustu töskuna sem finna má. Flugfélögin geta sum verið mjög ströng á farangursþyngdinni og of þungar töskur geta fljótlega orðið dýrar vegna allra aukagjaldanna. Rukkar t.d. Icelandair á bilinu 4.900-14.800 kr. fyrir töskur sem fara yfir 23 kg og Wow tekur 1.495 kr. fyrir hvert aukakíló. Getur munað mörgum kílóum á þyngd tveggja ferðataska af sömu stærð. Þannig eru t.d. léttustu töskurnar frá Samsonite um helm- ingi léttari en þyngstu töskurnar í sömu stærð frá sama framleiðanda. Aurapúkinn gerir það stundum, ef hann þarf að pakka miklu, að pakka í laufléttan bakpoka eða „duffel bag“, sérstaklega ef hann sér fram á að þurfa ekki að arka langar vegalengdir með farang- urinn. Er þá engin þörf fyrir inn- byggð hjól og handföng sem bara þyngja töskuna. púkinn Aura- Lengi lifi léttar ferðatöskur B iðja á um kvittun í öllum viðskiptum en stóra spurn- ingin er hvort kvittunina á að geyma eða bara rétt líta yfir strimilinn til að ganga úr skugga um að ekki hafi verið gerð mistök. Hættan er sú að ef fólk er ekki nógu duglegt að grisja kvittanirnar hratt og vel þá eignist það fljótt gríðarstórt safn af gagnslausum snifsum, og á síðan erfitt með að finna kvittanirnar sem máli skipta, þegar kemur t.d. að því að fylla út skattskýrsluna, krefjast ábyrgðar seljanda á vöru sem hefur bilað, eða fá styrk frá stéttarfélagi. Að skipuleggja kvittanirnar er þó léttara en margur heldur. Grunnreglurnar eru einfaldar en svo er undir hverjum og einum komið að koma sér upp hentugum venjum við grisjunina. Sumir fara t.d. yfir kvittanirnar sem hafa safn- ast upp í vösunum og veskinu um leið og heim er komið, en aðrir setja kvittanirnar allar í skúffu eða á prjón, og grisja vikulega. Bananar og nýmjólk Ráðleggingarnar hér að neðan eru hugsaðar fyrir venjulegt launafólk með eðlilegan heimilisrekstur. Aðr- ar reglur geta átt við t.d. þá sem stunda sjálfstæðan atvinnurekstur. Fyrst er rétt að nefna hvaða kvittunum má henda. Allt sem heitir dagleg neysla heimilisins má alla jafna fara í ruslið – að því gefnu, auðvitað, að búið sé að skrá útgjöldin í heimilisbókhaldið. Kvitt- anir fyrir kaffibolla og kökusneið á kaffihúsi, hamborgara í hádeginu eða kjötfarsið, bananana og mjólk- urfernuna sem keypt var í kjörbúð- inni á leiðinni heim þarf ekki að varðveita. En ef t.d. rafmagnstæki hefur ratað ofan í körfuna úti í stórmark- aðinum, þá er gott að passa að henda ekki kvittuninni því hún gildir sem sönnun fyrir kaupunum og tryggir þannig réttan ábyrgð- artíma. Er þumalputtareglan sú að geyma kvittanir fyrir öllu sem get- ur bilað eða reynst vera gallað. Ís- lensk lög kveða á um tveggja ára neytendaábyrgð og er hægt að henda kvittunum að þeim tíma liðnum, nema seljandi hafi veitt ábyrgð sem er umfram kröfur lag- anna. Ef t.d. dýnan eða sjónvarpið var keypt með fimm ára ábyrgð þarf að geyma kvittunina á vísum stað allan þann tíma. Endurgreiðslur og skattamál Sumir reikningar eru sjálfkrafa geymdir í netbankanum, s.s. korta- reikningar, símreikningar og af- borganir lána. Þarf því ekki að geyma pappírsútgáfuna en það er góður siður að gaumgæfa reikn- ingana vel áður en þeim er hent til að ganga úr skugga um að ekki hafi verið gerð mistök. Greiðslur vegna lyfja- og læknis- kostnaðar eiga að vera sjálfkrafa skráðar af hinu opinbera, en samt er gott að halda kvittununum til haga, til öryggis, ef endurgreiðslur og bætur reynast ekki stemma. Ýmis útgjöld má líka fá end- urgreidd að hluta eða í heild hjá verkalýðsfélögum eða vinnuveit- anda og þess vegna gott að geyma kvittanir fyrir t.d. gleraugna- kaupum, námskeiðsgjöldum og lík- amsrækt. Fyrir skattaskýrsluna er vissara að geyma kvittanir fyrir hvers kon- ar útgjöldum tengdum fram- kvæmdum og endurbótum á heim- ilinu, og einnig útgjöldum tengdum vinnunni. Margir fá t.d. greiddan bílastyrk og þurfa að halda akst- ursskýrslu og halda saman kvitt- unum fyrir öllum útlögðum kostn- aði vegna bifreiðarinnar ef þeir vilja geta dregið kostnað frá styrknum. GETA VERIÐ MIKILVÆG GÖGN Hvaða kvittanir þarf að geyma? ERU ALLIR SKÁPAR OG SKÚFFUR FULLAR AF KVITTUNUM? HVAÐA KVITTUNUM Á AÐ HALDA TIL HAGA OG HVAÐA KVITTANIR ER ÓHÆTT AÐ SETJA BEINT Í RUSLIÐ? Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Yfirleitt þarf ekki að geyma t.d. innkaupastrimilinn úr kjörbúðinni eftir að búið er að skrá útgjöldin í heimilisbókhaldið. Aðrar kvittanir, t.d. fyrir raf- tækjakaupum, getur stundum þurft að geyma í nokkur ár. Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.