Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.5. 2014
Í húsasundum
Laugavegar
ÓMAR ÓSKARSSON, LJÓSMYNDARI MORGUNBLAÐSINS,
ÞRÆDDI ÝMSA KRÓKA ÚT FRÁ VERSLUNARGÖTUNNI
LAUGAVEGI, ÞAR SEM GRAFFITÍ, RUSLAFÖTUR, GLÆSILEGAR
HÚSALÓÐIR OG BAKGARÐAR TAKA VIÐ.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Eflaust fáir sem laumast hingað enda þröngt að komast inn í portið og ekkert sem tekur við nema bakhliðar verslana við
Laugaveg 20. Það hús var byggt árið 1902 en áður stóð þar hús sem kallað var Vegamót en það var rifið sama ár. 16 ár-
um síðar var húsið klætt bárujárni og er það enn í dag og fimm árum síðar var það minnkað örlítið.
Milli verslananna Litla bóndabæjarins og tískuvöruverslunarinnar Aftur er enn
ein dimm og myndskreytt göngin að finna og stórt bílastæði og íbúðir taka svo
við baka til. Horft er á Laugaveg 38 þar sem ferðamannaverslunin Ísbjörninn er
til húsa og Sandholt bakarí er rétt úr augsýn hægra megin.
Gegnt Svarta kaffi, milli Laugavegar 53b og 55, er hægt að smeygja sér inn göng
og um leið sjá listaverk graffara hér í borg en með réttu má kalla bakhlið Lauga-
vegar paradís graffara og hægt að eyða deginum í að virða verkin fyrir sér.
Víða aftan til er að finna bílastæði sem tilheyra fyrirtækjum við götuna og eru
þau rækilega merkt. Á litlum reit aftan við hús sem áður hýsti verslunina
Sautján eiga nokkur fyrirtæki sitt stæði.
Í huggulegum bakgarði Dillon sem þetta hlið liggur að er hægt að skoða húsið
við Laugaveg 30 aftan frá en það hefur verið talið eitt besta dæmið um svokall-
aðan sveitserstíl í Reykjavík sem varð algengur um aldamótin 1900. Slík hús
eru háreist timburhús, á háum kjallara með miklu risi.
Ljósmyndir
ÓMAR
ÓSKARSSON
Í myndum