Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Blaðsíða 29
F
allega heimilið á Álftarnesi einkennist af skandinav-
ískum stíl. „Við höfum bæði búið í Svíþjóð og
Danmörku og erum tiltölulega nýflutt heim. Ég
myndi segja að ég hafi orðið fyrir töluverðum
áhrifum þaðan,“ segir Sigríður Erla og bætir við að
henni þyki afar mikilvægt að fólki líði vel heima hjá sér.
„Bæði þeim sem eiga heima þar með mér og sömuleiðis
þeim sem koma í heimsókn til okkar. Það er mikilvægast
fyrir mig.“
Sigríður og Davíð heimsækja gjarnan listasöfn sem þau
sækja innblástur í, enda hafa þau hjónin mikinn áhuga á
fallegum málverkum. „Ég sæki líka innblástur í fólkið í
Morgunblaðið/Eggert
Hjónin Sigríður Erla og Davíð
Þór ásamt þriggja ára syni
sínum, Viðari Breka.Mikilvægt að líða vel á heimilinu
HJÓNIN SIGRÍÐUR ERLA VIÐARSDÓTTIR VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR OG DAVÍÐ ÞÓR VIÐARSSON,
VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR OG KNATTSPYRNUMAÐUR HJÁ FH, HAFA BÚIÐ SÉR OG ÞRIGGJA
ÁRA SYNI SÍNUM, VIÐARI BREKA, EINSTAKLEGA FALLEGT HEIMILI.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
SÆKIR INNBLÁSTUR Í FÓLKIÐ Í KRINGUM SIG
25.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
kringum mig. Vinir okkar eiga það sameiginlegt að státa
allir af fallegum heimilum með mismunandi stíl sem gam-
an er að heimsækja.“
Sigríður á nokkra eftirlætisstaði inni á heimilinu, meðal
annars eldhúsið enda nýjasta áhugamálið súrdeigs-
bakstur. „Mér finnst gaman að elda og þegar ég hef góð-
an tíma til að undirbúa eitthvað þá er eldhúsið í miklu
uppáhaldi. Þegar vel viðrar finnst mér ekkert betra en
að sitja úti á palli á sunnudagsmorgni og borða morg-
unmat eða leika við strákinn minn. Svo kemur fyrir að
mig langar ekki að vera neins staðar annars staðar en í
rúminu mínu, þá er það uppáhaldsstaðurinn þá stundina.“
* „Við höfumbæði búið íSvíþjóð og Dan-
mörku. Ég myndi
segja að ég hafi orð-
ið fyrir töluverðum
áhrifum þaðan.“
Blómið Sigríður segir fátt
betra, þegar vel viðrar, en
að sitja úti á palli.
Hjónaherbergið er
smekklega innréttað
í mildum litatónum.
Mikið hefur verið
nostrað við litríkt her-
bergi Viðars Breka.
Faxafeni 5, Reykjavik, S: 588 8477 | Skeiði 1, Ísafirði, S: 456 4566 | Dalsbraut 1, Akureyri • S: 558 1100 • www.betrabak.is
TIMEOUT STÓLLINN
Hannaður með fagurfræði
og þægindi að leiðarljósi.
Hönnuður: Jahn Aamodt