Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Blaðsíða 21
Morgunblaðið/Guðmundur Sv. Hermannsson
25.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21
SUMARFRÍ MEÐ ALLT IN
NIFALIÐ
FYRIR ALLA FJÖLSKYLD
UNA!
OKKAR ÓDÝRASTA
ALLT INNIFALIÐ
BON APART -ALANYA
Gildir eingöngu nýjar bókanir,
með minnst tvo saman í herbergi.
ÍSLENSKIR
BARNAKLÚBBAR!
PEGASOS WORLD -SIDE
Gildir eingöngu nýjar bókanir,
með minnst tvo saman í herbergi.
1 vika 2 vikur
9/7 139.599 239.599
16/7 139.599 239.599
13/8 139.599 Örfá sæti laus
20/8 123.999 199.599
1 vika 2 vikur
18/6 89.999 Örfá sæti laus
25/6 89.999 129.999
23/7 99.599 149.599
30/7 119.599 Örfá sæti laus
nazar.is · 519 2777
Til Tyrklands frá Keflavík
Icelandair hóf beint flug til Vancouver um miðjan maí og áætlar að
fljúga þangað tvisvar í viku til 12. október. Flogið er til héðan til Kan-
ada á sunnudögum og þriðjudögum og aftur til Íslands á mánudögum
og miðvikudögum. Hafa forsvarsmenn félagsins sagt að þetta flug gefi
nýja möguleika, einkum í tengiflugi til og frá Norðurlöndunum. Einnig
megi gera ráð fyrir því að ferðamenn, bæði íslenskir og kanadískir,
nýti sér þetta beina flug. Samkvæmt upplýsingum frá Icelandair hafa
Íslendingar sýnt þessum ferðum töluverðan áhuga.
Fram kemur á vef Icelandair að boðið sé upp á borgarferðir til
Vancouver á verði frá 101.500 krónur á mann í þrjár nætur á hóteli.
Ódýrasta flugfargjaldið sem undirritaður fann á bókunarvefnum var
rúmar 40 þúsund krónur frá Íslandi til Vancouver, í september og
október, og tæpar 40 þúsund krónur frá Vancouver til Íslands í októ-
ber. Slíkt verð er þó ekki í boði lengur yfir sumarmánuðina; þá þarf
að seilast öllu dýpra niður í pyngjuna.
Flogið beint
Einn fjölmennasti ferðamannastaður
í Kanada var upphaflega óbyggt
sandrif í miðri Vancouver en er nú
stórt verslunarsvæði sem nefnist
Granville-eyja. Áætlað er að þangað
komi yfir 12 milljónir ferðamanna á
hverju ári.
Hafist var handa við að byggja
sandrifið upp í upphafi síðustu aldar
og þar risu síðan verksmiðjur af
ýmsu tagi. En verksmiðjunum fækk-
aði þegar kom fram á síðari hluta
aldarinnar og í staðinn hefur byggst
upp markaðssvæði þar sem bændur,
fiskimenn, pylsugerðarmenn, hand-
verksmenn og listamenn selja vörur
sínar og tónlistarmenn skemmta á
götuhornum.
Það var gaman að rölta um svæð-
ið og skoða sig um. Aðalferða-
mannatíminn var ekki hafinn þegar
ég var þarna og frekar fáir á ferli en
það verður víst mannmargt á sumr-
in. Ég naut leiðsagnar fararstjóra á
vegum fyrirtækisins Edible Canada,
sem skipuleggur smökkunarferðir
um markaðinn og það er óhætt að
segja að þar er margt gómsætt að
finna. Íslendingnum, sem þó er van-
ur háu matarverði, blöskraði samt
verðið á sumu, t.d. sá ég ekki betur
en nautakjöt og sumar fisktegundir
væru talsvert dýrari en kjöt og fisk-
ur hérna heima.
Bragðlaukaleikur
Fiskur og ávextir á Granville-markaðnum í Vancouver. Fljótandi timburhús bundin við bryggju framan við skýjakljúfa úr gleri og stáli.