Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Blaðsíða 38
græjan sem kemur og fer? Það sem mér fannst rosalega áhugavert við að nota svona tæki var hvernig það fylgdist með svefninum. Ég sá t.d. að svefninn hjá mér var góður en fyrir fólk með svefnvandamál er þetta líka mjög sniðugt. Það er gott að vita hvernig maður sefur en svo þarf fólk að vita hvað það á að gera við þær upplýsingar.“ Guðríður segir að margir kepp- endur í Biggest Loser hafi notað svona armbönd og líkað vel. „Þeim fannst hvetjandi að sjá hverja ein- ustu tölu á bak við hvert einasta skref. En ef þetta hjálpar viðkomandi að standa upp úr stólnum og halda af stað til betra lífs þá er þetta gott mál.“ Einkaþjálfari allan daginn Bragi Gunnlaugsson, verkefnastjóri hjá Vodafone, hefur notað svona armband í töluverðan tíma. „Ég er með Jawbone UP á mér og það finnst mér frábært tæki. Maður stimplar inn markmið sín og Ódýrt: AGAiT Verð: 24.900 krónur Fæst í: Rafha Aðeins um: Einföld í notkun, hljóðlát og lítil og nett. Aðeins sjö cm á hæð. Hentar í allt að 60 fermetra rými Miðlungs: Samsung Navibot Verð: 64.995 Fæst í: Elkó Aðeins um: HEPA10 sía, átta nemar, 90 mínútna notkun á fullri hleðslu. 70 desibela hljóðstyrkur sem er svipað eins og hringitónn. Dýrt: iRobot Roomba 780 Verð: 119.995 Fæst í: Byggt og Búið Aðeins um: Snertiskjár, átta cm á hæð, nýjasta vélin frá iRobot. Nýtt og end- urbætt burstakerfi sem tekur betur upp hár, ló og hnökra. Gerð fyrir að þrífa öll gólf; parket, teppi og mottur. ÓDÝRT, MIÐLUNGS, DÝRT Ryksuguvélmenni 38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.5. 2014 Græjur og tækni Facebook tilkynnti í vikunni nýjustu upp- færslu sína. Nú er hægt að skrifa stöðu- færslu í gegnum símann, þegar til dæmis er verið að hlusta á eftirlætislagið eða horfa á uppáhaldssjónvarpsþáttinn. Mun forritið þá þekkja lagið eða þáttinn og spila eða sýna vinum viðkomandi 30 sekúndna bút af því sem er verið að hlusta eða horfa á. Facebook með nýja uppfærslu K læðanleg tækni er eitthvað sem koma skal. Slíkri tækni var spáð mikilli vel- gengni á stærstu raftækja- sýningu heims, CES í Las Vegas í febrúar síðastliðnum. Armböndin, sem kölluð eru snjall-, heilsu- eða lífsstílsarmbönd, tengjast beint við snjallsímann og því fást flest slík armbönd í síma- búðum landsins. Þau kosta frá 14 og upp í 30 þúsund og fylgist armband- ið með líkamsstarfseminni. Armbandið skráir alla hreyfingu, telur kalóríur, lærir á hreyfigetuna þína og býr til persónubundið mark- mið fyrir hvern dag. Það fylgist einnig með svefnvenjum og hægt er að láta það titra ef kyrrseta fer yfir 15 mínútur í einu. Það er alltaf kveikt á armbandinu og því er öll hreyfing notandans skráð. Raf- hlaðan dugir yfirleitt í kringum viku til tíu daga. Ef markmiðum dagsins er náð aðlagar armbandið markmiðið fyrir næsta dag. Í raun hjálpar armband- ið viðkomandi að komast skrefi nær betra formi. Eins og með allt snjallt er hægt að deila svo upplýsingum um árang- ur dagsins, vikunnar eða mánaðar- ins á vefinn og hægt er að keppa við aðra notendur eða vera bara í keppni við sjálfan sig. Of mikil tækni Guðríður Erla Torfadóttir, einka- þjálfari úr sjónvarpsþjáttunum Biggest Loser, hefur prófað að vera með svona armband og þar sem hún segist ekki vera nógu tæknivædd til að nota svona tæki þá sé þetta eitthvað sem sé ekki fyrir hana. Hún mæli árangurinn í bættri getu frekar en á tölvuskján- um. „Þegar við vorum í þáttunum fengum við svona armband og persónulega sá ég ekki tilgang- inn í að nota það dagsdaglega. Ég veit hinsvegar um fullt af fólki sem er að nota svona og ég held að þetta sé gott fyrir fólk sem er að byrja að hreyfa sig og fyrir þá sem eru tæknivæddir. En er þetta ekki bara enn ein Heilsan fest á höndina SNJALLARMBÖND ERU NÚ ÞEGAR ORÐIN MJÖG VINSÆL MEÐAL ÞEIRRA SEM VILJA SKOÐA TÖLURNAR BAK VIÐ HEILS- UNA. ARMBÖNDIN HVETJA NOTANDA TIL HREYFINGAR OG SKRÁ HVERT SKREF, HVERT SLAG OG JAFNVEL SVEFN. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is  Vívofit 22.900 krónur. Garmin búðin  Nike Fuel SE 29.900 krónur. Nova Bragi Gunnlaugsson hefur notað snjallarmband og segir það hvetja sig áfram. reynir að ná þeim. Ef það tekst ekki þá fæ ég tölvupóst þar sem ég er hálfpartinn skammaður en á sama tíma virkar það á mig sem hvetjandi. Ég hjóla töluvert og þetta hefur hjálpað mér á þeim vettvangi. Þetta er eins og að vera með einkaþjálf- ara með sér – alltaf.“ Hann segir að þetta sé ekki svo flókið. „Maður stimplar inn í byrjun kyn, hvað maður er gamall og hversu þungur maður er. Svo slær maður inn markmiðinu sem maður ætlar að ná og svo sér bara græjan um rest.“ Flest armböndin eru mjög létt og segja notendur að þetta sé eins og að vera með armband inn á tón- leika. Þetta venjist óvenju fljótt. Bragi segir að hægt sé að stilla hvaða upplýsingar viðkomandi deilir á netið, hvort það sé allt eða ekkert en spurningar hafa vaknað hvort þetta sé árás á einkalífið. Að fólk deili því að það sé að stunda hreyf- ingu þegar það á að vera lagst til hvílu. Að viðkomandi hafi verið að eyða 350 kalóríum klukkan hálftólf að kvöldi til. Slíkt á heima í svefn- herberginu, ekki á veraldarvefnum. Guðríður Erla mælir árang- urinn í bættri getu frekar en að sjá hann á tölvuskjánum.  Polar Loop 19.900 krónur. Nova Morgunblaðið/Þórður Fitbit Flex 14.900 krónur. Síminn  Jawbone UP 22.900 krónur. Vodafone Ebay tilkynnti þjófnað á fimmtu- dag en hann átti sér stað í lok febrúar eða byrjun mars. Tölvu- hakkararnir komust yfir 145 milljónir reikninga og það gerir þetta að öðrum stærsta tölvu- glæp sögunnar. Tölvuhakkarar komust yfir 152 milljónir reikn- inga viðskiptavina Adobe tölvu- fyrirtækisins í október 2013. Engar upplýsingar um kred- itkortanúmer láku hins vegar út en engu að síður bað Ebay not- endur sína að breyta lykilorðum. „Fólk verður að fara að gera sér grein fyrir því að tölvuinn- brot eru mjög algeng og það verður að hætta að nota alltaf sömu lykilorðin,“ sagði tölvu- öryggissérfræðingurinn Trey Ford í samtali við Reuters fréttastofuna. Í tilkynningu frá Ebay kom fram að hakkararnir hefðu kom- ist inn á innra net fyrirtækisins eftir að hafa sent nokkrum starfsmönnum tölvupóst sem innihélt vírus. Ljóst væri að allavega einn starfsmaður, jafn- vel fleiri, hefði smellt á óæski- lega vefslóð sem honum hafði verið send með tölvupóst. Brotist inn hjá Ebay 145 MILLJÓNUM LYKILORÐA VAR STOLIÐ AF EBAY Í NÆST STÆRSTA TÖLVUINN- BROTI SÖGUNNAR. Tölvuhakkar réðust á innra net Ebay fyrirtækisins og náðu að komast yfir 145 milljónir reikninga – jafnvel þótt þeir hefðu verið dulkóðaðir. AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.