Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.5. 2014
Matur og drykkir
Bara henda öllu á pönnuna og svo þarf rétt-
urinn að sjóða í um klst.
400 g lamba- eða nautahakk (ég nota
oftast lífrænt lambahakk)
1 msk. sítrónusafi
50 ml vatn
1 msk. smjör
1-2 laukar (og má nota blaðlauk)
4 hvítlauksrif
2 lárviðarlauf
1 msk. paprikukrydd
1 msk. oregano
1 msk. basil (eða marjoram)
1 tsk. sjávar- eða himalayasalt
½ tsk. pipar
4-6 íslenskar og/eða lífrænar gulrætur
6 íslenskir þroskaðir tómatar eða 1
krukka 400-500 ml maukaðir tómatar
3-4 msk. lífræn tómatpúrra
1 msk. kókos-pálmasykur (má sleppa)
50-100 ml rjómi, kókosmjólk, rjóma-
ostur eða sýrður rjómi (má sleppa)
Ef ykkur finnst þurfa að styrkja betur í
lokin getið þið bætt við ½ msk. af
grænmetiskrafti.
Aðferð: Kreistið sítrónusafann yfir kjötið.
Setjið smjör, vatn og hakk á pönnu. Skerið
laukinn og hvítlaukinn og bætið við hjá
hakkinu. Steikið allt saman og bætið krydd-
inu við jafnóðum. Skolið gulrætur og tómata
og skerið í munnbita og bætið við á pönn-
una. Setjið afganginn af innihaldsefnunum
(mínus rjóma, kókosmjólk, rjómaostur,
sýrður) út á pönnuna og látið sjóða við
vægan hita í um klukkustund. Í lokin bætið
þið við rjóma, kókosmjólk eða sýrðum
rjóma.
Viðbót: Við borðum spelt spaghettí með
þessum rétti með gæða ólífuolíu og sjávar-
eða himalayasalti. Einnig sker ég eitthvað
grænmeti í bita eða strimla (t.d. gúrkur og
gulrætur) og býð upp á með. Einnig má
bjóða upp á íslenskt kál. Bætið við því græn-
meti sem ykkur hentar í réttinn og athugið
að hægt er að kaupa glútenlaust pasta.
H
in einlæga og glaðlynda Ebba
Guðný hefur haldið fyrirlestra víða
um hollt mataræði fyrir alla fjöl-
skylduna og auk þess hefur hún
gefið út bækur sem innihalda uppskriftir og
fróðleik um hollan mat fyrir ungabörn og aðra
fjölskyldumeðlimi. Ebba var með matreiðslu-
þætti á RÚV fyrir stuttu sem nefndust Eldað
með Ebbu og hefur nú gefið út bók með upp-
skriftum úr samnefndum þáttum. Hún segist
þó ekki alltaf hafa borðað hollan og lífrænan
mat en breytti um mataræði af ástæðu.
„Ég er alin upp á hreinum mat, mamma og
pabbi elduðu matinn frá grunni og reyndu að
hafa gæði í fyrirrúmi. Það var alltaf kvöld-
matur heima,“ segir Ebba. „Ég breytti um
mataræði af því að smám saman áttaði ég
mig á því að ef ég borðaði ennþá hollara,
meira grænmeti og meira úr jurtaríkinu,
minna eða ekkert ger og minni eða engan
sykur og meira lífrænt, liði mér betur bæði
andlega og líkamlega og yrði þannig ánægðari
með sjálfa mig. Einu sinni var ég alltaf í
megrun, á kolvitlausum forsendum. Ég forð-
aðist fitu, sem er algjör vitleysa, og var bara
alveg í ruglinu. Þetta endaði með ósköpum.
Það var mikið frelsi að brjótast út úr þessu
og byrja að borða svona eins og ég sýndi í
þáttunum.“ Ebba hætti að velta fyrir sér ka-
loríum og kílóafjölda og í dag segist hún ekki
telja kaloríur heldur reyni að hlusta heldur á
líkamann. „Ég borða þegar ég er svöng, ekki
of mikið í einu og nóg af góðri lífsnauðsyn-
legri fitu. En þetta tekst ekki alltaf. Ég geri
mitt besta og reyni að vera ánægð með mig.
Það er þó oft erfitt, því maður er oft svo
gagnrýninn á sjálfan sig og óvæginn. Það er
ennfremur svo slæmt að bera sig saman við
aðra og maður á alls ekki að gera það því við
erum jú öll einstök, einstaklega frábær. Þetta
kemur allt með æfingunni og ég er að æfa
mig í þessu öllu,“ segir Ebba kát.
Einfalt og gott að elda súpur
Henni þykir skemmtilegt og einfaldast að
elda súpur þar sem öllu er hent í pottinn og
leyft að malla þar í rólegheitum. „Það er fer-
lega þægilegt fyrir upptekna og þreytta for-
eldra til dæmis, að elda súpu. Maturinn er
bara tilbúinn eftir hálftíma og á meðan sýður
í pottinum er hægt að ganga frá og hugsa um
heimilið, eða jafnvel leggja sig á eldhúsgólf-
inu,“ segir hún og hlær. „En annars er yf-
irleitt gaman að elda mat þegar maður hefur
tímann með sér, reynir að njóta augnabliks-
ins, kveikja á kertum og jafnvel notalegri tón-
list. Ekki er allt á hvolfi í kringum mann og
ljúft kvöld framundan. Helgarkvöldin eru oft
tilvalin í það. Ég þykist vera snillingur í að
elda lambahrygg og gera sósu með frá grunni
úr soðinu. Það er uppáhaldsmaturinn minn,
hugsa ég. Kannski að maður sýni þessa sósu í
næstu þáttaröð?“
Hafði gaman af þáttagerðinni
Aðspurð hvort sé von á næstu þáttaröð segist
Ebba áhugasöm. „Mér fannst reglulega gam-
an að búa til þættina fyrir RÚV og lagði ég
allan hug minn og hjarta í þá sem og leik-
stjórinn, Sævar Sigurðsson, frændi minn. Við
unnum handritin saman og uppbygginguna og
erum miklir vinir. Hann skilur mig og ég
hann. Hann er aldrei pirraður eða fúll og svo
einstaklega vandvirkur og snjall, hættir ekki
fyrr en hann er fullkomlega ánægður með út-
komuna. Ég er ótrúlega þakklát að hafa feng-
ið að vinna með honum og sama á við um alla
hina sem að þáttunum komu. Dásamlegt fólk,
fagmenn fram í fingurgóma,“ segir Ebba.
Hún segir að allir geti orðið færir í eldhús-
inu, það eina sem þurfi til er góður ásetn-
ingur og gott hráefni. „Það geta allir gert
góðan mat, þetta er ekkert mál. Gott er að
hafa tímann með sér þegar maður er að elda
eitthvað í fyrsta skipti og muna jafnframt að
ef eitthvað mistekst þá má ekki gefast upp.
Það kemur fyrir alla inn á milli að elda mat
sem þykir ekki ýkja stórkostlegur,“ segir
Ebba að lokum hress í bragði.
EBBA GUÐNÝ HEFUR ÁHUGA Á AÐ GERA FRAMHALD AF MATREIÐSLUÞÁTTUM SÍNUM
Hætti að telja kaloríur og kíló
MATREIÐSLUÞÆTTIR EBBU GUÐNÝJAR Á RÚV OG BÆKUR HENNAR HAFA VAKIÐ ATHYGLI ENDA
ER EBBA GUÐNÝ GÓÐ FYRIRMYND ÞEGAR KEMUR AÐ HOLLU MATARÆÐI. HÉR DEILIR HÚN
GÓMSÆTRI UPPSKRIFT AÐ GÓMSÆTU BOLOGNESE MEÐ LESENDUM.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Ebba Guðný með börnum sínum Hönnu og
Hafliða. Bókin hennar Eldað með Ebbu er kom-
in út með uppskriftum úr samnefndum þáttum.
Bolognese með líf-
rænu lambahakki