Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Blaðsíða 35
25.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
Litríkar, hagnýtar,
fíngerðar, óbrjótandi,
fallegar, spennandi,
endingargóðar,
mjúkar,
skemmtilegar...
Allskonar gjafir
á óskalistann ykkar
Kláraðu listann
Brúðhjón sem gera
óskalista fá 10% afslátt
af öllum vörum hjá okkur
í 6 mánuði eftir brúðkaupið
DÚKA www.duka.is
KRINGLUNNI SÍMI: 533 1322
SMÁRALIND SÍMI: 564 2011
Almennt hreinlæti þarf að viðhafa við alla
matargerð og skiptir þá ekki máli hvort við
eldum aðeins ofan í okkur sjálf eða fyrir alla
fjölskylduna eða fleiri. Sýkla er víða að finna
og hættan á að matvæli innihaldi sýkla er því
alltaf fyrir hendi. Þess vegna er ekki nóg að
þvo hendurnar bara áður en við meðhöndl-
um matvæli heldur þarf einnig að þvo sér
milli þess sem ólíkur matur er meðhöndl-
aður. Þá á ekki að þurfa að segja fólki að þvo
sér um hendurnar eftir salernisferðir.
Þegar unnið er með alifuglakjöt og annað
hrátt kjöt þarf að passa það sérstaklega að
kjötið og áhöldin sem notuð eru, hvort sem
það eru skurðarbretti eða hnífar, komist ekki
í snertingu við annað hráefni. Þetta á líka við
um geymslu matvæla og þarf að passa það
sérstaklega að hrátt kjöt og alifuglakjöt kom-
ist ekki í snertingu við aðrar vörur t.d. græn-
meti.
Halda þarf áhöldum og eldhúsborði hreinu
ef koma á í veg fyrir að sjúkdómavaldandi
bakteríur flytjist úr hráum mat yfir í tilbúinn
mat. Þetta á líka við þegar matur er grillaður
en aldrei skal nota sama disk undir hráa kjöt-
ið þegar það er borið út í grill og tilbúið kjöt
eða annan mat af grillinu nema diskurinn sé
vel þveginn á milli.
Borðtuskan getur hæglega breyst í bakt-
eríubæli. Því þarf að þvo hana reglulega í
a.m.k. 60° heitu vatni eða leggja í klór og
aldrei á að nota hana á gólfið.
Hreinlæti í eldhúsinu
Hreinlæti við matargerð er mikilvæg ef koma á veg fyrir sjúkdómsvaldandi bakteríur í mat.
Morgunblaðið/Golli
Grilllyktin er í loftinu enda veðrið
búið að vera einstaklega gott á höf-
uðborgarsvæðinu í maí. Gott er að
setja eitthvað hollt og gott á grillið
og er þá tilvalið að grilla eggaldin
en það er bæði auðvelt og fljótlegt.
Takið 1. stk. eggaldin og skerið
langsum í rúmlega 1 cm þykkar
sneiðar. Berið síðan á góða mar-
ineringu sem gæti t.d. verið í 5
skeiðar af ólívuolíu, 2 skeiðar bal-
samedik, 1 hvítlaukslauf sem er
kramið vel og 1 skeið af rósmaríni.
Önnur krydd koma auðvitað til
greina og síðan setur fólk salt og
pipar eftir eigin smekk.
Eftir veðurblíðuna í maí má fullyrða
að grilltíminn sé hafinn.
Morgunblaðið/Golli
Hollusta og
góðgæti
Forréttir þurfa ekki að vera flóknir
eða tímafrekir í undirbúningi. Þegar
von er á gestum er tilvalið að skera
avókadó í tvennt og kreista smá sí-
trónusafa yfir. Síðan er sett rækja í
holuna sem steinninn skilur eftir sig
og sýrðum rjóma bætt við. Blanda
má sýrða rjóman með kryddum
eins og grískri dressingu til að bæta
bragðið. Fljótlegur forréttur sem
flestum finnst góður og er auk þess
hollur og litríkur.
Avókadó er bæði hollt og gott með
rækju og sýrðum rjóma.
Morgunblaðið/Kristinn
Auðveldur
forréttur