Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Blaðsíða 23
25.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
Það er ekki allt unnið með að komast heim
til að slaka á og hvíla sig eftir erfiðan vinnu-
dag. Í rannsókn sem unnin var af Penn State
University’s School of Labor and Employ-
ment Relations kom í ljós að fólk verður al-
mennt fyrir meira stressi heima hjá sér enn í
vinnunni. Mælt var magn cortisols í fólki en
það er góður mælikvarði á stress og sýndi sig
að fólk mældist með minna magn af cortisol í
sér á vinnutíma en þegar það var heima.
„Þetta fer gegn öllu því sem við höfum talið
okkur trú um. Heimili okkar hafa yfirleitt
verið talin sá staður sem við slökum best á
eftir langan og erfiðan vinnudag,“ segir Sarah
Damske frá Penn State-háskólanum.
Rannsóknin náði til 122 einstaklinga og var
tekin stroka úr þeim sex sinnum á dag í fimm
daga en þrír af þessum fimm dögum voru
vinnudagar. Þá voru þátttakendur einnig látn-
ir meta eigin líðan þegar stroka var tekin en
þeir komu úr öllum stéttum samfélagsins
með margvíslegan bakgrunn og störf. Í ljós
kom að fólk skráði hamingju sína töluvert
meiri um helgi en á venjulegum vinnudegi en
þrátt fyrir það var lítill munur á magni cort-
esol í þátttakendum um helgar. Mesti mun-
urinn reyndist vera þegar fólk var við vinnu.
Konur sögðust áhyggjulausari við vinnu en
heima öfugt við karlmenn en niðurstaða lífs-
ýna sýndi að bæði kyn voru, eða ættu að
vera samkvæmt sýnunum, afslappaðri á
vinnustaðnum sínum en heima.
Fólk virðist almennt aflappaðra á vinnustaðnum sínum en heima samkvæmt rannsókn Penn State-
háskóla en niðurstöður hennar ganga gegn því sem flestir myndu telja vera satt og rétt.
Morgunblaðið/Ómar
Afslappaðri í vinnunni en heima
Leitarniðurstöður á Google geta
gefið vísbendingar um það hverju
fólk er hverju sinni mest að velta
fyrir sér. The New York Times birti
niðurstöður um óléttutengt gúgl
víðsvegar um heiminn. Samkvæmt
þeim niðurstöðum eru bandarískir
og breskir verðandi foreldrar oft-
ast að leita upplýsinga um slit á lík-
ama og hvernig má grennast eftir
barnsburð. Í Indlandi eru verðandi
foreldrar áhugasamari um góðan
svefn og hvernig megi stunda sem
ánægjulegast kynlíf á meðgöngunni.
Margar spurningar brenna á verðandi
foreldrum og Google aðstoðar oft.
Morgunblaðið/Arnaldur
Verðandi for-
eldrar á google
Lífslíkur þeirra sem þjást af anorexíu
eru svipaðar og þeirra sem reykja
20 sígarettur á dag. Þetta hefur
rannsókn sem vísindamenn við Ox-
ford-háskóla framkvæmdu leitt í
ljós. Það sama á við um þá sem þjást
af langvarandi þunglyndi.
Lífslíkur Breta sem þjást af geð-
rænum sjúkdómum eru svipaðar og
fólks í Norður-Kóreu eða Breta á 3.
áratug síðustu aldar. Breskir frétta-
miðlar segja þetta sýna að heilbrigð-
isyfirvöld í landinu þurfi að einbeita
sér að geðheilsu þjóðarinnar.
Stór hluti, eða 95%, þeirra sem þjást
af anorexíu eru á aldrinum 12-26 ára.
Jafnhættulegt
og pakki á dag
www.utkall.is
ÚTKALL
Í ÞÁGU VÍSINDA
BÍÐUR ÞÚ
MEÐ TILBÚIÐ
SKILAUMSLAG?
Hringdu eða sendu póst á Þjónustumiðstöð
rannsóknaverkefna og björgunarsveitirnar
koma og sækja umslagið til þín.
Skilaumslagið má setja
ófrímerkt í póst.
HAFÐU SAMBAND
OG VIÐ SÆKJUM
520 2800
rannsokn@rannsokn.is
EÐA SENDU
OKKUR UMSLAGIÐ