Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Blaðsíða 48
Náttúran 48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.5. 2014 Ef þér heyrist eitt augnablik, í sveitaferðinni, að það sé verið að sjóða hafragraut úti í náttúrunni er þetta enginn grautur heldur spóar í ástarleik. Eins og í sjóðandi graut heyrist í þeim í þeim athöfnum sem eru alltaf jafn ástúðlegar þótt þeir skipti helst aldrei um maka. Svo flautar hann marg- víslega að auki. Svona þekkirðu spóann: Það er fremur auðvelt að þekkja spóann. Ef þú sérð háfættan fugl með langt, íbjúgt nef, er líklegt að um spóa sé að ræða. Spói er dekkri á baki en neðri hluta, módröfnóttur og en á höfði hans er mynstrið fíngerðara. Svona þekkirðu hreiðrið: Hreiður spóa er áberandi en einfalt. Það er sinuklædd laut ná- lægt mosaþúfu og óhulið. Spóinn verpir víða en það skemmtilega við ungana er að þeir fara snemma á stjá og nenna lítið að vera í hreiðrinu en eru þess í stað að tína upp í sig skordýr í næsta ná- grenni svo það er sjón að sjá. Það er nokkuð algengt að fólk rugli þessum fuglum saman; svartþresti og stara, eða starra eins og hann er líka kallaður. Svona þekkirðu fuglana: Svartþrösturinn er alveg svartur, með gulan gogg. Kvenfuglinn er þó ívið brúnni og ljós að neðan. Þeir eru með rákir á bringu og brjósti. Horfið fyrst á fæturna. Svartþrösturinn er með dökka fætur en starinn er með rauðbrúna fætur. Þá er fjaðurhamur starans á sumrin ljósdílóttur. Svona þekkirðu hreiðrið: Ef þú rekst á hreiður í gasgrillinu þínu eða hitalampanum gæti þetta vel verið hreiður svartþrastar. Hreiður starans er líka að finna í mannabústöð- um, undir þakskeggjum, veggjum og er mun draslaralegra en hreiður svartþrastarins sem er grófgert og úr alls kyns efni- við. EKKI RUGLA ÞESSUM SAMAN: SVARTÞRÖSTUR OG STARI Hin eina sanna lóa, persónugervingur vors og sumars, er heiðlóa. Í sumar ættu lesendur að geta séð hana í fjörum og móum. Svona þekkirðu hana: Að ofan er hún dökk með gulum dílum. Neðri parturinn er svartur og hvítur og vangar eru svartir. Milli gulu dílanna og þess svarta að neðan er eitt sem er ein- kennandi fyrir hana og gott hjálpartæki til að þekkja hana: Hvít s-laga rönd. Fæt- urnir eru gráir og goggur afar stuttur og svartur. Svona þekkirðu hreiðrið: Laut eða dæld í lyngmóa sem lætur lítið yfir sér, fóðruð með grasi og laufi. Varp var að hefjast og mætti rekast á egg, grámosagræn eða ljósgræn með svörtum rákum í þessum hreiðrum næsta mánuðinn. Um miðjan júní mætti fara að sjá unga í þessum hreiðrum og þeir fljúga á brott 1.-2. vikuna í júlí. Farið því varlega úti í móa. Ef þið viljið kasta kveðju á lóuna skulið þið gera það áður en júlí endar, þá kveður hún landið í bili. Morgunblaðið/Ómar GLEÐIGJAFINN EINI: LÓAN Morgunblaðið/Ómar ELSKAR ÚT LÍFIÐ: SPÓINN Morgunblaðið/Ómar Morgunblaðið/Ómar Þekktu fuglana þína og hreiðrin VIÐ KÖNNUMST ALLT OF MÖRG VIÐ ÞAÐ AÐ GETA EKKI SVARAÐ EINFÖLDUSTU SPURNINGUM BARNA OKKAR Í SUMARFRÍINU SEM BENDA Á HINN OG ÞENNAN FUGLINN OG SPYRJA OKKUR HVER SÉ HVAÐ OG HVAÐ HANN GER- IR. ÞÁ REKUR HREIÐUR KANNSKI Á FJÖRUR OKKAR OG ENGINN VEIT NEITT. HÉR ERU NOKKRIR FUGLAR SEM BORGARBÖRN OG AÐRIR SEM VITA EKKI NÓG UM EN ÆTTU AÐ VITA MEIRA ÆTTU AÐ LESA UM. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.